Morgunblaðið - 08.04.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 08.04.2020, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2020 Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar & sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði 40 ár á Íslandi Sláttutraktorar Þessir skólakrakkar í borginni Huaian í Jiangsu- héraði í Kína sneru aftur til náms eftir langa bið, en upphaf vorannar frestaðist í kínverskum skól- um vegna kórónuveirufaraldursins. Kennarar sem nemendur fóru að öllu með gát og gengu um með grímu. Kínverjar sjá nú ljósið fyrir enda ganganna í heimsfaraldrinum, en opnað var fyrir ferðalög út úr Wuhan-borg í Hubei-héraði, þar sem fyrstu tilfelli kórónuveirunnar komu upp. Voru íbúar borgarinnar að sögn AFP-fréttastofunnar fegnir því að ferðabanni þeirra var loksins aflétt. Ljósið fyrir enda ganganna að birtast Kínverjum í ýmsum myndum AFP Vorönnin hefst á ný eftir faraldurinn Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Nær ein og hálf milljón manns hefur nú veikst af kórónuveirunni, og rúm- lega 80.000 manns hafa látið lífið. Faraldurinn hefur reynt svo á heil- brigðiskerfi ríkja heims, að Alþjóða- heilbrigðisstofnunin WHO áætlaði í gær að það vantaði um sex milljónir menntaðra hjúkrunarfræðinga til þess að hægt væri að ráða almenni- lega við ástandið. Dauðsföllum fjölgaði nokkuð í ríkjum Evrópu, þar á meðal á Ítalíu, þar sem stjórnvöld höfðu verið von- góð síðustu daga um að faraldurinn væri kominn í rénun. Svipaða sögu var að segja á Spáni, þar sem rúmlega 700 létust, en stjórnvöld þar sögðu hina háu dánar- tölu í gær aftur á móti skýrast af því að þar væru tekin með þau andlát helgarinnar sem ekki höfðu áður verið tilkynnt. Telja Spánverjar sig því enn vera á leiðinni yfir erfiðasta hjallann. Í Frakklandi voru aftur á móti til- kynnt 830 andlát á einum sólarhring, eitt hið mesta þar í landi frá því að kórónuveiran kom upp. Stjórnvöld í Svíþjóð tilkynntu í gær að 114 manns hefðu látist á ein- um sólarhring og að þau hygðust herða á aðgerðum sínum gegn veir- unni, en sóttvarnayfirvöld þar hafa ekki gripið til sömu aðgerða og flest nágrannaríki Svía. Alls hefur nú 591 dáið í Svíþjóð af völdum veirunnar, en staðfest tilfelli eru 7.693. Svíar hafa þó ekki prófað fyrir veirunni nema hjá þeim sem leita til sjúkra- húsanna með alvarleg einkenni. „Ekki tíminn til að slaka á“ Samkvæmt tölum Johns Hopkins- háskólans hafa nú nærri 400.000 manns greinst með kórónuveiruna í Bandaríkjunum, fleiri en í nokkru öðru ríki. Dauðsföllum þar fjölgaði mjög í gær, en samkvæmt talningu háskólans létust 1.150 manns í Bandaríkjunum á einum sólarhring. Gert er ráð fyrir því að sú tala muni hækka mjög á næstu dögum, en Bandaríkjamenn hafa þegar verið varaðir við því að vikan sem nú stendur yfir muni reynast sú erf- iðasta sem þeir hafi lifað til þessa. Í New York-ríki mátti þó greina örlítinn vonarneista, þar sem nokkuð hægðist á fjölgun staðfestra dánar- tilfella af völdum veirunnar á milli daga. Andrew Cuomo ríkisstjóri sagði hins vegar að nú væri ekki tím- inn til þess að „slaka á“ í baráttunni og Bill de Blasio, borgarstjóri New York-borgar, sagði að borgin væri að berjast við hinn ósýnilega óvin með öllum mögulegum ráðum. Engu að síður hafa nú að minnsta kosti 5.500 manns dáið í New York- ríki af völdum kórónuveirunnar og vakti embættismaður á vegum borg- arinnar máls á því í gær að gerðir yrðu tímabundnir grafreitir, þar sem grafnir yrðu skurðir sem gætu tekið á móti tíu kistum hver, til þess að létta á útfararstjórum í New York. Pat Marmo, einn þeirra, sagði í gær við AFP-fréttastofuna að hann hefði þrisvar sinnum meira að gera en á venjulegum degi. „Þetta er eins og 11. september, bara dag eftir dag eftir dag.“ Stefnt að frekari aðstoð Þá keppast stjórnvöld ýmissa ríkja við að setja saman svonefnda „neyðarpakka“ sem geti forðað efna- hagslífi þeirra frá því að hrynja al- farið vegna afleiðinga veirunnar. Stjórnvöld í Japan hyggjast leggja fram neyðaraðstoð upp á 1.000 millj- arða bandaríkjadala, en sú fjárhæð nemur um 20% af landsframleiðslu Japans. Þá vakti Donald Trump Banda- ríkjaforseti máls á því í gær að settur yrði saman annar neyðarpakki fyrir bandarísk fyrirtæki, en Bandaríkja- þing samþykkti nýverið slíkan pakka upp á um 2.000 milljarða bandaríkja- dala. Sagði Trump að hann vildi jafn- vel setja saman annan pakka sem yrði þá svipað stór og sá fyrri. Dauðsföllum fjölgar enn á ný  Rúmlega 80.000 manns hafa nú farist af völdum kórónuveirunnar  Dauðsföllum fjölgar í ríkjum Evrópu  Svíar boða harðari aðgerðir gegn veirunni  1.150 dauðsföll í Bandaríkjunum á einum degi AFP Faraldur Útfararstjóri í Frakklandi með grímu undirbýr jarðarför. Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, var í gærkvöldi sagður í stöðugu ástandi, en hann var fluttur í fyrradag á gjörgæsludeild St. Thom- as-sjúkrahússins í Lundúnum vegna kórónuveirunnar. Sagði talsmaður Johnsons að hann væri á gjörgæslu svo læknar gætu fylgst náið með líðan hans og að Johnson liði eftir atvikum vel. Fyrr um daginn kom fram að John- son, sem er 55 ára gamall, fengi súr- efni en hann hefði ekki þurft neina að- stoð aðra við öndun og væri ekki kominn í öndunarvél. Heimildir Daily Telegraph hermdu að þær rannsókn- ir sem gerðar hefðu verið á Johnson bentu ekki til þess að hann væri kom- inn með lungnabólgu, en engu að síð- ur væri áhyggjuefni að hann ætti við öndunarerfiðleika að stríða nú þegar hann hefur verið með einkenni kór- ónuveirunnar í meira en tíu daga. Dominic Raab utanríkisráðherra sinnir verkefnum Johnsons meðan hann er á sjúkrahúsi og sagðist hann vera viss um að Johnson myndi ná að sigrast á veirunni. Ástand Johnsons stöðugt  Forsætisráð- herrann hefur ekki þurft öndunarvél AFP Bretland Sendifulltrúi frá Pakistan kemur með blóm að Downingstræti 10, embættisbústað breska forsætisráðherrans, vegna veikinda Johnsons. Thomas Modly, settur flota- málaráðherra Bandaríkjanna, sagði í gærkvöldi embætti sínu lausu, en hann hafði verið harka- lega gagnrýndur fyrir ræðu sem hann flutti fyrir áhöfn flugmóð- urskipsins USS Theodore Roose- velt. Nokkur styr hefur staðið um skipið síðustu daga eftir að skip- herra þess, Brett Crozier, var settur af, en hann hafði þá skrifað bréf til yfirmanna sinna þar sem hann var- aði við því að kórónuveiran léki nú lausum hala á skipinu og því þyrfti að færa sem flesta frá borði. Í ræðu sinni beitti Modly fúk- yrðum til að verja ákvörðun sína um að reka Crozier og kallaði hann bæði „of barnalegan“ og „of heimskan“ til þess að ráða við að stýra svo stóru skipi. Crozier er hins vegar vel liðinn meðal fyrrverandi áhafnar sinnar og féll ræðan því í grýttan jarðveg. Modly baðst afsökunar á ummælum sínum og ákvað að segja af sér. Flotamála- ráðherrann segir af sér Thomas Modly  Ummæli hans gagnrýnd harkalega
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.