Morgunblaðið - 30.03.2020, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MARS 2020
70 ára Haraldur er
Reykvíkingur, er líffræð-
ingur frá HÍ og doktor í
lífefnafræði frá Univers-
ity of Sussex. Haraldur
hefur unnið við rann-
sóknir bæði fyrir Land-
spítalann og HÍ en er að
hætta störfum.
Maki: María Vigdís Kristjánsdóttir, f.
1954, Cand.mag í ensku og hefur starfað
sem kennari og þýðandi.
Börn: Högni, f. 1983, Snorri, f. 1986, Rak-
el, f. 1989, og Gunnar, f. 1993. Barna-
börnin eru fimm.
Foreldrar: Halldór Matthíasson, f. 1915,
d. 1975, skrifstofustjóri hjá Vita- og
hafnamálaskrifstofunni, og Lilja Þórarins-
dóttir, f. 1915, d. 2006, húsmóðir. Þau
voru búsett í Reykjavík.
Haraldur
Halldórsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ert í miðjum umbrotatíma og
þarft að hafa þig alla/n við til þess að koma
heilskinnuð út úr breytingunum. Forðastu
stóryrtar yfirlýsingar um líf annarra.
20. apríl - 20. maí
Naut Þér er eiginlegt að sýna umhyggju
þar sem þér þykir verulega vænt um þína
nánustu. Núið er aldrei of snemmt ef út í
það er farið, því maður veit aldrei hvort „á
morgun“ er of seint.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Nú þarftu að líta til baka, það
skiptir miklu máli. Sýndu því tillitssemi og
virtu tilfinningar annarra.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hafðu ekki áhyggjur þótt pyngjan
sé létt því þú hefur svo mikið að gefa öðr-
um af sjálfri/um þér. Bjartsýnislegt viðhorf
laðar aðra að manni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Láttu ekki aðra stela hugmyndum þín-
um því þær eiga eftir að reynast þér gott
veganesti til frekari starfsframa. Láttu þínar
þarfir ganga fyrir núna til tilbreytingar.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ef þú færð tækifæri til þess að hafa
áhrif á eða vingast við erfiða manneskju
áttu að grípa tækifærið og hafa hraðan á.
23. sept. - 22. okt.
Vog Viðvarandi jákvæðni í hugsun á eftir að
færa þér allt sem þú óskar þér. Vertu skiln-
ingsríkur við aðra og hlustaðu vandlega á
ráð þeirra.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þér er svo mikið í mun að
sannfæra aðra um þínar eigin skoðanir að
hið andstæða gæti gerst. Reyndu að láta
ekki drunga og leiðindi annarra smita þig.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Leiddu hugann að því hvar þú
kýst að vera eftir nokkur ár og hvað þú
þarft að gera til að komast þangað. Vertu
þolinmóður því þú hefur allt með þér.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er mikil hætta misskilningi í
dag. Lausnin felst í því að finna leið til að
samræma viðhorf þín og viðhorf annarra.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú gætir lent í óþægilegri að-
stöðu er þú leitast við að aðstoða vin í
vanda. Ef allir leggjast á eitt og vinna sam-
an gengur allt betur.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er ástæðulaust að fá sekt-
arkennd yfir öllu sem þú gerir fyrir sjálfa/n
þig. Gamall vinur leitar til þín og á það inni
hjá þér að þú hjálpir honum.
Húnvetninga á Búnaðarþing Bún-
aðarfélags Íslands. „Þarna urðu
störfin fjölbreytt og tóku sinn tíma.
Þar má sérstaklega taka til samein-
ingu BÍ og Stéttarsambandsins, sem
varð að veruleika í ársbyrjun 1995 en
fulltrúi á aðalfund Stéttarsamband
bænda er haldinn var á Laugarvatni.
Það mun hafa farið nokkuð fyrir hon-
um á þessum fundum, en hann hætti
sem fulltrúi árið 1993. Árið 1987 var
Gunnar kosinn sem fulltrúi Vestur-
T
ómas Gunnar Sæmunds-
son er fæddur 30. mars
1945 í Hrútatungu.
Gunnar, eins og hann
hefur verið kallaður í
gegnum tíðina, ólst upp hjá for-
eldrum sínum í Hrútatungu í Hrúta-
firði, ásamt eldri systur sinni Sól-
veigu Sigurbjörgu, kallaðri Veigu.
Foreldrar Gunnars eignuðust einnig
dreng árið 1942. Hann var skírður
Tómas Gunnar en hann dó eftir mikil
veikindi rétt tæplega níu mánaða
gamall. Þetta varð foreldrunum
mikið áfall.
Gunnar fór í Barnaskóla Bæjar-
hrepps á Borðeyri. Enginn skóli var
þá starfræktur austan Hrútafjarðar,
þar sem ekki voru nema tvö börn á
skólaaldri. Ýmsar aðstæður munu
hafa valdið því að Gunnar fór ekki í
Héraðsskólann á Reykjum, en þang-
að fóru flestir að loknu barnaskóla-
námi. Gunnar vann því heima við bú-
störfin. Eins fór hann í ýmsa vinnu
sem til féll. Gunnar tók við búskapn-
um í Hrútatungu árið 1970 og var
með sauðfjárbúskap
Á þessum árum voru einnig í
Hrútatungu Veiga systir Gunnars og
hennar maður Jón. B. Ólafsson. „Jón
var þá farinn að sjá að mestu um
snjómokstur á Holtavörðuheiði og
var starfsmaður Vegagerðarinnar.
Það mun hafa verið í ársbyrjun 1962
að Jón Ólafsson fékk mig til að vera
sér til aðstoðar á heiðinni,“ segir
Gunnar. „Ekki mun ég hafa leitt hug-
ann að því að við þetta myndi ég
vinna næstu árin.“ Gunnar vann við
snjómoksturinn til vors árið 2000 og
var þá búinn að vinna á flestum þeim
tækjum sem notuð voru til snjó-
moksturs á þeim árum. Segir Gunnar
að það mætti segja langa sögu af því.
Fljótlega fór Gunnar að gefa sig að
félagsmálum. Hann var formaður
Ungmennafélagsins Dagsbrúnar og
síðar formaður Ungmennasambands
Vestur-Húnavatnssýslu og var hann
það í nokkur ár. Árið 1982, á aðal-
fundi Búnaðarsambands Vestur-
Húnavatnssýslu, var Gunnar kosinn
formaður. Þarna varð nýr kafli í ævi
Gunnars og varð upphaf félagsmála-
starfs hans fyrir bændur.
Árið 1985 var Gunnar kosinn sem
mikil vinna lá þar að baki.“ Gunnar
gaf ekki kost á sér í fyrstu stjórn
sameinaðra samtaka en þremur ár-
um síðar var hann kjörinn í hana og
sat í stjórn fram að Búnaðarþingi
2007. Á þessum árum sat hann í
Gunnar Sæmundsson, fyrrverandi bóndi í Hrútatungu – 75 ára
Ljósmynd/Sigurjón Tómasson
Hrútatunga Ætt Gunnars bjó í Hrútatungu í hálfa aðra öld. Myndin er frá árinu 2018.
Fyrirferðarmikill á fundum
Ljósmynd/Áskell Þórisson
Fjölskyldan Sigrún Erna, Sigurjón, Þorgerður, Guðmundur, Arndís,
Frímann og T. Gunnar á sextugsafmæli Gunnars.
Afmælisbarnið Gunnar.
Ljósmynd/Áskell Þórisson
60 ára Gunnlaugur
er Skagamaður,
fæddur og uppalinn
á Akranesi og býr
þar. Hann er vél-
stjóri að mennt frá
Vélskóla Íslands og
starfar sem vél-
stjóri á dráttarbátum hjá Faxaflóa-
höfnum.
Maki: Rut Karol Hinriksdóttir, f.
1967, sjúkraliði á Sjúkrahúsinu á
Akranesi.
Börn: Rakel, f. 1991, Pálmi, f. 1993,
og Birkir, f. 2001.
Foreldrar: Pálmi Finnbogason, f.
1931, d. 2018, vélvirki hjá Þorgeiri &
Ellert og ESSO, og Fjóla Lind Gunn-
laugsdóttir, f. 1939, húsmóðir. Hún er
búsett á Akranesi.
Gunnlaugur
Pálmason
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is