Morgunblaðið - 30.03.2020, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MARS 2020
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
Donald Trump Bandaríkjaforseti
sagði í gær að búast mætti við því að
dánartíðni af völdum kórónuveir-
unnar næði hámarki eftir hálfan
mánuð, sem er um páskana. Sagði
forsetinn enn fremur að Bandaríkin
yrðu á batavegi frá 1. júní að telja.
Rætt hefur verið að skylda alla íbúa
New York-borgar í sóttkví.
Forsetinn telur slíka ráðstöfun
óráð og leggur heldur til „strangar
ferðatakmarkanir“ gagnvart íbúum
New York, New Jersey og Con-
necticut og tilkynnti þetta á Twitter,
sínu helsta gjallarhorni. Trump
sagði í viðtali við bandaríska fjöl-
miðla á laugardaginn að hann teldi
skynsamlegt að setja alla New York
í sóttkví.
„Flórída er milli steins og sleggju.
Þangað fara margir New York-bú-
ar, við viljum það ekki,“ sagði
Trump á laugardaginn. Samtímis
þessu lét Andrew Cuomo, ríkisstjóri
New York, þau orð falla að það væri
ekkert annað en and-amerísk ráð-
stöfun að loka New York-borg.
Neyta ýtrustu ráða
Rökstuddi hann mál sitt með því
að borgaryfirvöld í New York hefðu
þegar neytt ýtrustu ráða, bannað
samkomur og skipað íbúum að halda
sig heima. „Annars verðum við eins
og Wuhan í Kína og það er ekkert
vit í því,“ sagði ríkisstjórinn í sam-
tali við CNN um helgina.
Enn fremur hélt hann blaða-
mannafund á laugardaginn og sagð-
ist þar draga í efa að innilokun allra
borgarbúa stæðist lög. „Eins efast
ég um að slík ráðstöfun væri fram-
kvæmanleg frá læknisfræðilegu
sjónarmiði,“ sagði ríkisstjórinn.
Stöðva allar bifreiðar
„Ég get sagt það að ég vil ekki
einu sinni heyra af þessum hug-
myndum,“ sagði hann enn fremur.
Skálmöld ríkir nú nánast í ná-
grannaríkjum New York þar sem
þjóðvarðliðar halda vörð á ríkja-
mörkunum gagnvart Rhode Island
og Connecticut og stöðva allar bif-
reiðar með New York-skráningar-
númer. Eru ríkjamörk Rhode Island
og New York þó eingöngu á hafi úti.
Ökumönnum eru afhentar skrif-
legar leiðbeiningar um COVID-19
og hvernig þeim beri að haga sér í
sóttkví þannig að best gagnist þeim
og samlöndum þeirra og sem minnst
hætta verði á smiti veirunnar.
Hermenn ganga nú milli heimila í
nágrannabyggðarlögum New York-
borgar og spyrja heimilismenn
hvort þeir hafi nýlega komið til
borgarinnar.
Sagði Cuomo enn fremur að hann
óttaðist að sóttkví um alla New
York-borg legði fjármálalíf þar í
rúst.
Á laugardaginn höfðu rúmlega
112.000 manns greinst með veiruna í
Bandaríkjunum og reiknað með
neyðarástandi þar næstu vikur.
Segir hámarkstíðni dauðsfalla í nánd
Trump framlengir samskiptatakmarkanir til 30. apríl Þjóðvarðliðar stöðva bifreiðar með skráning-
arnúmer frá New York á ríkjamörkum Rúmlega 112.000 smitaðir af kórónuveirunni vestanhafs
AFP
Fámennt Ronald Reagan-flugvöll-
urinn í Arlington í Virginíu var svo
gott sem mannlaus í gær.
Bundeswehr-sjúkrahúsið í Ulm í
Suðvestur-Þýskalandi tekur á móti
frönskum borgara sem sýktur er af
kórónuveirunni á myndinni sem
fylgir þessari frétt. Frakkar neyta
nú allra ráða til að tæma gjörgæslu-
deildir sínar, þar sem einir koma og
aðrir fara í dag, og treysta þar með-
al annars á samstarfsfólk í Þýska-
landi.
Miðað við tölur gærdagsins voru
40.174 Frakkar smitaðir af veirunni
og 2.606 látnir. Höfðu þá tæplega
3.000 smit greinst í Frakklandi á
einum sólarhring.
Á laugardaginn bárust tilkynn-
ingar um um 319 dauðsföll af völd-
um veirunnar í Frakklandi, en
reiknað er með að fjöldi látinna auk-
ist til muna þegar umönnunar- og
elliheimili tilkynna um dauðsföll þar
sem tölur helgarinnar taka ein-
göngu til þeirra sem látist hafa á
sjúkrahúsum.
Pöntuðu milljarð gríma
Samfélagið hefur að mestu verið í
lamasessi í Frakklandi síðan 17.
mars og lét Édouard Phil forsætis-
ráðherra þau orð falla á föstudaginn
að þau bönn sem frönsk stjórnvöld
hafa nú mælt fyrir um verði að
minnsta kosti í gildi til 15. apríl.
Frakkar hafa bannað allar sam-
komur og lokað skólum landsins.
Auk þess hefur blátt bann verið lagt
við öllum ferðalögum fólks öðrum
en þeim sem lífsnauðsynleg teljast.
Olivier Véran, heilbrigðisráðherra
Frakklands, sagði á laugardaginn
að frönsk heilbrigðisyfirvöld hefðu
pantað rúmlega milljarð andlits-
gríma í viðleitni sinni að hefta út-
breiðslu kórónuveirunnar.
Sagði Véran enn fremur að
Frakkar hefðu notað 40 milljónir
slíkra gríma vikulega.
Senda sjúklinga
yfir landamærin
Frakkar neyta liðsinnis Þjóðverja
AFP
Samstarf Tekið á móti frönskum
sjúklingi í Suðvestur-Þýskalandi.
Donald Trump Bandaríkjaforseti telur dánartíðni af
völdum kórónuveirunnar ná hámarki um páskana.
Hann ávarpaði þjóð sína í gær en hefur eftir þá ræðu
tilkynnt að bann við samskiptum þegnanna sé nú fram-
lengt til 30. apríl. Í baksýn er sjúkraskip sjóhersins,
Comfort, eða Huggun. Trump hefur verið legið á hálsi
fyrir að bregðast seint og illa við kórónuveirunni en
yfir 100.000 Bandaríkjamenn hafa nú tekið sóttina.
AFP
Ávarpar þjakaða þjóð
Michael Franzese var á sínum tíma
hátt settur stjórnandi mafíunnar í
New York. Hann ákvað þó að setjast
í helgan stein enda lækkaði lífaldur-
inn síst með tímanum. Franzese til-
heyrði Colombo-fjölskyldunni, þeirri
sem mest kvað að í New York-deild
sikileysku mafíunnar Cosa Nostra.
Franzese, sem á sínum gullaldar-
árum gekk undir viðurnefninu „The
Yuppie Don“, dregur nú orðið fram
lífið á því að halda fyrirlestra sem
auk annars ganga út á að koma vit-
inu fyrir unga afbrotamenn í New
York.
Franzese segir í samtali við við-
skiptatímaritið Forbes að nú gangi
starfsemi sikileysku mafíunnar í
New York að mestu leyti út á að selja
kórónuveirupróf, andlitsgrímur og
aðra bráðnauðsynlega hluti til varn-
ar þeim veirufaraldri sem nú íþyngir
heimsbyggðinni.
„Þeir græða á tá og fingri á veir-
unni og ætla sér ekki annað en að
komast yfir svo mikið fé sem hugsast
getur á eins skömmum tíma og hægt
er. Þeir kæra sig kollótta um á hverj-
um þeir svindla, þessi faraldur hefur
opnað þeim hreint gósenland,“ segir
Franzese enn fremur.
Rich Jacobs, sem starfar hjá vef-
afbrotadeild bandarísku alríkislög-
reglunnar FBI í New York, segir að
skipta megi auðgunarbrotum tengd-
um faraldrinum í tvennt. „Annars
vegar er þar um að ræða sölu á próf-
unarbúnaði og lyfjum en á hinn bóg-
inn tilboð um að fjárfesta í fyrirtækj-
um sem fólki er tjáð að framleiði
slíkan útbúnað,“ segir Jacobs við
Forbes.
Ray Kerr, fyrrverandi rannsakari
hjá FBI, tjáir viðskiptatímaritinu
enn fremur að mafíunni sé nú nauð-
ugur einn kostur að afla sér fjár eftir
öðrum leiðum en þeim hefðbundnu,
sem dæmi megi nefna að öll ólögleg
veðmál á kappleiki hafi nú að mestu
lagst af í skugga kórónuveirunnar.
Græða sem aldrei
fyrr á veirunni
Mafían í New York loðin um lófana