Morgunblaðið - 08.04.2020, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 08.04.2020, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2020 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 2019 Ford F-150 Lariat Sport Litur: Svartur, svartur að innan. FX4 offroad- pakki, Sport-pakki, bakkmyndavél, Bang & Olufsen hátalarakerfi, hiti í öllum sætum, hiti í stýri, fjarstart o.fl. 3,5 L Ecoboost (V6), 10-gíra, 375 hestöfl, 470 lb-ft of torque. VERÐ 12.770.000 m.vsk 2019 RAM Limited 3500 35” Litur: Pearl red/ Svartur að innan. 6,7L Cumm-ins Turbo Diesel, 400 hö, togar 1000 pund. Einn með öllu: RAM box, Aisin sjálfskipting, dual alternators 440 amps, loftpúðafjöðrun, upphitanleg og loftkæld sæti, hiti í stýri, sóllúga, nýr towing technology pakki. VERÐ 11.980.000 m.vsk 2020 GMC Denali Ultimate Litur: Dark Sky Metallic/ Dark walnut að innan. 2020 GMC Denali, magnaðar breytingar t.d. 10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleira. VERÐ 12.490.000 m.vsk ATH. ekki „verð frá“ 2020 Ford F-350 Lariat Sport Kominn með 10 gíra Allison sjálfskipt- ingu! Litur: Star white, svartur að innan, 6,7L Diesel ,475 Hö, 1050 ft of torque. Með Sport-pakka, Ultimate-pakka, FX4 offroad pakka, upphituð/loftkæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart, lyklalaust aðgengi, Bang Olufssen hljómkerfi, trappa í hlera. VERÐ 12.280.000 m.vsk ATH. ekki „verð frá“ ATH. ekki „verð frá“ Morgunblaðið/Styrmir Kári Páskaegg Gotterí og málshættir létta lundina á þessum undarlegu tímum. Fólkið eygir vor og betri tíð Ketilbjölluæfingar, málningarvinna, gönguferð- ir og bóklestur eru dægradvöl um páska. Þetta segja viðmælendur Mogrunblaðsins; fólk sem sumt er á kórónuvaktinni. En allt fram streymir – það er að koma vor með betri tíð! sbs@mbl.is „Vaktirnar um páskana verða efalítið langar og strang- ar. Því er mikilvægt að hafa að einhverju góðu að hverfa á frívöktunum; slaka á og núllstilla hugann,“ segir Þóra Gunnlaugsdóttir hjúkrunarfræðingur og aðstoðardeildarstjóri á gjörgæslu Landspítalans í Foss- vogi. Á þeirri deild er sinnt fólki sem veikst hefur af Co- vid-19 og hefur rúmum þar verið fjölgað úr sex í átján. „Sem hjúkrunarfræðingur hef ég upplifað margt og reynt en faraldur kórónuveirunnar og Covid er það sem mest hefur tekið á. Starfsfólk er samtaka og margir til- búnir að leggja okkur lið, til dæmis fólk sem hefur reynslu af gjörgæsluhjúkrun og er í öðrum störfum en hefur komið nú til að hjálpa okkur. Álagið er mikið en þegar fólk er jákvætt og tilbúið að leggjast á eitt auð- veldar það störfin. Svo er líka mjög hvetjandi fyrir okkur starfsfólkið þegar sjúklingarnir eru á batavegi og út- skrifast,“ segir Þóra. Bætir við að nú sem aldrei fyrr sé mikilvægt að hlúa vel að eigin heilsu og nota frítímann til að hlaða batteríin. „Mér finnst gott og róandi að hlusta á bókalestur í gegnum Storytel og þar er margt fínt efni að finna, rétt eins og sjónvarpsefni Netflix. Göngutúrar eru líka nauð- synlegir við aðstæður eins og nú og þar búum við Hafn- firðingar vel, en mér finnst frábært að labba til dæmis í Heiðmörk, við Hvaleyrarvatn og um Norðurbakkann. Svo koma páskaegg og lambalæri, fyrir alla aðra en mig kjötætuna, og allt þetta er uppskrift að góðum páskum þó öðruvísi verði en vanalega,“ segir Þóra. Hjúkrunarfræðingur Mjög hvetjandi þegar sjúkling- arnir eru á batavegi, segir Þóra Gunnlaugsdóttir. Gönguferðirnar núllstilla hugann „Fastur liður í mínu lífi er að taka hlaupahring um bæ- inn; héðan af Digranesinu suður að sundlaug og svo upp Himnastigann sem svo er kallaður og upp í hæð- irnar,“ segir Guðrún Gísladóttir, félagsráðgjafi í Kópa- vogi. „Þetta gefur mér mikið og regluleg hreyfing er okkur öllum mikilvæg, sennilega aldrei meira en í þeim undarlegu aðstæðum sem nú eru uppi í samfélaginu. Við fjölskyldan munum því stunda einhverja útiveru um páskana, þá innan þeirra marka sem læknar og aðr- ir hafa sett.“ Guðrún og Magnús Orri Sæmundsson eiga þrjú börn sem eru 4, 10 og 12 ára. Því er oft líflegt á heimilinu og þá ekki síst að undanförnu, þegar börnin hafa verið heima við enda skóla- og frístundastarf allt með breytt- um brag. „Hér heima eru spilatímar, fimleikaæfingar og fleira skemmtilegt. Reyndar hafa aðstæður að und- anförnu boðið upp á svo margt áhugavert og óvenju- legt; nafngjafarveisla þar sem fimm fjölskyldur sam- einuðust í gegnum fjarfundabúnað og dóttir mín lék á hljóðfæri var heilmikið upplifun,“ segir Guðrún og að lokum: „Á þessu heimili er því alltaf heilmikið líf og fjör og hænurnar sjá um undirleikinn með gaggi sínu. Svo háttar til að við erum til gamans með þrjár hænur hér í bakgarðinum sem skila okkur tveimur til þremur eggj- um á dag – sem við munum nú að sjálfsögðu kalla páskaegg. Einhver slík úr súkkulaði verða þó vænt- anlega tekin, enda ómissandi.“ Kópavogsbúi Heilmikið líf og fjör og hænurnar sjá um undirleikinn með gaggi sínu, segir Guðrún Gísladóttir. Fær páskaegg frá hænum í garðinum „Björgunarsveitir verða í við- bragðsstöðu um páska en ég vonast til að sem fæstir verði á ferð,“ segir Þór Þorsteinsson, formaður Slysa- varnafélagsins Landsbjargar. „Um síðustu helgi þurfti okkar fólk í all- mörg útköll til aðstoðar fólki sem lenti í vanda vegna ófærðar og veð- urs. Hafði þá ekki skeytt um veð- urspá eða tilmæli um að halda sig heima. Þetta voru mér vonbrigði en flutningar á heilbrigðisfólki til og frá vinnu eru þó sjálfsagt mál.“ Æðruleysi og samstaða eru lýs- ing Þórs á viðbrögðum vegna kór- ónuveirunnar. Vel hafi reynst að láta sérfræðingum sviðið eftir enda hafi rök þeirra og ráðstafanir reynst vel. Stjórnmálamenn hafi haldið sig til hlés og eftirlátið sér- fræðingunum sviðið og athyglina, sem sé vel. „Í þessum erfiðu aðstæðum erum við öll í sama liði,“ segir Þór sem verður í heima um páska. „Við höf- um í nógu að snúast í Lund- arreykjadal í Borgarfirði þar sem ég bý. Verið er að dytta að ýmsu sem hefur setið á hakanum, smíða, mála og sitthvað fleira. En vonandi gefst líka tími til gönguferða.“ Björgunarsveitarmaður Í við- bragðsstöðu, segir Þór Þorsteinsson. Vonandi verða fáir á ferðinni „Samfélagið getur lært margt á þeim aðstæðum sem nú eru uppi og tilveran hefur gjörbreyst. Kósí- kvöldin og samverutíminn sem við fjölskyldan höfum átt að undanförnu í samkomubanni eru þegar allt kem- ur til alls gæðastundir,“ segir Milla Ósk Magnúsdóttir, aðstoðarmaður mennta- og menningarmálaráð- herra. Nú í apríl stendur ráðuneyti menntamála fyrir verkefninu Tími til að lesa þar sem börn og fullorðnir eru hvött til að nýta lausar stundir á tíma veirunnar til að lesa í bók. Stefnt er á heimsmet og ekkert minna! Sjálf segist Milla vera með margar bækur í takinu, svo sem skáldsöguna Eyland eftir Sigríði Hagalín Björnsdóttur. Þar segir meðal annars frá því þegar enda- skipti verða á samfélaginu á Íslandi þegar skortur á vörum, lyfjum, elds- neyti og fleiru slíku verður ljós vegna skyndilegrar einangrunar. „Mér fannst þessi skáldsaga skyndilega svo nærri raunveruleik- anum að ég lagði hana frá mér. Næst mér nú eru ljóðabækur eftir Hauk Ingvarsson og Jón Kalman Stefánsson,“ segir Milla Ósk. Aðstoðarmaður Höfum átt gæða- stundir, segir Milla Ósk. Ljóðin og raunveruleg skáldsaga „Mér finnst ótrúlegt hve góðu jafn- aðargeði landsmenn hafa haldið í ástandi þar sem vondar fréttir af veirunni berast okkur ótt og títt. En sitt hefur að segja að fólkið í fram- línunni er æðrulaust og skilaboð þess til okkar eru að vera skynsöm. Ef samkomubann og aðrar aðgerð- ir hefðu stíft yfirbragð væri mórall- inn í samfélaginu annar,“ segir Andri Dagur Símonarson, slökkvi- liðs- og sjúkraflutningamaður. Andri er í áhöfn sjúkrabíls sem er staðsettur í Vesturbæ Reykjavík- ur, þaðan sem farið er í útköll svo sem vegna kórónuveirunnar. „Þegar við flytjum fólk með CO- VID-19 er fyllsta viðbúnaðar gætt og við útbúnir eins og geimfarar. Milli útkalla erum við hér í bæki- stöð á Grandanum og hér höfum við allar græjur; þrekhjól, handlóð og ketilbjöllur þannig að við getum haldið okkur í formi, segir Andri sem er á vakt um páskana. „Okkur í slökkviliðinu er uppá- lagt að vera heima og umgangast fáa. Það er ekkert mál; ég á frá- bæra fjölskyldu, get farið út að hlaupa, og sjónvarpið er fullt af góðu efni.“ Slökkviliðsmaður Vera heima og umgangast fáa, segir Andri Dagur. Landsmenn halda jafn- aðargeðinu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.