Morgunblaðið - 08.04.2020, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2020
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Það er búið að vera alveg brjálað
að gera. Það hefur komið
skemmtilega á óvart,“ segir Vil-
hjálmur Sturla Eiríksson, fram-
kvæmdastjóri sölusviðs hjá A4, um
undanfarnar vikur. Að hans sögn
tók salan kipp eftir að kórónu-
veiran fór að gera vart við sig hér
á landi. Hafa svokallaður föndur-
vörur vegið einna þyngst í sölu-
aukningunni.
„Allar skapandi vörur á borð
við spil, púsl og liti rjúka út. Fólk
er meira heima með börnin og
sem betur fer eru ekki allir að
horfa bara á Netflix,“ segir Vil-
hjálmur og bætir við að A4 hafi
reynt eftir fremsta megni að
hvetja til aukinnar samveru á
kostnað skjátíma meðan á faraldr-
inum stendur. „Við staðsetjum
okkur hinum megin við tölvufyr-
irtækin. Við vonumst til þess að
fólk auki samveruna og minnki á
sama tíma skjátímann. Það já-
kvæða í þessu ástandi er að fleiri
eyða tíma með sjálfum sér og
börnum,“ segir Vilhjálmur.
Meðan á faraldrinum hefur stað-
ið hefur netverslun fjölda fyrir-
tækja aukist svo um munar. Að
sögn Vilhjálms er A4 þar engin
undantekning. „Það er mörg
hundruð prósenta aukning í net-
verslun hjá okkur. Við vorum vel
undirbúin en þrátt fyrir það eru
ýmsar vörutegundir að klárast hjá
okkur,“ segir Vilhjálmur, sem
kveðst ánægður með að A4 hafi
enn ekki þurft að grípa til upp-
sagna líkt og fjölmörg önnur fyr-
iræki. Þar að auki hafi fyrirtækið
ekki þurft að nýta hlutastarfaleið
ríkisstjórnarinnar.
„Séu marsmánuðir bornir saman
milli ára má greinilega sjá að sal-
an er að aukast. Það er því nóg að
gera og við höfum ekki þurft að
nýta hlutastarfaleiðina. Við höfum
þurft að bæta við okkur sendlum
til að auka þjónustuna frekar í út-
keyrslunni. Nú erum við farin að
geta afhent vörur samdægurs á
höfuðborgarsvæðinu,“ segir Vil-
hjálmur.
Salan aukist
verulega í
marsmánuði
Netverslun A4 margfaldast milli ára
Ýmsar vörutegundir að klárast
Ljósmynd/A4
Verslun Færri mæta nú í verslanir til að ganga frá kaupum. Að sama skapi
hefur netverslun blómstrað og í sumum tilfellum jafnvel margfaldast.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
HVAR ER NÆSTA
VERKSTÆÐI?
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Við póstsendum um allt land
Sími 568 5170
Túnikur • Bolir • Buxur • Kjólar
Töskur • Silkislæður
Jakkapeysur og vesti
Nokkrir litir
Snyrtivörumerkin okkar eru:
M a d e i n I c e l a n d
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Flott föt
fyrir flottar
konur
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Rauði kross Íslands (RKÍ) hefur
m.a. það verkefni að opna fjölda-
hjálparstöðvar þegar neyðarástand
skapast vegna ófærðar eða annarra
hamfara. Síðan fyrsti óveðurshvell-
urinn skall á 9. desember sl. hafa
sjálfboðaliðar RKÍ opnað fjölda-
hjálparstöðvar alls 28 sinnum á 21
stað víðs vegar um landið.
Oftast hefur verið opnuð fjölda-
hjálparstöð á Kjalarnesi, eða fjór-
um sinnum. Þrisvar sinnum hefur
þurft að opna slíka aðstöðu á Sel-
fossi og í tvígang á Flateyri og
Laugarvatni. Eini landshlutinn sem
hefur sloppið hvað þetta varðar er
Austurland.
Brynhildur Bolladóttir, upplýs-
ingafulltrúi Rauða krossins, segir
veturinn fara í sögubækurnar fyrir
margar sakir. Mörgum vikum áður
en kórónuveirufaraldurinn brast á
hafi viðbragðsaðilar um allt land
verið undir gríðarlegu álagi. Aldrei
áður hafi RKÍ opnað fjöldahjálpar-
stöðvar jafn oft á einum vetri.
150 manns komu í Vík
Ef aðeins er tekið tímabilið frá 9.
desember til 21. janúar sl. þá opn-
aði Rauði krossinn fjöldahjálpar-
stöðvar á 17 stöðum á landinu, alls
22 sinnum, aðallega sunnan- og
norðanlands. Febrúar var heldur
rólegri, aðeins einu sinni var opnuð
fjöldahjálparstöð þann mánuðinn,
eða í Heimalandi undir Eyjafjöllum
þann 28. febrúar, en þangað leituðu
um 100 ferðalangar vegna óveðurs
og ófærðar.
Að sögn Brynhildar komu þó lík-
lega flestir í Vík þann 9. mars, þeg-
ar um 150 manns komu í fjölda-
hjálparstöð sem þá var opnuð.
„Síðasta helgi var óvenjuleg að
mörgu leyti, þá hlupu sjálfboðaliðar
okkar til bæði á Kjalarnesi og
Laugarvatni. Þetta voru fyrst og
fremst Íslendingar í vandræðum á
vegum úti, enda nær allir erlendir
ferðamenn búnir að yfirgefa landið.
Þeir voru hins vegar langstærstur
hluti þeirra sem þurftu á aðstoð að
halda í desember og janúar. Núna
biðlum við bara til fólks um að
halda sig heima um páskana,“ segir
Brynhildur, sem vonast til þess að
ekki þurfi að opna oftar fjöldahjálp-
arstöð á þessum vetri, í öllu falli
ekki vegna ófærðar og veðurs.
Rauði krossinn er samanlagt með
um 3.000 sjálfboðaliða á skrá í 4.000
störfum um allt land, þar af eru um
600 sem sinna neyðarvörnum. Í því
felst m.a. að opna fjöldahjálparstöð
og sinna þeim sem þangað koma.
Patreksfjörður
Kjalarnes****
Flateyri**
Akureyri*****
Vík í Mýrdal
Ísafjörður
Siglufjörður
Stórutjarnir
Heimaland undir Eyjafjöllum
Grímsnes
Ólafsfjörður Sólvangur á Tjörnesi
Gullfoss kaffi
Selfoss***
VarmahlíðHvammstangi
Blönduós
Dalvík
Kirkjubæjarklaustur
Laugarvatn**
Reykjanesbær
Fjöldahjálparstöðvar RKÍ í vetur* *Fjöldahjálparstöðvar sem hafa verið opnaðar frá 9.
desember 2019.
Kortagrunnur: Loftmyndir.
**Tvisvar sinnum.
***Þrisvar sinnum.
****Fjórum sinnum.
*****Glerár kirkja,
hvíldaraðstaða fyrir
björgunarsveitir.
Fjöldahjálparstöðvar opn-
aðar 28 sinnum á 21 stað
Sjálfboðaliðar RKÍ hafa aldrei upplifað annan eins vetur