Morgunblaðið - 08.04.2020, Blaðsíða 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2020
SVIÐSLJÓS
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Hvað á Boris Johnson, forsætis-
ráðherra Breta, sameiginlegt með
glaðbeittum unnendum gleðistunda
á barnum og þúsundum náms-
manna um heim allan? Allir hafa
þeir brúkað þeir fundasmáforritið
Zoom til að ná saman mitt í kór-
ónuveirufaraldrinum illræmda.
Forritið hefur náð gríðarlegri
útbreiðslu á stuttum tíma en
Zoom-fyrirtækið í Kísildal í Kali-
forníu sætir nú rannsókn þar sem
farið er í saumana á því hvernig
það umgengst einka- og öryggis-
mál, svo sem hvers vegna óboðnir
gestir geti vaðið inn í samræður.
Zoom stofnaði Eric nokkur Yuan
árið 2011 og fékk skráningu á
Nasdaq-hlutabréfamarkaðinum í
New York fyrir ári. Hefur mark-
aðsvirði þess rokið upp úr öllu
valdi og nemur nú 35 milljörðum
dollara.
Yuan hefur sagst hafa ástríðu
fyrir fjarskiptatækni tíunda ára-
tugar síðustu aldar, en þá var
hann háskólanemi í Kína. Lagðist
hann í tilraunir um hvernig hann
gæti séð unnustu sína án þess að
þurfa takast á hendur margra
klukkutíma lestarferð.
Zoom var kynnt á markaði sem
tól fyrir fólk sem vinnur fjarri
hvaðt öðru að bera saman bækur
sínar um viðskiptamál og keppa
við tæknilausnir frá risum á borð
við Microsoft, Facebook, Google og
fleiri.
Póker og útfarir
Þegar þjóðir heims halda kyrru
fyrir heima hjá sér vegna kór-
ónuveirunnar hefur Zoom verið
brúkað við fjarkennslu, æfinga-
tíma, pókerspilamennsku, kirkju-
legar athafnir og drykkjugleð-
istundir. Pör hafa gengið í hjóna-
band í „zoomunar“-athöfnum,
afmælisdögum verið þar fagnað og
jarðarfarir hafa menn getað sótt í
sýndarveruleika.
„Það er svo auðvelt í notkun og
ókeypis, sem er fallega gert,“ segir
bandaríski menntaskólakennarinn
Justin Minkel, sem kennir nem-
endum sínum og leggur þeim fyrir
með Zoom. „Bara að smella á einn
tengil,“ segir hann um hversu ein-
föld notkun forritsins er. Heima-
tímar geta verið ögn óreiðukenndir
með hundgá eða barnarifrildi í
bakgrunni. Gegn því vegur Minkel
með því að draga niður í hljóð-
nemum einstakra nemenda þar til
hann þarf að heyra í þeim.
Að sögn Yuan fóru þátttakendur
í Zoom-fundum í mars upp fyrir
200 milljónir á dag í nýliðnum
marsmánuði. Til samanburðar voru
þeir aðeins 10 milljónir á dag und-
ir árslok 2019.
Myndsímasamtöl hafa rokið upp
úr öllu valdi á öllum skilaboðasen-
um netsins, þar á meðal Whats-
App, Messenger og öllum sam-
komustöðum Google. Zoom er þar
í sérflokki og hefur snarpri vin-
sældaaukningu þess helst verið
líkt við skothraða geimflaugar. Þar
geta allt að eitt hundrað manns
tekið samtímis þátt í einum og
sama vídeófundinum. Fyrstu 40
mínúturnar eru ókeypis en hægt
er að kaupa úrvalsaðgang með
margfalt meiri notkun og umfjöll-
un fyrir 15 dollara á mánuði.
Reyndar hefur Zoom aflétt 40 mín-
útna viðmiðuninni af ókeypis
áskriftinni fyrir kennara í mörgum
löndum. Meðal valmöguleika í boði
geta notendur til dæmis valið sér
bakgrunnsmynd, svo sem af Gold-
en Gate-brúnni eða sólarströnd og
þannig hulið hvað í raun og veru
er að sjá að baki notandans.
Átroðsla
Stafræni þjálfarinn Stephanie
DeMichele þakkar það notkun
Zoom að menn komist yfir óttann
við að losna úr tengslum við skól-
ann, vinina, fjölskylduna og fleira
fólk sem tengist notandanum náið.
„Og hér kemur Zoom og segir: það
er ókeypis og þér finnst þú ekki
vera einangraður. Þess vegna
greip fólk gæsina,“ segir DeMic-
hele.
Fyrirbærið „Zoomvipun“ hefur
hins vegar leitt af sér viðvaranir
um slakt netöryggi. Boðflennur
hafa raskað trúarathöfnum, fjar-
námi skólabekkja og öðrum funda-
höldum á Zoom. Dæmi eru um að
klámmyndum hafi verið troðið þar
inn.
Að sögn bandarískra fjölmiðla
hefur Zoom deilt upplýsingum um
notendur til þriðja aðila. Hafa þeir
beint athyglinni að því hversu vel
eða illa fjarfundargögn eru varin.
Saksóknarar í mörgum ríkjum
Bandaríkjanna eru að rannsaka
gjörðir Zoom varðandi öryggis- og
einkamál notenda. Þetta er nú þeg-
ar til athugunar í Connecticut,
New York og Flórída. Hefur al-
ríkislögreglan FBI vakið athygli á
þeim möguleika að Zoom-fundi
mætti ræna í heild sinni.
Yuan hét því í fyrri viku að efla
öryggis- og gagnavarnir og baðst
afsökunar á því sem úrskeiðis hefði
farið. „Við játum að við höfum ekki
staðið okkur í samræmi við vænt-
ingar um öryggis- og einkamála-
varnir. Yfir því er ég afar hrygg-
ur,“ sagði hann.
Zoom var í meginatriðum hann-
að fyrir stórfyrirtæki til samskipta
þeirra við tæknisveitir sínar og að
tryggja þeim stuðning og varnir,
að sögn Yuan.
„Við þróuðum ekki vöruna af
þeirri framsýni að nokkrum vikum
síðar yrðu jarðarbúar allt í einu
allir vinnandi, nemandi eða djamm-
andi að heiman,“ sagði Yuan.
„Þessir nýju notendur hafa hjálpað
okkur við að draga fram í dags-
ljósið óvænta galla í kerfunum.“
Að sögn stofnunarinnar Electr-
onic Frontier Foundation er það
góðs viti að Zoom gangist við ör-
yggisvanda og heiti því að lagfæra
hann. „Fyrir Zoom liggur heilmikil
vinna við úrbæturnar ætli það sér
að endurreisa traust á búnaði sín-
um,“ segir Gennie Gebhart, rann-
sóknarstjóri stofnunarinnar.
Greinandi hjá fyrirtækinu Creat-
ive Strategies, Carolina Milanesi,
segir við AFP-fréttaveituna, að á
sama tíma og það skoðar bráðan
vanda sinn megi það ekki missa
sjónar á framtíðinni. „Að endur-
taka það sem Zoom hefur orðið á
er ekki erfitt,“ segir hún. „Þeir
þurfa að velta fyrir sér hvert þeir
vilja stefna.“
Zoom snýr á kórónuveiruna
Smáforritið Zoom til fjarfundahalda á netinu hefur öðlast miklar vinsældir eftir að kórónuveiran
hóf herför sína um heimsbyggðina Hefur það m.a. verið brúkað til ríkisstjórnarfunda
AFP
Ríkisstjórnarfundur Frá fundi Boris Johnsons, forsætisráðherra Breta, með samráðherrum á Zoom úr Downingstræti 10. Þar var hann í einangrun vegna
kórónuveirufaraldursins og fjarfundatæknin eina leiðin fyrir hann að funda með ráðherrum sínum. Johnson hefur síðan verið fluttur á sjúkrahús.
AFP
Fjarjóga Jógakennarinn Chaukei Ngai fagnar nemendum í Zoom-fjartíma sem hún stýrir frá Hong Kong.
AFP
Merki Táknmerki Zoom-smáforritsins sem öðlast hefur gríðarlega notkun.