Morgunblaðið - 30.03.2020, Qupperneq 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MARS 2020
Einmana Vonandi er þessi ferðamaður, sem þarna hringir heim til sín, ekki eini
túristinn í Reykjavík. En þeir eru orðnir fáir sem sjást á götunum.
Eggert
Ekkert mótar
mannlífið meira
nú um þessar
mundir en sú
veira, sem kom
upp á útimarkaði
með fisk og fersk-
ar kjötvörur í
Wuhan í Kína,
sem er borg á
stærð við London.
Talið er að um 20
þúsund slíkir matarmarkaðir
séu í Kína í dag. Ekki vitum við
eðlilega nú hvenær linnir þessu
veirusmiti sem er að tröllríða
heiminum eða hve margir veikj-
ast eða deyja eða hversu gífur-
lega miklu fjártjóni veiran muni
valda um allan heim þegar upp
verður staðið. Verður hér á eft-
ir reynt að hugleiða hvers
vegna þetta gerist en vitað er
þó með nokkurri vissu að veira
sem þessi muni að óbreyttu
skjóta aftur upp kollinum og
hvers vegna það gerist og hvar
það verður.
Veira nr. 1
Árið 2002 kom upp veirusýk-
ing á matarmarkaði í suður-
hluta Kína, svonefnd SARS-
veira. Hún breiddist til 26
landa og smituðust 8.098 manns
og 774 dóu. Hún var yfirstaðin
árið eftir. Á þessum matar-
mörkuðum eru seld dýr til
slátrunar af ýmsum tegundum,
t.d slöngur, refir, apar, eðlur,
leðurblökur og ýmis sjaldgæf
villt dýr í útrýmingarhættu auk
annarra dýra. Sóðaskapurinn er
oft og tíðum slíkur að menn
hafa talið þessa matarmarkaði
vera smitsjúkdómabæli, tifandi
tímasprengju, eins og í tvígang
hefur komið í ljós. Talið var að
leðurblaka hefði smitað svokall-
aðan þefkött og þaðan í mann.
Til stóð að banna eða láta
draga úr starfsemi þessara
matarmarkaða, en þó ekki ein-
göngu vegna smit-
hættu, heldur einn-
ig með dýravernd í
huga og jafnframt
verndun villtra
dýra í útrýmingar-
hættu. Því miður
fjaraði þetta út
með hryllilegum af-
leiðingum síðar fyr-
ir umheiminn.
Veira nr. 2
Sú veira sem
kom upp á mat-
armarkaði í Wuhan í Kína og
nú geisar er talin hafa borist
frá leðurblöku í svokallað
hreisturdýr, sem er mauraæta,
og þaðan í mann. Á þessum
mörkuðum geta menn fengið
ferskt kjöt og orðið vitni að því
þegar dýrunum er slátrað og
gert að þeim, þar sem blóð,
saur og annar úrgangur flýtur
oft um gólf þótt reynt sé að
skola slíkt í burtu með vatns-
slöngu. Þá hefur iðulega sést að
verið er að nota sama hnífinn á
eitt dýrið af öðru án hanska,
svo eitthvað sé nefnt um vinnu-
brögðin þarna. Í stuttu máli þá
er sóðaskapurinn á þessum
matarmörkuðum oft og tíðum
skelfilegur og ekki fyrir við-
kvæma að fylgjast með aðför-
unum við slátrun og aðgerð á
dýrunum. Sumir markaðanna
eru undir berum himni og
hreinlæti oftar en ekki af
skornum skammti og þrifnaður
ekki í hávegum hafður. Að geta
rústað umheiminum eingöngu
með eigin sóðaskap er áhyggju-
efni.
Veira nr. 3?
Til þess að reyna að koma í
veg fyrir að umheimurinn fái
þriðju veirusendinguna frá
Kína þurfa þjóðir heims að
standa fast saman og sjá til
þess að Kínverjar banni með
öllu þessa áðurnefndu matar-
markaði. Því verði fylgt fast
eftir, hvað sem hefðbundnum
matarvenjum Kínverja líður. Of
mikið er í húfi fyrir heims-
byggðina og þá sjálfa til að
þessir matarmarkaðir fái að
starfa áfram.
Að lokum má velta því fyrir
sér hvort stjórnvöld í Kína hafi
hugleitt að bæta þjóðum heims
þótt ekki væri nema lítinn hluta
af því gríðarlega fjártjóni, sem
þessi kínverska veira nr. 2 er
að valda og mun valda. Mann-
fallið verður þó aldrei bætt eða
eyðileggingin á daglegu lífi
fólks og mannlegum samskipt-
um.
Auðvitað skal þökkuð sú að-
stoð með upplýsingum og gögn-
um sem kemur frá Kína. Maður
spyr sig þó hvort það væri t.d.
nóg að sá sem veldur gríð-
arlegum eldsvoða sem leiðir til
mikils manntjóns og fjárhags-
tjóns, verði þar með laus allra
mála sökum þess að hann
slökkti sjálfur eldinn í húsinu
sínu. Jafnframt því að hann tók
þátt í því að veita upplýsingar
um hvernig best væri að
slökkva í eldinn í hinum hús-
unum, sem eru að brenna í allri
borginni af hans völdum.
Nú er bara að vona að þessi
veira sem nú gengur yfir verði
sem fyrst yfirstaðin og heim-
urinn nái sér að mestu leyti aft-
ur, þótt hann verði líklega aldr-
ei samur og áður. Slík verður
eyðileggingin af völdum þess-
arar veiru sem mun koma niður
á hverju einasta mannsbarni í
heiminum með einhverjum
hætti og jafnframt rústa fjár-
hag þjóðanna.
Eftir Jónas
Haraldsson » Of mikið er í húfi
fyrir heimsbyggð-
ina og þá sjálfa til að
þessir matarmarkaðir
fái að starfa áfram.
Jónas Haraldsson
Höfundur er lögfræðingur.
Kínverskar veirur
Þessa dagana verð-
ur mörgum af eldri
kynslóð hugsað til
spænsku veikinnar
svonefndu sem hér
geisaði fyrir röskri öld.
Hún var enn á vörum
margra í minni æsku. Í
dagbók sína á gaml-
ársdag 1918 ritaði fað-
ir minn, skógarvörður
á Hallormsstað, eftir
að hafa getið um helstu erlenda við-
burði á árinu, svo sem lok heimsstyrj-
aldar: „Þá hafa einnig mikil tíðindi
gerst hér á landi. Má fyrst nefna sam-
bandslög Íslands og Danmerkur, sem
gengu í gildi 1. des, og ákveða full-
veldi landsins. Svo eldgosið í Kötlu í
október og fram í nóvember. Hin
skæða inflúensa sem kom til Rvk. frá
útlöndum í byrjun nóv. og hefur
breiðst út um allt vestur- og suðvest-
urland og drepið fjölda af fólki. Um
240 í Reykjavík. – Ýmislegt hefur því
orðið erfitt á árinu og verður það
lengi að gróa um heilt. Þá má nefna
hinn afskaplega grasbrest um land
allt. Meiri en elstu menn hjer muna.“
Í Wikipedia stendur: „Allt athafnalíf
lamaðist í Reykjavík. Talið er að 484
Íslendingar hafi látist úr spænsku
veikinni, þar af 258 í Reykjavík. Hinn
20. nóvember voru þeir sem létust í
sóttinni jarðsettir í fjöldagrafreitum.
Þá var veikin tekin að réna.“ – Í
ágætri grein Magnúsar Gottfreðs-
sonar, prófessors og sér-
fræðings í smitsjúk-
dómum, um spænsku
veikina í Læknablaðinu
(nr. 11 2008) kemur m.a.
fram: „Fyrir tilstuðlan
heimamanna var komið
á samgöngubanni yfir
Holtavörðuheiði til norð-
urs og ferðalög austur
yfir Jökulsá á Sólheima-
sandi voru bönnuð, en
áin var enn óbrúuð.
Þessar ráðstafanir urðu
til þess að veikin barst
hvorki til Norður- né Austurlands, en
auk þess slapp hluti Vesturlands við
veikina.“ Fram kemur þar einnig að í
Reykjavík sýktust af spænsku veik-
inni að minnsta kosti 63% íbúa og
dánarhlutfall þeirra sem veiktust var
nálægt 2,6%. Var það hlutfall hér-
lendis þá hæst meðal ungra barna,
fólks á aldrinum 20-40 ára og aldr-
aðra. Einnig urðu barnshafandi kon-
ur illa úti.
Margt er líkt með skyldum
Í grein sinni 2008 segir Magnús
Gottfreðsson einnig að rannsóknir
bendi til að veirustofninn frá 1918
hafi borist frá fuglum í menn þar sem
hann aðlagaðist með stökkbreyting-
um. Af þessum sökum sé brýnt að
fylgjast náið með þróun inflúensu-
stofna. – Kórónuveirurnar sem
COVID-19 tilheyrir eru af stórri
veirufjölskyldu og valda ýmsum sjúk-
dómum hjá mönnum og dýrum, m.a.
kvefi, en aðrar geta valdið alvarlegri
lungnabólgu sem dregur menn til
dauða. Dæmi um fyrri sjúkdóms-
hrinur sem vitað er að voru af völdum
kórónaveiru eru SARS-veiran sem
barst frá Kína á árunum 2002-2003 og
MERS í Mið-Austurlöndum á árinu
2012. Þær voru minna smitandi en
inflúensa, en ollu faröldrum á
ákveðnum svæðum og dánartíðni
þeirra sem smituðust var há. – Enn
annað dæmi er svínaflensan svo-
nefnda af stökkbreyttum H1N1-
stofni sem fór allvíða á árinu 2009,
einkum vestanhafs. Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunin brást þá hart við og
gaf út 5. stigs viðvörun og hér á landi
beitti Haraldur Briem þá sóttvarna-
læknir sér fyrir mjög ákveðnum var-
úðarráðstöfunum. Þannig náði þessi
ófögnuður sér ekki á strik hérlendis
auk þess sem til voru lyf sem talið var
að gagnast gætu. – Víða, einkum í As-
íulöndum, hefur lengi verið hefð fyrir
að leggja sér til munns afurðir alls
kyns villtra dýra sem hýsa mismun-
andi veirur. Leðurblökur eru helst
skrifaðar fyrir COVID-19, en einnig
koma til greina hreisturdýr, en afurð-
ir þeirra ganga ólöglega kaupum og
sölum. – Tíðni og útbreiðsla stökk-
breyttra veirufaraldra hefur aukist í
seinni tíð af ýmsum samþættum
ástæðum. Þar vegur þyngst hnatt-
væðing viðskipta, miklir fólksflutn-
ingar og samþjöppun manna í stór-
borgum.
Mannkyn í hnattrænni
neyðarstöðu
Yfirstandandi veirufaraldur opin-
berar brotalamir í kapítalísku efna-
hagskerfi sem hafa verið að magnast
um langt skeið en ráðandi öfl hafa
lokað augum fyrir. Þessa dagana rifja
ýmsir upp aðvörunarorð framsýnna
hugsuða sem fyrir áratugum bentu á
kerfislægar og fjölþættar brotalamir.
Dæmi um það er Kanadamaðurinn
Thomas Homer-Dixon (f. 1956) sem
þegar árið 2002 varaði við mörgum og
margslungnum brotalömum. Í ræðu
sem hann flutti við Georg Washing-
ton University undir heitinu Sync-
hronous Failure: The real danger of
the 21st Century, sagði hann m.a.:
„Þau kerfi sem við nú búum við eru
oft samtengd og hverju háð án þess
við höfum hugmynd um það. Sameig-
inlegt einkenni þeirra er óstöðugleiki.
…Mannkynið er að minni hyggju í
hnattrænni neyðarstöðu. Við stönd-
um frammi fyrir sívaxandi áhættu af
samþættum brotalömum í okkar fé-
lagslegu, efnahagslegu og lífeðlis-
fræðilegu kerfum.“ Meðal þess sem
Dixon tiltók voru fjármálakreppur,
loftslagsbreytingar og nýir og
óþekktir sjúkdómar. – Það vekur at-
hygli að í núverandi ástandi reynast
margir stjórnmálamenn viljugri en
áður að leggja við hlustir og fylgja
ráðum framsýnna vísindamanna og
sérfróðra um viðbrögð við veirupest-
inni og þorri almennings leggst á
sömu sveif. Þetta hefur nú m.a. gerst
í Þýskalandi þar sem samstaða náðist
í fylkjunum 16 um róttækar takmark-
anir á samskiptum manna til að
draga úr smithættu. Stóra spurning-
in er hvort slíkt hugarfar endist
stundinni lengur eftir að þessi veira
er gengin hjá.
Stærri áskoranir taka við
Á heildina litið eiga viðbrögðin við
COVID-19 veirunni sér enga hlið-
stæðu. Eftir er að sjá hver eftirleik-
urinn verður, hvort heimsbyggðin
nær saman um að draga lærdóma af
reynslunni og nýta hana til lausnar
öðrum og stærri viðfangsefnum eins
og loftslagsvánni. Þar skiptir öllu
máli að ofan á verði efnahagsstefna
sem ýtir undir grænar lausnir á sem
flestum sviðum til að draga úr losun
gróðurhúsalofts og koma fótum undir
allt aðra framleiðsluhætti og neyslu.
Vel getur svo farið að ársfundi Lofts-
lagssamningsins COP-26 verði frest-
að líkt og Ólympíuleikunum til að
skapa þjóðum og leiðtogum þeirra
andrými til að endurmeta stöðuna.
Framtíðarlausnin þarf að fela í sér
gerbreytta búskaparhætti frá því
sem verið hefur til samræmis við
burðarþol plánetu okkar og jöfnuð í
stað sívaxandi misskiptingar.
Eftir Hjörleif
Guttormsson » Yfirstandandi veiru-
faraldur opinberar
brotalamir í kapítalísku
efnahagskerfi sem hafa
verið að magnast um
langt skeið,
Hjörleifur Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Lærdómar af veirufaraldrinum
og verkefnin sem bíða