Morgunblaðið - 08.04.2020, Page 30

Morgunblaðið - 08.04.2020, Page 30
30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2020 SVIÐSLJÓS Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Hvað á Boris Johnson, forsætis- ráðherra Breta, sameiginlegt með glaðbeittum unnendum gleðistunda á barnum og þúsundum náms- manna um heim allan? Allir hafa þeir brúkað þeir fundasmáforritið Zoom til að ná saman mitt í kór- ónuveirufaraldrinum illræmda. Forritið hefur náð gríðarlegri útbreiðslu á stuttum tíma en Zoom-fyrirtækið í Kísildal í Kali- forníu sætir nú rannsókn þar sem farið er í saumana á því hvernig það umgengst einka- og öryggis- mál, svo sem hvers vegna óboðnir gestir geti vaðið inn í samræður. Zoom stofnaði Eric nokkur Yuan árið 2011 og fékk skráningu á Nasdaq-hlutabréfamarkaðinum í New York fyrir ári. Hefur mark- aðsvirði þess rokið upp úr öllu valdi og nemur nú 35 milljörðum dollara. Yuan hefur sagst hafa ástríðu fyrir fjarskiptatækni tíunda ára- tugar síðustu aldar, en þá var hann háskólanemi í Kína. Lagðist hann í tilraunir um hvernig hann gæti séð unnustu sína án þess að þurfa takast á hendur margra klukkutíma lestarferð. Zoom var kynnt á markaði sem tól fyrir fólk sem vinnur fjarri hvaðt öðru að bera saman bækur sínar um viðskiptamál og keppa við tæknilausnir frá risum á borð við Microsoft, Facebook, Google og fleiri. Póker og útfarir Þegar þjóðir heims halda kyrru fyrir heima hjá sér vegna kór- ónuveirunnar hefur Zoom verið brúkað við fjarkennslu, æfinga- tíma, pókerspilamennsku, kirkju- legar athafnir og drykkjugleð- istundir. Pör hafa gengið í hjóna- band í „zoomunar“-athöfnum, afmælisdögum verið þar fagnað og jarðarfarir hafa menn getað sótt í sýndarveruleika. „Það er svo auðvelt í notkun og ókeypis, sem er fallega gert,“ segir bandaríski menntaskólakennarinn Justin Minkel, sem kennir nem- endum sínum og leggur þeim fyrir með Zoom. „Bara að smella á einn tengil,“ segir hann um hversu ein- föld notkun forritsins er. Heima- tímar geta verið ögn óreiðukenndir með hundgá eða barnarifrildi í bakgrunni. Gegn því vegur Minkel með því að draga niður í hljóð- nemum einstakra nemenda þar til hann þarf að heyra í þeim. Að sögn Yuan fóru þátttakendur í Zoom-fundum í mars upp fyrir 200 milljónir á dag í nýliðnum marsmánuði. Til samanburðar voru þeir aðeins 10 milljónir á dag und- ir árslok 2019. Myndsímasamtöl hafa rokið upp úr öllu valdi á öllum skilaboðasen- um netsins, þar á meðal Whats- App, Messenger og öllum sam- komustöðum Google. Zoom er þar í sérflokki og hefur snarpri vin- sældaaukningu þess helst verið líkt við skothraða geimflaugar. Þar geta allt að eitt hundrað manns tekið samtímis þátt í einum og sama vídeófundinum. Fyrstu 40 mínúturnar eru ókeypis en hægt er að kaupa úrvalsaðgang með margfalt meiri notkun og umfjöll- un fyrir 15 dollara á mánuði. Reyndar hefur Zoom aflétt 40 mín- útna viðmiðuninni af ókeypis áskriftinni fyrir kennara í mörgum löndum. Meðal valmöguleika í boði geta notendur til dæmis valið sér bakgrunnsmynd, svo sem af Gold- en Gate-brúnni eða sólarströnd og þannig hulið hvað í raun og veru er að sjá að baki notandans. Átroðsla Stafræni þjálfarinn Stephanie DeMichele þakkar það notkun Zoom að menn komist yfir óttann við að losna úr tengslum við skól- ann, vinina, fjölskylduna og fleira fólk sem tengist notandanum náið. „Og hér kemur Zoom og segir: það er ókeypis og þér finnst þú ekki vera einangraður. Þess vegna greip fólk gæsina,“ segir DeMic- hele. Fyrirbærið „Zoomvipun“ hefur hins vegar leitt af sér viðvaranir um slakt netöryggi. Boðflennur hafa raskað trúarathöfnum, fjar- námi skólabekkja og öðrum funda- höldum á Zoom. Dæmi eru um að klámmyndum hafi verið troðið þar inn. Að sögn bandarískra fjölmiðla hefur Zoom deilt upplýsingum um notendur til þriðja aðila. Hafa þeir beint athyglinni að því hversu vel eða illa fjarfundargögn eru varin. Saksóknarar í mörgum ríkjum Bandaríkjanna eru að rannsaka gjörðir Zoom varðandi öryggis- og einkamál notenda. Þetta er nú þeg- ar til athugunar í Connecticut, New York og Flórída. Hefur al- ríkislögreglan FBI vakið athygli á þeim möguleika að Zoom-fundi mætti ræna í heild sinni. Yuan hét því í fyrri viku að efla öryggis- og gagnavarnir og baðst afsökunar á því sem úrskeiðis hefði farið. „Við játum að við höfum ekki staðið okkur í samræmi við vænt- ingar um öryggis- og einkamála- varnir. Yfir því er ég afar hrygg- ur,“ sagði hann. Zoom var í meginatriðum hann- að fyrir stórfyrirtæki til samskipta þeirra við tæknisveitir sínar og að tryggja þeim stuðning og varnir, að sögn Yuan. „Við þróuðum ekki vöruna af þeirri framsýni að nokkrum vikum síðar yrðu jarðarbúar allt í einu allir vinnandi, nemandi eða djamm- andi að heiman,“ sagði Yuan. „Þessir nýju notendur hafa hjálpað okkur við að draga fram í dags- ljósið óvænta galla í kerfunum.“ Að sögn stofnunarinnar Electr- onic Frontier Foundation er það góðs viti að Zoom gangist við ör- yggisvanda og heiti því að lagfæra hann. „Fyrir Zoom liggur heilmikil vinna við úrbæturnar ætli það sér að endurreisa traust á búnaði sín- um,“ segir Gennie Gebhart, rann- sóknarstjóri stofnunarinnar. Greinandi hjá fyrirtækinu Creat- ive Strategies, Carolina Milanesi, segir við AFP-fréttaveituna, að á sama tíma og það skoðar bráðan vanda sinn megi það ekki missa sjónar á framtíðinni. „Að endur- taka það sem Zoom hefur orðið á er ekki erfitt,“ segir hún. „Þeir þurfa að velta fyrir sér hvert þeir vilja stefna.“ Zoom snýr á kórónuveiruna  Smáforritið Zoom til fjarfundahalda á netinu hefur öðlast miklar vinsældir eftir að kórónuveiran hóf herför sína um heimsbyggðina  Hefur það m.a. verið brúkað til ríkisstjórnarfunda AFP Ríkisstjórnarfundur Frá fundi Boris Johnsons, forsætisráðherra Breta, með samráðherrum á Zoom úr Downingstræti 10. Þar var hann í einangrun vegna kórónuveirufaraldursins og fjarfundatæknin eina leiðin fyrir hann að funda með ráðherrum sínum. Johnson hefur síðan verið fluttur á sjúkrahús. AFP Fjarjóga Jógakennarinn Chaukei Ngai fagnar nemendum í Zoom-fjartíma sem hún stýrir frá Hong Kong. AFP Merki Táknmerki Zoom-smáforritsins sem öðlast hefur gríðarlega notkun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.