Morgunblaðið - 30.03.2020, Side 21
góða nærveru, brosmildur og
skemmtilegur og verður hans sárt
saknað.
Við félagarnir vottum Elvu,
fjölskyldunni og öllum aðstand-
endum innilegustu samúð.
Guðmundur Björnsson,
Gunnar Valdimarsson,
Gylfi Jónsson,
Kristján Indriðason,
Ólafur Karlsson.
Góður hópur gamalla skíða-
manna úr skíðadeild ÍR kveður nú
góðan félaga, sem til margra ára
hefur ávallt stutt skíðadeild ÍR og
ekki bara deildina heldur skíða-
íþróttina í heild sinni. Ekki átti
hann nú langt að sækja áhugann
því faðir hans, Hermann Stefáns-
son, íþróttakennari við Mennta-
skólann á Akureyri, var þekktur
fyrir störf sín fyrir skíðaíþróttina
og rétt að geta þess að hann átti
hugmyndina að nöfnunum svig og
brun, sem áður var kallað króka-
hlaup og brekkuskrið.
Þessi hópur hefur í tugi ára
stundað saman skíði bæði hér
heima og erlendis, einnig golf og
göngutúra og fleira. Alla tíð hefur
Birgir verið hinn ljúfi félagi í
hópnum ásamt Elvu sinni, þá hafa
börnin þeirra stundað skíði og
verið keppnisfólk í íþróttinni. Á
áttunda áratugnum stofnaði
skíðadeildin verslun með notaðan
skíðabúnað sem reyndist erfitt að
reka með sjálfboðaliði og tók Birg-
ir við þessum rekstri og rak hann í
mörg ár. 1985 var Birgir kjörinn
formaður Skíðadeildar ÍR og
gegndi því embætti í níu ár eða til
ársins 1994. Birgir hlaut margs
konar viðurkenningar fyrir störf
sín að félagsmálum og 1997 var
hann sæmdur gullmerki ÍR.
Birgir var hvers manns hugljúfi
í góðum hópi og þekktur fyrir sinn
góða húmor. Þá var hann þannig
gerður að gott þótti til hans að
leita og var hann ávallt tilbúinn að
leysa hvers manns vanda. Við vin-
irnir söknum
þessa ljúfa manns sárt og skilur
hann eftir stórt skarð í hópnum.
Við vottum Elvu og fjölskyldunni
samúð við fráfall þessa ljúfa
drengs.
Fyrir hönd hópsins,
Þórir Lárusson.
Kveðja frá Skíðadeild ÍR
Félagar í Skíðadeild ÍR sjá nú á
bak góðum félaga. Birgir Her-
mannsson var einn af ötulustu fé-
lagsmönnum okkar um langa hríð.
Hann sat í stjórn deildarinnar í
mörg ár og formaður frá árinu
1985 til 1994. Á þessum árum var
öll starfsemi skíðadeildarinnar í
Hamragili. Starfið útheimti mikla
sjálfboðavinnu og þar lá Birgir og
hans fjölskylda ekki á liði sínu.
Birgir lagði af mörkum margar
vinnustundir, hvort heldur var að
sinna viðhaldi við mannvirki, við-
gerðir á skíðalyftum, vinna við
skíðamót eða fararstjórn. En fyrst
og fremst var hann góður félagi
allra iðkenda og þeir sem voru að
hefja æfingar og keppni áttu
stuðning hans og hvatningu vísa.
Þær breytingar urðu á starf-
semi Skíðadeildar ÍR árið 1992 að
gerður var samningur við Reykja-
víkurborg um að ÍTR tæki yfir
rekstur skíðasvæðisins í Hamra-
gili. Það var ekki síst fyrir tilstuðl-
an Birgis að slíkur samningur
náðist. Það má segja að umrædd-
ur samningur hafi gert það að
verkum að hægt var að halda
áfram góðu starfi í þágu skíða-
íþróttarinnar.
Vegna aðstöðuleysis tíðkaðist í
mörg ár að stjórnarfundir væru
haldnir í heimahúsi, í formannstíð
Birgis nutu stjórnarmenn rausn-
arlegra veitinga á heimili hans og
Elvu konu hans.
Elvu, börnum þeirra Birgis og
öðrum aðstandendum sendum við
innilegar samúðarkveðjur.
Skíðahreyfingin á Birgi Her-
mannssyni margt að þakka. Bless-
uð sé minning mæts manns.
Fyrir hönd Skíðadeildar ÍR,
Gísli Reynisson formaður.
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MARS 2020
✝ Birgir Sím-onarson fædd-
ist í Klakksvík í
Færeyjum 5. júlí
1948. Hann lést á
gjörgæsludeild
Landspítalans við
Hringbraut 12.
mars 2020. Birgir
ólst upp í Klakks-
vík til 6 ára aldurs
er móðir hans
Anna Pálína Jóns-
dóttir flutti til Íslands með
börnin sín þrjú. Móðir hans
settist að á Sauðhúsum í Lax-
árdal í Dalasýslu eftir að hún
giftist Agli Jóni Benedikts-
syni bónda og hreppstjóra.
Þar ólst Birgir
upp í hópi systk-
ina sinna sem eru
Johnny, Helen,
Benedikt, Jón og
Herdís.
11. september
1971 giftist Birgir
Maríu Kristínu
Lárusdóttur og
eignuðust þau
börnin Nönnu Pál-
ínu, Lárus Pál og
Kristínu Rós. Barnabörnin
eru tvö, Birgir Már og Birta
Líf.
Útförin fór fram í kyrrþey
frá Lindakirkju 19. mars
2020.
Birgir bróðir var mikið ljúf-
menni og vinur. Þegar við vorum
börn í sveitinni og þurftum að
gera þar viðvik, reka kýrnar eða
raka túnin, var ég duglegri við
að laumast frá verki og leika
mér, hann stóð sína vakt eins og
ávallt síðar.
Birgir hætti í skóla eftir einn
vetur í Reykholti og fór á sjóinn.
Hann var á vertíð og á milli-
landaskipum, þar á meðal Gull-
fossi, sem messagutti og þar
kynntist hann Maríu Lárusdótt-
ur lífsförunaut sínum. Hann kom
síðan í land og starfaði hjá
slökkviliði höfuðborgarsvæðis-
ins. Stundaði leigubílaakstur
sem aukavinnu á frívöktum.
Hann fór í Stýrimannaskólann
og öðlaðist réttindi til skipstjórn-
ar. Fór aftur á sjóinn, starfaði
þar sem stýrimaður og síðar
skipstjóri á Ísberginu og Jarlin-
um. Í seinni tíð rak hann leigubíl
á eigin vegum.
Á fyrri hluta síðasta árs
greindist hann með krabbamein
og var búinn að sigrast á því og
gekk ótrúlega vel, en nú fyrir
skömmu fékk hann illvíga
lungnabólgu sem ekki varð við
ráðið.
Birgir, þín er sárt saknað. Þú
ætlaðir að fara að njóta elliár-
anna í ferðalögum og Sauðhúsa-
hvamminum. Far þú í friði, bróð-
ir.
Nú ertu horfinn í himnanna borg
og hlýðir á englanna tal.
Burtu er kvíði, sjúkdómur, sorg
í sólbjörtum himnanna sal.
Þeim öllum sem trúa og treysta á
Krist
þar tilbúið föðurland er.
Þar ástvinir mætast í unaðarvist
um eilífð, ó, Jesú, hjá þér.
(Ingibjörg Jónsdóttir)
Kveðja, þinn bróðir,
Johnny Símonarson.
Birgir Símonarson
✝ Haukur V.Guðmundsson
fæddist í Reykjavík
12. júlí 1939. Hann
andaðist á lungna-
deild Landspítalans
hinn 11. mars 2020.
Hann var sonur
Þorbjargar Magn-
úsdóttur, f. 14.5.
1903, d. 21.12.
1978, og ættleiddur
af Guðmundi G.
Jónssyni, f. 18.2. 1905, d. 1992.
Systkini Hauks eru Anna,
Vagnbjörg, Magnús Þorbergur,
Þorkell, Jakob, Vilborg, Oddný
Pálína og Jóhanna Sæunn. Eft-
irlifandi systkin eru
Anna og Oddný
Pálína.
Haukur kvæntist
Ernu Sampsted, f.
16. maí 1940, d. 3.
maí 2016. Börn
þeirra eru: 1) Guð-
mundur Óskar, f. 2.
mars 1959, kvænt-
ur Guðríði Sigurð-
ardóttur, f. 20.
september 1960.
Börn þeirra eru Erna Ásta, f. 20.
maí 1983, Haukur, f. 17. janúar
1987, og Alda Björk, f. 21. júlí
1991. 2) Kristján, f. 24. júní
1963, maki Inga R. Guðgeirs-
dóttir, f. 30. maí 1959, d. 19. apr-
íl 2017. 3) Alda Hanna, f. 27. des-
ember 1969, maki Vignir Diego,
f. 1. apríl 1965. Börn þeirra eru
Kristján Freyr, f. 25. febrúar
1996, Andri Þór, f. 29. desember
1999, og Edda Ósk, f. 13. apríl
2004.
Haukur byrjaði að vinna sem
vörubílstjóri hjá Þrótti, vann
síðan sem leigubílstjóri í mörg
ár. Eftir það vann hann ýmis
störf þar til hann hóf störf hjá
Golfklúbbi Reykjavíkur. Hann
tók að sér ýmis tilfallandi störf
eins og að valta völlinn. Árið
1990 fékk hann fasta stöðu sem
vallarstjóri, seinna meir sá hann
um vélar klúbbsins og valtaði
völlinn áfram alveg fram á síð-
asta ár.
Í ljósi hinna óvenjulegu að-
stæðna í samfélaginu um þessar
mundir fór útförin fram í kyrr-
þey 27. mars 2020.
Við kveðjum okkar yndislega
og ástkæra föður.
Elsku besti pabbi, nú ertu
kominn í faðm mömmu, sameinuð
á ný. Þú fórst alltof fljótt frá okk-
ur eins og mamma. Þinn tími var
ekki kominn. Fótunum var kippt
snöggt undan þér og ekki átti
spítalavistin við þig. Hraustur
maður alla tíð og dugnaðarfork-
ur. Við söknum þín sárt, minn-
umst allra þeirra góðu stunda
sem þú gafst okkur. Minningarn-
ar eru margar sem þú skilur eftir
hjá okkur elsku pabbi. Hvíl þú í
friði. Elskum þig.
Pabbi
Söknuður um æðar rennur,
horfi til baka
á liðnar stundir
sem ekki voru.
Aðeins ósk í mínu hjarta,
ég finn til.
Nú okkar tími
liðinn er,
aðeins minningar
eftir standa.
Þína hönd í mína set,
þakka fyrir
það sem var.
Nú ég veit
en kannski of seint
að mér gafstu allt
sem þér var unnt.
Elsku pabbi
nú er tími kominn
til að kveðja,
þakka fyrir
þínar gjafir
sem gafstu mér.
(HÓ)
Alda Hanna Hauksdóttir,
Kristján Hauksson,
Guðmundur Óskar Hauks-
son og fjölskyldur.
Haukur V.
Guðmundsson
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
KJARTAN KJARTANSSON,
Strikinu 4, Garðabæ,
trillukarl og fv. fangavörður,
lést á Landspítalanum Vífilsstöðum
7. mars.
Útför hefur farið fram.
Erla K. Kjartansdóttir Ólafur Þorvaldsson
Vilhjálmur S. Kjartansson María Svavarsdóttir
Kjartan Örn Kjartansson Maren Davíðsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Kær eiginmaður minn, faðir okkar,
stjúpfaðir, tengdafaðir og afi,
ARNFINNUR BERTELSSON
byggingarverkfræðingur,
Sæbraut 12,
Seltjarnarnesi,
lést á heimili sínu síðastliðinn fimmtudag. Í
ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu fer útförin
fram í kyrrþey.
Valdís Kjartansdóttir
Arndís Vala Arnfinnsdóttir
Kjartan Arnfinnsson Sigríður M. Sigurðardóttir
Bertel Ingi Arnfinnsson
Sigrún Þormar Gunnar Rögnvaldsson
Kristín Diljá Karlsdóttir
Ísabella Eldey Kjartansdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
JÓNINNA MARGRÉT PÉTURSDÓTTIR,
Hveragerði,
lést á Landspítalanum mánudaginn 23.
mars síðastliðinn.
Reynir Mar Guðmundsson
Pétur Reynisson Áslaug Einarsdóttir
Jón Vilberg Reynisson Guðný Ísaksdóttir
Þröstur Reynisson
barnabörn, barnabarnabörn og Bella
✝ Hannes Eyj-ólfsson fæddist
á Bjargi Borg-
arfirði eystra 15.
desember 1927.
Hann lést á
hjúkrunarheim-
ilinu Dyngju á Eg-
ilsstöðum 27. febr-
úar síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Eyjólfur
Hannesson, f. 1892,
d. 1977 og Anna Guðbjörg
Helgadóttir, f. 1898, d. 1988.
Þau eignuðust 6 börn: Sigríði
Ingibjörgu, Helga Sigurbjörn,
Helga, Jónbjörgu Sesselju og
Kristínu Sigurlaugu sem er ein
eftirlifandi af þeim systkinum.
Einnig ólst upp hjá foreldrum
Hannesar systursonur hans,
Rúnar Eyjólfur Geirsson.
Hannes ólst upp í foreldra-
húsum og stundaði nám við
barnaskólann á Borgarfirði
Hann kvæntist Gróu Stefaníu
Gunnþórsdóttur frá Hreims-
stöðum í Hjaltastaðaþinghá 2.
apríl 1956.
Hannes og Gróa bjuggu til að
byrja með á Bjargi hjá for-
eldrum Hannesar, en árið 1956
keyptu þau Læknishús, síðar
Sæból, og bjuggu þau þar til
ársins 2004, er þau fluttu til
Egilsstaða.
Þau eignuðust 4 börn: Eyþór,
f. 28. júní 1955, Vilborgu, f. 16.
ágúst 1958, Sigurð, f. 22. sept-
gegndi formennsku slysavarna-
deildarinnar Sveinunga og einn-
ig var hann formaður áfengis-
og tóbaksvarna um tíma.
Hann gegndi starfi vélgæslu-
manns hjá Rarik um árabil.
Árið 1967 keypti hann sér
vörubíl sem hann vann á við
vegagerð, framkvæmdir við
nýju höfnina við Hafnarhólma
og annað sem til féll til ársins
1980. Þá fór hann að starfa hjá
Flugmálastjórn og sá um snjó-
hreinsun á flugvellinum í nokk-
ur ár.
Seinni árin fór hann svo að
dunda sér við rennibekk og
járnsmíðar þar sem ýmsir fal-
legir hlutir urðu til, t.d. lampa-
fætur og kertastjakar sem lentu
yfirleitt í jólapökkum barnanna.
Músík átti hug Hannesar,
hann eignaðist snemma sína
fyrstu harmonikku og spilaði
ásamt bróður sínum Helga á
dansleikjum á Borgarfirði.
Árið 2004 fluttu þau hjónin til
Egilsstaða í íbúð aldraðra en
héldu áfram að fara á Borgar-
fjörð á sumrin og dvelja þar.
Árið 2011 veikist Gróa af alz-
heimer og annaðist Hannes
hana að mestu leyti til ársins
2013, eða þar til hún fór á alz-
heimer-deildina á Seyðisfirði.
Þau sameinuðust svo aftur
eftir að Gróa kom á Hjúkrunar-
heimilið Dyngju á Egilsstöðum,
en þangað fór Hannes árið
2016. Þar nutu þau samvista
hvort annars til ársins 2018
þegar Gróa lést.
Útförin hefur farið fram í
kyrrþey.
ember 1961 og
Önnu Sigurlaugu,
f. 12. janúar 1964.
Barnabörnin eru
8 og barnabarna-
börnin orðin 11 og
2 á leiðinni.
Hannes vann hin
ýmsu störf um æv-
ina, var í bygging-
arvinnu í Reykja-
vík og síðar á
Eiðum.
Árið 1950 fór hann á jarð-
ýtunámskeið á Egilsstöðum og
þá um vorið kom fyrsta jarð-
ýtan til Borgarfjarðar og þá um
sumarið vann Hannes við gerð
vegar um Njarðvíkurskriður og
Vatnsskarð.
Hann byggði sér verstæði ár-
ið 1959 með hjálp föður síns og
fór að sinna viðgerðum á bílum
og traktorum heimamanna og
ferðamanna, ásamt fjölmörgum
öðrum viðgerðum. Einnig sá
hann um pípulagnir og járn-
smíði ýmiss konar fyrir sveit-
ungana.
Í kringum 1950 lagði hann
fyrstu miðstöðvarlögnina hjá
foreldrum sínum á Bjargi.
Árið 1979 fór hann til
Reykjavíkur á kyndingar-
námskeið og í framhaldi af því
sá hann um viðhald og uppsetn-
ingu á rafkyndingu heima-
manna.
Um tíma var hann húsvörður
í félagsheimilinu Fjarðarborg,
Elsku hjartans pabbi okkar.
Komið er að kveðjustund og
allar yndislegu minningarnar
streyma um hugann.
Alltaf gafstu okkur fjölskyld-
unni tíma, þrátt fyrir mikla
vinnu.
Við minnumst allra ferðalag-
ana sem við fórum með ykkur
mömmu upp um fjöll og firn-
indi þar sem við tíndum steina,
settumst niður í fallega laut og
borðuðum nestið sem mamma
hafði útbúið. Flesta sunnudaga
fórstu með okkur eitthvað,
ekki alltaf langt, en minna var
meira í ykkar huga og allir nutu
þess að fara í útilegu hvort sem
það var inn að Þverá norður í
Njarðvík eða eitthvað lengra.
Þú varst alltaf til staðar fyrir
okkur og þegar barnabörnin
komu tókstu þeim opnum örm-
um og eiga þau líka minningar
um gönguferðir og útilegur
ásamt nestisboxunum hennar
mömmu. Það eru forréttindi að
hafa alist upp á þann máta sem
þið bjugguð okkur systkinun-
um.
Ég kveð þig, minn faðir, nú komin er
stund sem kveið ég svo fyrir.
En þú ert nú horfinn á feðranna fund
með fögnuði tekið á himneskri grund.
Í söknuði sit ég og skrifa.
Þín lundin var sköpuð af
gimsteinagerð
og gæska úr hjartanu sprottin.
Mig langar að þakka þér farsæla ferð
með friðsælli gleði ég kveðja þig verð.
Nú geymir þig dýrðlegur Drottinn.
(Birgitta H. Halldórsdóttir)
Eyþór, Vilborg,
Sigurður og Anna.
Hannes Eyjólfsson
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Minningargreinar