Morgunblaðið - 08.04.2020, Qupperneq 29
skógum Vestur-Kanada og í Alaska.
Hann þvælist stundum hingað og hef-
ur reynt hér varp. Trjámáfurinn
kenndi mér heilmikla lexíu og mér
hefur farið fram í fræðunum síðan.“
Bannað að vinna á síðasta ári
Guðmundur segist hafa haft nægan
tíma síðustu misseri til að sinna fugla-
skoðun, myndatökum og merkingum,
en það kom ekki til af góðu:
„Ég byrjaði til sjós 1980 þegar ég
var 15 ára, það var hörkuvinna og það
var því ekki mikið um skólagöngu. Ég
var á bátum frá Höfn fram til 1996 og
síðan á öðrum bátum, meðal annars
við hvalaskoðun, og var ýmist stýri-
maður eða skipstjóri seinni árin. Síð-
ustu ár hef ég hins vegar verið með
alvarlega hjartabilun og í fyrra bönn-
uðu læknarnir mér að vinna. Þá lá
beint við að fara að sinna fuglunum
enn betur,“ segir Guðmundur. Hann
bætir því við að án stuðnings og
hvatningar frá konu sinni, Eyrúnu
Önnu Gestsdóttur, hefði þetta ekki
verið framkvæmanlegt.
Síðasta ár var líka heldur betur
annasamt hjá Guðmundi, sem sá þá
mikinn fjölda fugla, mismunandi
merkilega fyrir safnara. „Ég sá
fyrstu leirutítu sem hefur sést að vori
hér á landi, en hún kemur frá Amer-
íku. Mig vantaði talsvert af stelkum
og náði að sjá trjástelk, flóastelk,
hrísastelk og lyngstelk í fyrra.
Ég fékk næturgala í netin mín í
Sólbrekku við Seltjörn á Reykjanesi
síðasta haust. Svo fékk ég amerískan
tígultáta af ætt kardinála í netin í Sól-
brekku aðeins viku eftir að nætugal-
inn kom í heimsókn, ótrúlega
skemmtilegir dagar. Það var þriðji
fuglinn af tegundinni sem finnst á
landinu og númer tvö sem finnst á lífi.
Eitt árið fann ég auðnalóu og var
það í annað skipti sem hún fannst hér.
Áður hafði tegundin sest á bát úti á
sjó, en fuglinn sem ég fann í fjörunni
á Hvalsnesi á Reykjanesi gátu þessir
helstu fuglakallar myndað í bak og
fyrir.“
Háleggur og víxlnefur
Guðmundur hafði heppnina með
sér þegar hann sá hálegg fyrstur
manna hér á landi, það var við Mið-
hús í Garði sumardaginn fyrsta, 20.
apríl 2017. Háleggur er suðlæg teg-
und og eru varpstöðvar hans við Mið-
jarðarhafið, Svartahafið og aðeins
norður eftir Frakklandi.
Þá sá Guðmundur fyrstur manna
hérlendis og reyndar í allri Evrópu-
amerískan víxlnef í Sólbrekku í nóv-
ember 2017, en víxlnefur er skyldur
krossnef sem hér hefur numið land.
Eftir talsverðar rannsóknir var stað-
fest að um amerískan víxlnef var að
ræða, sem ekki hafði sést áður í Evr-
ópu. Hann er talsvert öðruvísi en
Evrópufuglarnir, m.a. syngur hann
og kallar öðruvísi, og þótti þessi fund-
ur talsverð tíðindi.
Víxlnefinn skoðuðu ekki bara ís-
lenskir fuglaskoðarar, heldur voru
dæmi þess að menn kæmu gagngert
til Íslands til að skoða fuglinn. Þannig
kom stór flugvél til Keflavíkur með
um 120 fuglaáhugamenn frá Bret-
landi, lent var að morgni og haldið
heim að kvöldi eftir að hafa eytt deg-
inum að mestu við fuglaskoðun hjá
Guðmundi í Sólbrekku.
Svipaða sögu er að segja um kol-
önd sem í mörg ár hefur komið á
Keflavíkina. Haft var eftir Guðmundi
í Morgunblaðinu 2017 að ferðamenn,
bæði frá Ameríku og Evrópu, hefðu
komið gagngert til landsins til að
skoða fuglinn. Talað var um gjaldeyr-
isskapandi kolönd!
Án þess að það komi þessari sögu
við má nefna að sumarið 2018 var
Guðmundur skipstjóri á hvalaskoð-
unarbáti frá Keflavík og einn góðan
veðurdag kom hann auga á sléttbak í
Faxaflóa. Dýr þessarar tegundar
hafa verið sjaldséð við landið síðustu
áratugi.
Paradís fuglaáhugamanna
Guðmundur dvelur mikið í Sól-
brekku þar sem hann fylgist með
fuglalífinu. Þar hafa í vetur dvalið um
20 skógarþrestir, en fuglunum fjölgar
nú dag frá degi með hækkandi sól og
fleiri farfuglum. Hann er með sérstök
fuglanet og merkir fugla sem koma í
netin, með leyfi Náttúrufræðistofn-
unar. Segir að mest sé um smáfugla
eins og auðnutittlinga, en fleiri rati í
netið, eins og t.d. næturgali og tígul-
táti í fyrra.
Guðmundur segir að Reykjanes-
skaginn sé paradís fyrir fugla-
áhugamenn allan ársins hring, en
mest sé um að vera vor og haust. Á
haustin séu mestar líkur á að sjá
flækinga sem koma hingað frá Am-
eríku.
Spurður um samfélag fuglaskoð-
ara, sem leita fugla, mynda og skrá,
segir Guðmundur að þeir mættu
gjarnan vera fleiri sem leita fugla
með markvissum hætti á okkar stóra
landi. Í hópi hörðustu fuglaskoðara sé
alls konar fólk og hæfileg keppni og
metingur á milli manna, en líka góð
samvinna. Harðar reglur gilda um
hvernig menn fá fugla skráða á sinn
fuglalista, ef myndir eru ekki fyrir-
liggjandi þarf viðurkennt vitni að
hafa verið með í för.
„Víða erlendis eru samfélög fugla-
áhugamanna gríðarlega stór og heil-
mikil atvinna í kringum þetta. Ég
vildi gjarnan sjá meira gert til að örva
þátttöku í þessu sporti hér og svo ég
tali nú ekki um til að fá fólk hingað til
lands til að skoða fugla. Ég er sann-
færður um hægt væri að fá þúsundir
ferðamanna til landsins til að sinna
fuglaskoðun,“ segir Guðmundur
Falk.
Næturgali Fannst í Sólbrekku 30. september í
fyrra, þrettándi næturgalinn sem hér finnst.
Leirutíta Kemur frá Ameríku og sást í Garði
10. maí 2019, sú fyrsta sem hér finnst að vori.
Stúfgoði Fannst á Norðurkotstjörn í Sand-
gerði 22. október 2018, fjórði fugl á Íslandi.
Svalbrúsi Í Njarðvíkurhöfn 24. janúar 2020,
þriðji fugl sinnar tegundar, hánorræn tegund.
FRÉTTIR 29Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2020
OFN FYLGIROFN FYLGIR
OFN FYLGIROFN FYLGIR
Fjárfesting í vellíðan
Tegund Stærð h x þv Sætafjöldi Listaverð
450 122 x 152 cm 2 - 4 . r.
460 122 x 182 cm 4 - 6 6 0.000 kr.
470 122 x 214 cm 5 - 8 740.000 kr.
Tunnupottur úr sedrusviði
Tegund Stærð þv x l Sætafjöldi Listaverð
760 214 x 183 cm 2 - 4 910.000 kr.
770 214 x 214 cm 4 - 6 9 8.000 kr.
780 214 x 244 cm 6 - 8 99 .000 k .
Saunatunna úr sedrusviði
Tegund Stærð Sætafjöldi Listaverð.
PSMINICL 214 x 214 cm 2 - 4 . .00 r
Pod útisauna úr sedrusviðiTegund Stærð b x l Sætafjöldi Listaverð
860LU 244 x 182 cm 2 - 4 . r.
870LU 244 x 214 cm 4 - 6 . r.
880LU 244 x 244 cm 6 - 8 . r.
Luna útisauna úr sedrusviði
Tegund Stærð þv x l Sætafjöldi Listaverð
760 PV 214 x 182 cm 2 - 4 1 210.000 r.
770 PV 214 x 214 cm 4 - 6 2 0.000 kr.
780 PV 214 x 244 cm 6 - 8 290.500 r.
Panorama sedrus saunatunna
Smiðjuvegi 11 s. 571 3770, pall@sauna.is, sauna.is
Saunatunnur, klefar og heitir pottar úr sedrusviði sem slegið hafa í gegn á Íslandi!
5% afsláttur af listaverði á neðantöldum gerðum af tunnum, pottum og klefum út apríl
Kanadísku Dundalk pottarnir
og saunaklefarnir eru úr sedrusviði
sem fúnar ekki, þarf ekkert viðhald,
er sterkur og hentar því einstaklega
vel íslenskri veðráttu.
Þess vegna velur þú sedrus!