Morgunblaðið - 08.04.2020, Page 24

Morgunblaðið - 08.04.2020, Page 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2020 FRÉTTASKÝRING Guðmundu Magnússon gudmundur@mbl.is Það er ekki öfundsvert hlutverk að vera í forystu í þjóðlífi á ögur- stundum, tímum farsótta, kreppu eða styrjalda, eins og svo margir hafa fengið að reyna í tímans rás. Nú á dögum kórónuveirunnar hafa þjóðarleiðtogar víða um heim styrkst í sessi samkvæmt könn- unum, vafalaust vegna þess að al- menningur skynjar þörfina fyrir sterka leiðtoga og óskorað umboð til aðgerða. Stuðningur við heil- brigðisyfirvöld, sem þurfa að leggja til eða taka af skarið um erfiðar ákvarðnir, er líka víðast hvar afdráttarlaust. En ekki er víst að meðbyrinn verði viðvarandi til lengri tíma. Eins og sagan kennir okkur geta mistök, óvin- sælar ráðstafanir eða ónógar á svipstundu gerbreytt almennings- álitinu og feykt mönnum úr ábyrgðarstöðum og af valdastól- um; nýjasta dæmi þess er emb- ættismissir landlæknis Skotands sem brást dómgreindin og braut reglur um útgöngubann í síðustu viku. Og þá er eftir að nefna „dóm sögunnar“ – hann getur verið harkalegur þegar hann fellur, jafnvel þótt þeir sem stóðu í stafni hafi brotist í gegnum brimlöðrið og komist til hafnar. Sakaður um vanrækslu Farsóttasaga Íslands geymir dæmi um mikilhæfan mann í lyk- ilstöðu sem varð miðdepill heift- arlegra deilna og ásakana um van- hæfni og vanrækslu á örlagastund. Guðmundur Björnson var land- læknir – og þar með yfirmaður sóttvarna í landinu – þegar inflú- ensan illskæða, „spænska veikin“, barst hingað árið 1918. Í sorg- arleiknum miðjum var hann op- inberlega sakaður um að hafa orð- ið á stórkostleg afglöp; að hleypa faraldrinum inn í landið og gera engar ráðstafanir til að takmarka útbreiðslu hans. Kröfur komu fram um brottvikningu hans úr embætti. Hann varði stefnu sína af ákveðni áður en fólk fór að deyja unnvörpum, en eftir það varð róður hans þyngri. Guð- mundur Björnson hélt þó stöðu sinni, en hann varð aldrei samur maður eftir þessa orrahríð. Önnur bylgjan var verst Áður en lengra er haldið er rétt að rifja upp meginatriðin í sögu „spænsku veikunnar“ hér á landi. Inflúensan var heimsfaraldur, eins og kórónuveiran núna; lét þjóðir hvergi í friði þar sem hún komst inn fyrir dyr. Hafði raunar gengið yfir í reglulegum faröldrum, mis- skæðum þó, um okkar heimshluta í fjögur hundruð ár. Á nítjándu öld barst hún a.m.k. sex sinnum til Íslands. Vorið 1866 veiktust nær allir íbúar Reykjavíkur, 1.500 að tölu, af inflúensu og létust um 3% þeirra. Alls létust þá 1.290 manns á landinu öllu, að talið er. Í inflú- ensu 1894 munu um 900 manns hafa látist hér. Árið 1900 varð inflúensan sem hingð barst vægari og er talið að innan um 100 hafi þá látist. Heilbrigðisyfirvöld á Ís- landi vissu því vel að inflúensa gat verið mikill vágestur. Sú tegund inflúensu sem nefnd hefur verið „spánska veikin“ barst hingað í þremur bylgjum 1918 til 1919. Fyrsta bylgjan kom sumarið 1918 með togara frá Englandi og síðar farþegaskipi frá Kaup- mannahöfn. Þórður Thoroddsen læknir fór um borð í togarann og greindi 9 manns um borð með inflúensu. Samkvæmt grein sem hann birti í Læknablaðinu 1919 skýrði hann Guðmundi Björnson landlækni frá þessu, en hann sá sér ekki fært að gera nokkrar ráð- stafanir til varnar. Í grein Viggós Ásgeirssonar í tímaritinu Sögu 2008 segir að einkenni þessarar inflúensu hafi verið vægt lungna- kvef, hár hiti og gjarnan maga- kveisa. Veikin hafi lagst létt á flesta og gengið yfir á fáeinum dögum. Útbreiðslan hafi ekki ver- ið hröð og allur almenningar sloppið við smit. Ekki er að sjá að afstaða landlæknis hafi orðið ádeiluefni opinberlega. Önnur bylgja inflúensunnar barst til Reykjavíkur haustið 1918 frá Kaupmannahöfn 20. október með farþegaskipinu Botníu. Veikin barst hratt á milli fólks næstu daga og samkvæmt grein Þórðar var hún komin um allan bæinn viku síðar. Þórður var ekki í vafa um ástæðuna fyrir hinni hröðu út- breiðslu: „Vanrækt var að taka þá sjálfsögðu varúðarreglu þegar í byrjun sóttarinnar að loka öllum almennum samkomustöðum,“ skrifaði hann og hafði eftir fjölda sjúklinga sem hann sinnti að þeir teldu sig hafa smitast á bíósýn- ingu. Inflúensan barst síðan út á land og stakk sér niður víða á Suður- og Vesturlandi. En fyrir frum- kvæði heimamanna, þ.á m. sýslu- manna og héraðslækna fyrir aust- an og norðan, tókst að koma í veg fyrir að hún breiddist einnig þang- að. Voru verðir settir á Holta- vörðuheiði og við Jökulsá á Sól- heimasandi og hindruðu þeir ferðir aðkomumanna. Þá voru skip sem komu að utan sett í sóttkví vikum saman í höfnum á Norður- og Austurlandi. Veikin varð ákaflega skæð í Reykjavík. Talið er að um 10 þús- und íbúar hafi veikst af henni, en skráðir sjúklingar í bænum voru 3.142 samkvæmt ritgerðinni í Sögu. Skráning var ófullkomin á þessum tíma og aðeins hinir veik- ustu leituðu eftir læknishjálp. Á landinu öllu voru skráðir sjúkling- ar 6.914. Samkvæmt skýrslum Hagstofunnar dóu 490 manns í þessari annarri bylgju „spænsku veikinnar.“ Í Reykjavík einni mátti rekja til hennar um 250 dauðsföll. Áætlað er að alls 70-80 manns hafi svo látist í þriðju bylgjunni sem kom til landsins í mars 1919. Flotið sofandi að feigðarósi? Tæpri viku eftir að Botnía kom til Reykjavíkur með með farþega sýkta af inflúensunni birtist grein á forsíðu Morgunblaðsins þar sem Öll spjót stóðu á landlækni  Í „spænsku veikinni“ ákváðu stjórnvöld að gera ekkert til að hindra að pestin bærist til landsins eða draga úr smithættu innanlands  Af þessu spruttu heiftarlegar deilur  Hér er þessi saga rakin Ljósmynd/Ljósmyndasafn Reykjavíkur Landlæknir Guðmundur Björnson var í eldlínunni í „spænsku veikinni“. Ljósmynd/Myndasafn Morgunblaðsins Tók frumkvæði Lárus H. Bjarnason stýrði hjúkrunarnefndinni. Ljósmynd/Ljósmyndasafn Reykjavíkur Læknir Þórður Thoroddsen sinnti sjúkum dag og nótt. Guðmundur Björnson landlæknir (1864-1937) var í hópi mestu hæfileika- manna Íslendinga. Hann var menntaður læknir en með svo fjölþætt áhugamál að hann átti alla tíð erfitt með að einbeita sér að læknisstarf- inu og landlæknisembættinu sem hann hlaut 1906. Seinni kona hans, Margrét, var dóttir síðasta landshöfðingans, Magnúsar Stephensen og með hjónabandinu tengdist hann ætt auðs og valda. Hann var mjög póli- tískur, settist á þing og í bæjarstjórn og sat í fjölmörgum opinberum nefndum og ráðum. Hann var handgenginn Hannesi Hafstein þegar hann var ráðherra og hafði tengsl við alla helstu ráðamenn landsins. Guð- mundur var framfarasinnaður og í forystuhlutverki þegar Reykvíkingar fengu loks vatnsveitu. Þá var hann í fararbroddi þegar berkahælið á Víf- ilsstöðum var reist. Guðmundur var líka maður listræns áhuga og orti ágæt ljóð undir skáldanafninu Gestur. En maður sem er lengi nátengdur miðstöðvum valdisns fær gjarnan til- hneigingu til hroka og yfirlætis. Það var Guðmundi oft borið á brýn þótt hann ætti líka til hlýjan persónuleika. Eitt af því sem nefnt var honum til áfellis í hinum hörðu umræðum í inflúensunni 1918 var eiturnautn hans. Hann misnotaði kókaín um árabil og margir töldu að þessi neysla hefði brenglað dómgreind hans. Vel má vera að það hafi verið á rökum reist. Brenglaði kókaín dómgreindina? GUÐMUNDUR BJÖRNSON LANDLÆKNIR Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646  SJÁ SÍÐU 26

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.