Morgunblaðið - 30.03.2020, Side 27
um í ágætri kvikmynd: Glory Road.
Chamberlain fékk þó tækifæri ár-
ið 1959 hjá Philadelphia í NBA.
Chamberlain átti feril í NBA sem
er á margan hátt einstakur. Þótt
frægastur sé fyrir 100 stiga leikinn
árið 1962 gegn New York Knicks.
Hér má auðvitað hnykkja á því að
3-stiga línan kom til sögunnar löngu
eftir að Chamberlain hætti að spila.
Chamberlain gekk síðar til LA
Lakers eða árið 1968 og lék þar síð-
ustu fimm ár ferilsins. Myndaði þar
hörkulið ásamt kunnum köppum
eins og Jerry West og Elgin Baylor.
Þeir urðu meistarar árið 1972 en
þurftu nokkrum sinnum að játa sig
sigraða gegn Boston Celtics. Þá
varð líklega til fyrir alvöru hinn
frægi ríkur á milli Lakers og Cel-
tics.
48,5 mínútur að meðaltali
Eins og áður segir eru tölurnar
frá ferli Chamberlain lygilegar. Á
þrettán ára ferli í NBA skoraði
hann 31.419 stig eða 30 að með-
altali í leik. Sem stendur er hann í
7. sæti þeirra sem skorað hafa flest
stig í deildinni. Fráköstin eru 23 að
meðaltali og stoðsendingarnar 4,4.
Ekki var farið að telja varin skot á
þessum árum en sú tala hefði verið
fróðleg því Chamberlain hafði aug-
ljóslega mikla yfirburði nærri körf-
unni.
Kappinn var 216 cm á hæð en
virðist hafa verið mjög vel á sig
kominn líkamlega því hann fékk
litla hvíld í leikjum. Sú staðreynd
er nánast yfirgengileg að tímabilið
1961-62 lék hann að meðaltali 48,5
mínútur yfir heilt tímabil. Var sem
sagt nánast aldrei tekinn út af og
lék auk þess í nokkrum framleng-
ingum sem koma meðaltalinu yfir
48 mínúturnar.
Wilt Chamberlain lést hinn 12.
október árið 1999 eða aðeins 63 ára
gamall. Hjartveiki dró hann til
dauða en árið 1999 hafði heilsu
hans hrakað verulega. Hjartatrufl-
anir gerðu fyrst vart við sig árið
1992 hjá kappanum. Hans verður
lengi minnst í NBA-deildinni en
fjögur lið í Bandaríkjunum hafa
tekið treyju númer 13 úr umferð og
hengt upp honum til heiðurs. Eru
það Kansas-háskólinn, Golden
State Warriors, Philadelphia 76ers
og Los Angeles Lakers.
AFP
Goðsögn Miðherjinn Wilt Chamberlain með ennisbandið í búningi Los Angeles Lakers.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MARS 2020
þjálfara og leikmenn í meist-
araflokki í knattspyrnu, sem allir
hafa samþykkt að lækka tímabundið
í launum. Þá segir hann félagið
þakklát fólkinu sínu, sem sýnir þess-
um erfiðu tímum mikinn skilning.
„Við erum búnir að taka allan
meistaraflokkinn í fótboltanum, sem
er auðvitað stærsti hlutinn af þessu í
dag. Við höfum rætt við fram-
kvæmdastjóra, þjálfara og leikmenn
og allir hafa samþykkt að taka á sig
launalækkun næstu átta mánuði.
Við erum kannski það félag sem er
komið lengst í þessu,“ sagði Sævar
og hrósaði öllum innan félagsins fyr-
ir þann skilning sem þeir hefðu sýnt.
„Ég er ótrúlega ánægður og stolt-
ur af því hvernig fólk hefur brugðist
við. Það eru allir að hjálpa félaginu í
gegnum þetta og skilja aðstæðurnar
sem eru í gangi.“
Laun munu vera
lægri í nokkur ár
Sú umræða hefur verið í sam-
félaginu um nokkurn tíma að íslensk
fótboltafélög greiði of há laun til að
reksturinn beri sig og tók Guðni
Bergsson, formaður KSÍ, til að
mynda undir það að menn þyrftu að
fara að gæta að sér hér á landi í
þeim efnum. Sævar segir þetta allt
aðra umræðu en engu að síður sé al-
veg ljóst að laun munu lækka og að
það muni taka félög einhvern tíma
að jafna sig. „Það sem mun gerast
núna er að gríðarlega mörg félög,
sem verða af tekjum, þurfa að semja
upp á nýtt og væntanlega skera nið-
ur hjá sér. Laun munu lækka og það
mun taka félög nokkur ár að komast
á sama stað og þau voru áður en
þetta ástand skall á.“
Hvað KA varðar mun félagið
þrauka í þessu ástandi. Engu að síð-
ur er óvissan slík að menn gætu
þurft að setjast niður og endur-
skoða alla hluti upp á nýtt, vari
þetta ástand lengur en reiknað er
með.
„Við gerum ráð fyrir því að með
þessum breytingum munum við
halda velli en það er ekkert meira
en það. Við áætlum að þetta ástand,
þetta algjöra stopp vari í mars, apríl
og maí. Ef þetta fer að fara inn í
júní, júlí þá þurfa menn að setjast
yfir hlutina upp á nýtt. Stór tekju-
þáttur hjá okkur er N1-mótið sem
er í byrjun júlí. Ef við þurfum að
fresta því eða fella það niður þarf að
endurskoða alla hluti upp á nýtt. En
fram að því erum við búnir að koma
okkur í var,“ sagði Sævar Pétursson
við Morgunblaðið í gær.
KA búið að koma sér
í var í ljósi aðstæðna
Tímabundnar launalækkanir ræddar við þjálfara og leikmenn
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Akureyri KA-fólk snýr nú bökum saman til að takast á við samdrátt í rekstri félagsins á tímum kórónuveirunnar.
BAKSVIÐ
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@ mbl.is
Íþróttahreyfingin stendur frammi
fyrir erfiðum mánuðum vegna nú-
verandi ástands en kórónuveiran
herjar nú á allt þjóðfélagið.
Íþróttafélög treysta alla jafnan á
tímabundna innkomu af viðburðum
sem ekki geta lengur farið fram.
Samkomubann er í gildi á Íslandi
og allt reynt til að hefta útbreiðslu
veirunnar sem fer nú um heiminn
eins og eldur í sinu. Morgunblaðið
heyrði í Sævari Péturssyni, fram-
kvæmdastjóra KA, til að vita
hvernig Akureyrarfélagið er að
bregðast við, nú þegar í harðbakk-
ann slær.
„Rekstrarumhverfið er nátt-
úrlega að gerbreytast. Það er mik-
ið verið að fresta tekjum sem við
gerðum ráð fyrir í viðburðum og
mótahaldi og slíku. Við vitum ekki
nákvæmlega í dag hvað mun svo
fara fram síðar meir en við erum til
dæmis með tvö, þrjú krakkamót
sem búið er að flauta af. Þetta hef-
ur bein áhrif á þá peninga sem við
vorum búin að áætla inn í félagið
núna í mars og apríl,“ sagði Sævar
en félagið mun verða af töluverðum
tekjum á meðan ástandið í þjóð-
félaginu er með þessum hætti.
Hafa rætt við alla
„Þetta eru um 65% af tekjum fé-
lagsins þessa tvo mánuði sem er
einfaldlega bara óvissa um. Við
gerum okkur auðvitað vonir um að
eitthvað af því komi síðar á árinu
en við þurfum engu að síður að
stilla okkur af og bregðast við
þessu.“
Sævar segir KA sennilega
lengra komið en flest félög í að
bregðast við þessu breytta um-
hverfi. Búið er að ræða við alla
Willum Þór Willumsson skoraði
mark BATE Borisov í 1:2-tapi gegn
Slavia Mozyr í hvítrússnesku úrvals-
deildinni í knattspyrnu á laugardag.
Willum kom BATE yfir á 10. mínútu en
það dugði skammt þar sem heima-
menn í Slavia Mozyr svöruðu með
tveimur mörkum sitt hvorum megin
við hálfleikinn. Hvítrússneska deildin
er sú eina sem enn er í gangi í Evrópu
og hafa Willum og félagar farið illa af
stað og tapað báðum leikjum sínum til
þessa.
Knattspyrnumaðurinn Harry Kane
viðurkenndi í gær við Sky Sports að
hann gæti yfirgefið Tottenham einn
daginn. Hefur hann verið orðaður við
félög á borð við Real Madrid.
Xavi, einn besti miðjumaður í sögu
spænska landsliðsins og stórliðsins
Barcelona, segist vera tilbúinn að taka
við þjálfun liðsins en hann fundaði
með forráðamönnum félagsins fyrr á
árinu. „Ég vil snúa aftir til Barcelona
og er mjög spenntur fyrir því,“ sagði
Xavi í viðtali við La Vanguardia. „Nú
þegar ég er búinn að koma mér í þjálf-
un tel ég mig geta fært leikmönnum
liðsins eitthvað.“
Leikmenn og þjálfarar ítalska knatt-
spyrnurisans Juventus hafa samþykkt
að taka á sig launalækkun næstu fjóra
mánuðina á meðan kórónuveiran herj-
ar á Ítalíu og allan heiminn. Í tilkynn-
ingu frá félaginu segir að þjálfarar og
leikmenn, þar á meðal aðalþjálfarinn
Maurizio Sarri og Cristiano Ronaldo,
muni taka á sig launalækkun í mars,
apríl, maí og júní. Mun þetta spara fé-
laginu um 90 milljónir evra.
Enska knattspyrnufélagið Chelsea
virðist ætla að hafa betur í baráttunni
um að semja við ungstirnið Jude Bell-
ingham frá Birmingham en táning-
urinn virtist vera á leið til Manchester
United. Bellingham, sem er 16 ára,
hefur spilað 25 leiki fyrir Birmingham í
B-deildinni í vetur og vakið mikla at-
hygli en hann heimsótti æfingasvæði
United fyrir nokkrum vikum og hitti
meðal annars sir Alex Ferguson sem
reyndi að telja drenginn á að semja við
félagið.
Norski táningurinn Erling Braut
Haaland er nú sagður efstur á óska-
lista spænska stórliðsins Real Madrid
en drengurinn hefur skorað 12 mörk í
fyrstu 11 leikjum sínum með Dort-
mund eftir að hann færði sig til Þýska-
lands um áramótin síðustu.
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóra
Liverpool, fannst glæpsamlegt að leik-
urinn gegn Atlético Madrid í Meist-
aradeild Evrópu hafi verið spilaður
þrátt fyrir að kórónuveiran hafi verið
farin að breiða vel úr sér um Evrópu.
Leikurinn var spilaður
fyrir troðfullum An-
field-leikvangi 11. mars
en skömmu síðar var
öllum fótbolta aflýst til
að sporna við út-
breiðslu veirunnar.
Liverpool tapaði
leiknum 3:2 en
Klopp sást meðal
annars skamma
stuðningsmenn
sem vildu taka í
hendur leikmanna
og þjálfara er þeir
gengu inn á völlinn.
Eitt
ogannað