Morgunblaðið - 08.04.2020, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 08.04.2020, Qupperneq 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2020 viðraðar voru áhyggjur af málinu. Greinarhöfundur, líklega ritstjór- inn Vilhjálmur Finsen, spurði hvort menn ætluðu að fljóta sof- andi að feigðarósi. Veikin væri farin að leggja þúsundir manna í gröfina á Norðurlöndum. Hefði öllum samkomustöðum í Kaup- mannahöfn verið lokað. Lækna- stéttin yrði að taka á sig rögg til að firra landið þeim háska sem yf- ir vofði. Þessi skrif urðu til þess að Guð- mundur Björnson landlæknir birti næstu daga fimm greinar í blaðinu til að skýra afstöðu heilbrigðisyf- irvalda og verja vinnubrögð sín. Í fyrstu greininni er háðskur tónn gagnvart almenningi og er áhyggj- um fólks lýst eins og léttvægum hræðslubölmóði. Staðhæfir hann að engin þjóð í Evrópu eða Am- eríku hafi séð sér fært að stöðva faraldurinn eða verja land sitt fyr- ir honum. Í annarri greininni seg- ir hann að þótt mikið sé talað um að veikin sé illkynjuð sé sannleik- urinn sá að hjá miklum þorra sjúklinga sem læknar bæjarins hafi skoðað sé hún alls ekki þyngri en þeir hafi átt að venjast. Ótvírætt sé að vernda beri líf og heilsu manna með því að sporna við útbreiðslu næmra sjúkdóma sem manntjón geti hlotist af. En þá beri að spyrja hvort það sé gerlegt. Í þriðju greininni telur hann alla annmarka á því að hægt sé að koma í veg fyrir að faraldur eins og inflúensan komist inn í landið. Kostnaður við að halda skipum frá útlöndum í sóttkví sé alltof mikill. Vitnar hann til stjórnarformanns Eimskipafélags- ins sem hafi sagt honum að hver sóttkvíardagur skipanna myndi kosta 2.000 krónur, en það var mikið fé þá. Meðal allra menning- arþjóða væri það meginregla að teppa ekki skipaferðir nema í ýtr- ustu lífsnauðsyn eins og þegar banvænustu drepstóttir ættu í hlut. Í fjórðu greininni gerði hann að umtalsefni hvað gera bæri þeg- ar pestin væri komin og hefði náð fótfestu. Vissulega væri hægt að tefja hana með því að loka skólum og samkomustöðum, en það myndi ekki stöðva hana. Og ekkert væri unnið með því að tefja hana, þótt slík aðgerð gæti hentað í útlönd- um þar sem væru rúmgóð sjúkra- hús og þá til að hindra að sjúk- lingar kæmu þangað of ört. Hér væru aðstæður aðrar og veikin hefði engum manndauða valdið. Færðist hún í aukana mætti taka þetta til athugunar, en þá aðeins ef vit væri í því en ekki bara til að friða almenning. Vantreysti ráðherra landlækni? Lokagrein landlæknis var rituð 31. október en þegar hún birtist í Morgunblaðinu 3. nóvember var fyrsti sjúklingurinn þegar látinn eins og lesa mátti á öðrum stað í blaðinu. Þetta var Sólveig Vigfús- dóttir, 22 ára gömul. Hún var unn- usta Péturs Hafsteins búfræðings, sonar eins af hæststandandi mönnum þjóðfélagsins á þeim tíma, Lárusar H. Bjarnasonar, forstöðumanns Lagaskólans og fyrrverandi þingmanns. Andlát hennar kann að hafa verið ástæða þess að Lárus gekk á fund Sig- urðar Eggerz, starfandi forsætis- ráðherra, og bauð fram krafta sína til að hjálpa sjúkum í bænum. Mágur ráðherrans, Jón Krist- jánsson lagaskólakennari, sam- starfsmaður Lárusar, lá þá þungt haldinn og lést nokkrum dögum síðar, 33 ára gamall. Sigurður hafði fram að þessu reitt sig á ráðgjöf landlæknis, en ekki er hægt að túlka ákvörðun hans 8. nóvember um að fela óbreyttum borgurum yfirstjórn hjálparstarfs- ins með skipun hjúkrunarnefndar, sem Lárus stjórnaði, öðruvísi en sem beint vantraust á Guðmund Björnson, enda vissi ráðherrann að vaxandi ólga var í bænum vegna skrifa landlæknis og af- stöðu. Hér er ekki rúm til að rekja merkilegt starf hjúkrunarnefnd- arinnar og þess fólks sem hún fékk í lið með sér við þær hræði- legu aðstæður sem skapast höfðu í Reykjavík. Vert er að geta þess að allir læknar bæjarins, þar á meðal landlæknir, voru á þönum um bæ- inn við að aðstoða veika. Sam- kvæmt grein Þórðar Thoroddsen í Læknablaðinu urðu sjúklingar hans hátt í 400 þegar farsóttina bar sem hæst um miðjan nóv- ember 1918. Hann hóf störf kl. 6-7 á morgnana og var að til kl. 2-3 á nóttunni. Sama mun Matthías Einarsson læknir hafa gert. En lyf voru engin til á þessum tíma og úrræði læknanna beindust því mest að því að gera aðstæður og líðan sjúklinganna bærilegri. Um aðferðir einstakra lækna og heil- ræði var talsvert deilt en hér verður ekki farið út í þá sálma. Óvægin gagnrýni Gagnrýnin á landlækni á prenti var einna óvægnust í Vísi, sem Jakob Möller ritstýrði, og Tím- anum, sem Tryggvi Þórhallsson stýrði. Hún birtist þó ekki fyrr en upp úr miðjum nóvember þar sem blöðin höfðu orðið að hætta útgáfu í nær tvær vikur. Í Vísi var minnt á að hvorki landlæknir né ríkis- stjórnin hefðu gert neitt til þess að stöðva veikina í upphafi eða tefja fyrir útbreiðslu hennar svo að hún yrði viðráðanlegri. Heil- brigðisyfirvöld hefðu vanrækt að fylgjast með því hvers eðlis far- sóttin væri sem geisaði utanlands þetta haust. Hefðu þó blöðin hér þegar 18. október birt fréttaskeyti frá Kaupmannahöfn þar sem fram kom að inflúensan væri nú farin að stinga sér aftur niður og væri mjög mögnuð. Öll sjúkrahús væru full og margir látnir. Nokkrum dögum seinna hefðu birst blaða- skeyti um að öllum samkomustöð- um og skólum borgarinnar hefði verið lokað. Þetta hefði engin áhrif haft á heilbrigðisstjórnina hér, engu hefði verið lokað og veikin breiðst óhindrað út. Þótt komið væri í ljós að um hreina drepsótt væri að ræða hefðu stjórnvöld enn ekki gripið til neinna takmarkana. Þetta sýndi ófyrirgefanlega léttúð og kæru- leysi. Tefja hefði mátt útbreiðsl- una innanbæjar meðan erfiðast væri að veita fólki hjúkrun og húsakynni í verstu ástandi yfir há- veturinn. Þá hefði átt að tefja för hennar út um landið til að gefa mönnum tækifæri til viðbúnaðar. Í Tímanum var bent á að þegar landlæknir ákvað að stöðva ekki landgöngu farþega Botníu hefði hann enn ekki verið búinn að fá svar við skeyti sem hann sendi til heilbrigðisyfirvalda í Kaupmanna- höfn með fyrirspurn um veikina. Ofan á þessa vanrækslu hefði m.a. bæst að engar ráðstafanir voru gerðar til að hindra óðfluga út- breiðslu inflúensunnar í Reykja- vík, þótt slíkt hefði verið gert í Kaupmannahöfn. Þá hefðu greinar landlæknis í Morgunblaðinu gert allan almenning mjög andvara- lausan um sjúkdóminn og tónninn í þeim verið óviðkunnanlegur. Loks hefði landlæknir beinlínis lagst gegn því að yfirvöld reyndu að verja sveitirnar. Framganga hans öll hefði verið með þeim hætti að hann yrði að víkja úr embætti og væri þó ekki horft fram hjá því að hann hefði áður unnið mjög gagnleg störf með því að berjast fyrir vatnsveitu handa Reykvíkingum og stofnun berkla- hælis. Stuðningur við landlækni – og þó Guðmundur Hannesson, mikils- virtur læknir í Reykjavík, tók upp hanskann fyrir landlækni í grein í Ísafold 21. desember, þegar inflú- ensan var um garð gengin. Taldi hann að ekki hefði verið raunhæft að stöðva landgöngu allra farþega og skipverja til að koma í veg fyr- ir að inflúensan bærist til lands- ins. En aftur á móti viðurkenndi hann að átt hefði að verja sem flest byggðarlög eftir að hún hafði numið land. „Þetta átti að gera í tæka tíð, en hefir farið í handa- skolum,“ skrifaði hann. Um jólin kom Jón Magnússon forsætisráðherra heim eftir tveggja mánaða dvöl í Kaup- mannahöfn, þar sem hann hafði dvalist til að fá staðfestingu kon- ungs á lögum um fullveldi Íslands. Á meðan hafði Þóra, fullorðin kjördóttir hans og einkabarn, lát- ist hér heima í veikinni. Hann var harmi sleginn en enginn veit hvað honum fannst um stefnu og vinnu- brögð landlæknis. Svo mikið er víst að Guðmundur, sem var náinn vinur hans og samstarfsmaður í stjórnmálum til margra ára, hélt embætti sínu og ekki var hlustað á kröfur um opinbera rannsókn á vinnubrögðum heilbrigðisstjórn- arinnar. Páll V.G. Kolka læknir, sem þekkti Guðmund vel, sagði í tímaritsgrein löngu seinna að árásirnar sem hann varð fyrir hafi tekið á hann, þótt hann bæri harm sinn í hljóði og léti aldrei eitt orð falla til ámælis þeim mönnum sem að þeim stóðu. Hann hefði breyst talsvert við þetta, orðið gæfari en áður, haft sig minna í frammi út á við. Páll upplýsir að svo mögnuð hafi heiftin í garð Guðmundar ver- ið að oftar en einu sinni hafi verið reynt að kveikja í húsi hans. Í haust er væntanleg bók eftir Gunnar Þ. Bjarnason sagnfræðing um „spænsku veikina“ á Íslandi. Þar verður saga hennar öll rakin af meiri dýpt en hér eru tök á. Mun mörgum vafalaust þykja áhugavert að sjá í því riti hver „dómur sögunnar,“ ef svo má komast að orði, verður um það heita deiluefni sem hér hefur verið sagt frá og er mun margslungnara en rúm er til að fjalla um í blaða- grein. Ljósmynd/Ljósmyndasafn Reykjavíkur Inflúensan Aðeins voru tvö lítil sjúkrahús í Reykjavík í „spænsku veikinni“. Komið var á fót sjúkraheimili fyrir börn í húsnæði Barnaskólans. Þúsund og ein nótt Ókeypis um tíma Hlusta.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.