Morgunblaðið - 08.04.2020, Page 34

Morgunblaðið - 08.04.2020, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Svo virðist semögn sé fariðað rofa til í kórónuveiru- faraldrinum í þeim ríkjum Evrópu sem verst hafa orðið úti, þó að enn séu eflaust mánuðir í að hann verði að fullu yfirstaðinn. Sá dagur rennur sem betur fer upp á endanum, en eflaust mun það taka mun lengri tíma áður en ríki heimsins jafna sig að fullu á afleiðingum farald- ursins. Hin efnahagslegu áhrif eru þegar komin að einhverju leyti í ljós og hafa menn jafnvel jafnað faraldrinum við síðari heims- styrjöld, sem gerði stóran hluta Evrópu að rústum einum. Ljóst er að sum ríki álfunnar eru verr undir það búin að reisa sig upp að nýju en önnur, og hefur því jafnvel verið talað um „Mar- shall-aðstoð“, sem ríki Evrópu- sambandsins geti sammælst um að veita hvert öðru til þess að tryggja að ekkert aðildarríkj- anna dragist aftur úr hinum þeg- ar allt verður um garð gengið. Þessar hugmyndir hafa hins vegar, líkt og hér hefur verið getið áður, ýtt undir deilur á milli aðildarríkjanna, sem skiptast nú nánast í tvær blokk- ir, aðra í norðri og hina í suðri, um afstöðuna til þess hvort að- ildarríkin eigi sameiginlega að ábyrgjast þær skuldir sem stofna þarf til vegna endurreisn- arinnar, eða hvort frekar eigi að treysta á neyðarlán frá Seðla- banka Evrópu, svipað þeim sem knésettu fullveldi Grikkja í eft- irköstum evrukrísunnar 2012. Ítalir og Spánverjar hafa ekki talið slík lán koma til greina, enda telja þeir það ekki bjóð- andi, þegar um er að ræða vanda sem sannarlega er ekki kominn til af þeirra völdum. Frakkar hafa lagst á sveif með þeim, en sumir stjórnmálaskýr- endur telja þann stuðning meðal ann- ars vera vegna þess að krafa Ítala og Spánverja um kór- ónubréf gæti á endanum leitt til þess að ríki evrusvæðisins neyddust til þess að samþætta fjármál sín enn frekar og jafnvel taka upp sameiginleg fjárlög. Allar hugmyndir um sameig- inlega ábyrgð á skuldum eru hins vegar eitur í beinum Þjóð- verja, Hollendinga og annarra ESB-þjóða sem þekktar eru fyr- ir ráðvendni í fjármálum sínum, enda þætti líklega flestum stjórnmálamönnum erfitt að út- skýra fyrir skattborgurum sín- um hvers vegna verið sé að nýta þeirra fé til að borga fyrir óráðsíu annarra þjóða. Svo rammt hefur kveðið að þessum deilum, að Angela Merk- el Þýskalandskanslari sagði í byrjun vikunnar að um væri að ræða eina mestu áskorun við ein- ingu Evrópusambandsins frá því að ríki Evrópu hófu samruna- ferlið. Bætti hún raunar við að það væri allra hagur, og sérstak- lega Þýskalands, að aðildarríkin fyndu sameiginlega leið út úr þeirri kreppu sem fyrirsjáanleg er. Fjármálaráðherrar Evrópu- sambandsins funduðu síðdegis í gær með það að markmiði að finna sameiginlega leið, en óvíst er um niðurstöðu þegar þetta er skrifað. Ef og þegar hún liggur fyrir þurfa leiðtogarnir að funda, sem áformað er að verði eftir páska. Á meðan vex vandinn og óánægjan með að Evrópusam- bandið skuli enn og aftur bregð- ast þeim sem veikast standa, þrátt fyrir allt tal um samstöðu og samþættingu. Enn kraumar undir innan ESB}Deilt um „kórónubréf“ Kórónuveirangerir ekki mannamun. Hún virðir hvorki þjóð- erni né kynþætti, þótt hún leggist þyngra á aldna en unga og leiki karla verr en konur. Það skýtur því skökku við að veirunni skuli hafa tekist að kveikja fordóma og leiða til ofsókna og kynþáttaníðs eins og lesa má í fréttum víða að. Kínverskir verkamenn á Ítalíu hafa kvartað undan því að hafa orðið fyrir fordómum og misst vinnu vegna uppruna síns. Í Kenía grýtti hópur manna til bana mann vegna gruns um að hann væri smitaður af veirunni. Margar sögur hafa farið á kreik um veiruna sem ekki fá staðist. Kínverskir embættis- menn hafa meira að segja látið að því liggja að hún sé verk Bandaríkjahers. Í gær greindu þýsk stjórnvöld frá því að merki væru um að kór- ónuveiran hefði kynt undir gyð- ingahatri í Þýska- landi. Þetta var rak- ið til samsæris- kenninga og sagði Felix Klein, sem stýrir baráttu þýskra stjórnvalda gegn andúð á gyðingum, að beint samhengi væri á milli þeirra og vaxandi andúðar. Nefndi hann að á net- inu gengju kenningar um að kór- ónuveirufaraldurinn væri afleið- ing misheppnaðrar tilraunar ísraelsku leyniþjónustunnar með veiruvopn og að öfgamenn hefðu á undanförnum vikum reynt að nýta veiruna sér til framdráttar. Slíkur spuni kemur engum að gagni og er rétt að hafa varann á sér. Kórónuveiran veldur nógu tjóni þótt hún verði ekki að verk- færi til að ýta undir fordóma, hatur og ofsóknir. Það eru ljótir fylgikvillar. Kórónuveiran veldur nógu tjóni þótt hún verði ekki að verkfæri til að ýta undir fordóma, hatur og ofsóknir} Fylgikvillar kórónuveirunnar M eirihluti mannkyns býr nú við ferðatakmarkanir af ein- hverju tagi og atvinnulíf er sem lamað víða. Hver hefði trúað því fyrir nokkrum vik- um að slík yrði raunin í lýðræðisþjóðfélögum nútímans? Ráðamenn um allan heim takast á við út- breiðslu faraldursins með aðstoð heilbrigðis- yfirvalda og reyna jafnframt samtímis að bregðast við og lágmarka efnahagslegt tjón sem af honum leiðir. Sviðmyndir taka sífelld- um breytingum og þær sem teiknaðar voru upp í gær eru úreltar í dag. Allra leiða er leitað til að koma í veg fyrir fjöldagjaldþrot fyrir- tækja og að fólk haldi atvinnu sinni. Í þessu skyni hefur Alþingi samþykkt samhljóða að- gerðir til að draga úr efnahagslegum áhrifum faraldursins. Miðflokkurinn hefur bent á að hann styðji allar aðgerð- ir sem ganga í þá átt að halda uppi atvinnu og aðstoða fyrirtækin við að komast gegnum brimrótið. Við höfum einnig bent á að ganga þurfi lengra og að ekki megi bíða með aðgerðir sem skipta atvinnulífið mestu máli. Frestun á gjalddögum getur verið skammgóður vermir. Fyrir- tæki, sem nú horfa upp á brotthvarf viðskiptavina sinna, eru ekki betur í stakk búin til að greiða opinber gjöld eftir þrjá eða sex mánuði. Lækka þarf verulega eða fella tíma- bundið niður tiltekin gjöld, t.d. tryggingargjald. Sveitar- félögin þurfa að lækka fasteignagjöld enda hafa þau hækkað verulega á undanförnum árum. Með það að markmiði að skapa atvinnu og spara gjaldeyri er nú tækifæri og tími til að efla innlenda landbúnaðar- og grænmetis- framleiðslu. Efla þarf ýmsa innlenda starf- semi eins og nýsköpun og rannsóknir. Við þurfum að vera sjálfum okkur nóg um sem flesta hluti. Skapa má störf með einföldum að- gerðum í þessa veru, t.d. með lækkun á raf- orkuverði til gróðurbænda, innspýtingu í skógrækt og átaki í kornrækt. Miðflokkurinn hefur bent á að í því skyni að verja heimilin þurfi að frysta verðtrygg- inguna. Undirtektir af hálfu ríkisstjórn- arinnar hafa reynst dræmar. Krónan hefur fallið í verðgildi og fylgir því óhjákvæmilega hækkun vöruverðs innanlands, sem aftur leið- ir af sér hækkun vísitölu. Stöðva þarf þessa keðjuverkun strax til að koma í veg fyrir hækkun verð- tryggðra skulda heimilanna svo sagan frá hruninu end- urtaki sig ekki. Síðar kemur í kjölfarið langþráð tækifæri til að aflétta þessari 40 ára gömlu áþján af heimilum landsmanna. Miðflokkurinn hefur umfram allt talað fyrir almennum aðgerðum, þeim sem gagnast sem flestum. Aðgerðir þurfa að vera víðtækar og koma fljótt. Mikið liggur við og því þurfa meðölin að vera öflug. Karl Gauti Hjaltason Pistill Sviðsmyndir súrna Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Suðurkjördæmi. kgauti@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen flytti þjóðinni ávarp við fjármála- hrunið haustið 2008 en það féll í hlut Geirs H. Haarde, þáverandi forsætis- ráðherra, að greina þjóðinni frá ótíð- indunum í beinni útsendingu. Lauk dramatísku ávarpi hans með orð- unum „Guð blessi Ísland“. Líklega hefur ekki þótt koma til greina að Ólafur Ragnar ávarpaði þjóðina á þessum tíma vegna þess hve margir litu svo á að hann bæri á vissan hátt nokkra ábyrgð á áfallinu með stuðn- ingi sínum við umdeilda viðskipta- jöfra og útrásina svonefndu. Til að efla samheldni Þá hafa forsetar Íslands ávarp- að þjóðina þegar þeir hafa flutt ræð- ur í beinni útsendingu útvarps og sjónvarps á þjóðhátíðardaginn, 17. júní, og á þjóðhátíðum sem haldnar hafa verið á Þingvöllum. Þau ávörp sem forsetarnir hafa flutt þjóðinni utan hefðbundinna skyldustarfa hafa fyrst og fremst haft þann tilgang að efla sam- heldni fólks, telja kjark í lands- menn og skapa tilfinningu fyrir því að viðburðirnir snerti sam- félagið allt og kalli á umhugsun, stuðning og samhug allra lands- manna. Sama er að segja um ávörp þjóðhöfðingja ann- arra landa við sams kon- ar tilefni, enda eru þessi embætti á sinn hátt sameiningartákn þjóð- anna. Ávörp flutt á erfiðum stundum í lífi þjóða Guðni Th. Jóhannesson ræðir hlutverk forseta Íslands á vís- indavef háskólans. Hann bendir á að forsetinn sé eini embættismaður ríkisins sem kosinn er beinni kosningu allra kjósenda. „Frá upphafi var þess vegna litið svo á að forseti ætti að stefna að því að vera „sameiningartákn“ Ís- lendinga. Með því var átt við að í embætti sínu kæmi hann fram fyrir hönd þjóðarinnar allrar innanlands sem utan.“ Honum sé ætlað að sýna fyllstu hlutlægni. Þar að auki sé forseta ætlað að tala til þjóðar sinnar á tímamót- um og örlagastundum, t.d. þegar voði eða vá dynur yfir, til dæmis eldgos eða snjóflóð. Með þessum hætti sé forseta ætl- að að stuðla að einingu fólks. Stuðli að ein- ingu þjóðar HLUTVERK FORSETANS Guðni Th. Jóhannesson Morgunblaðið/Eggert Bessastaðir Embætti forsetans er gjarnan lýst sem sameiningartákni. SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Forseti Íslands, Guðni Th.Jóhannesson, mun ávarpaokkur Íslendinga í beinniútsendingu í sjónvarpi síð- degis á páskadag. Mun hann þar ræða kórónuveirufaraldurinn sem nú skekur heimsbyggðina og hefur lam- að athafnalíf hér á landi. Sjaldgæft er að forseti flytji sérstakt ávarp til landsmanna í beinni útsendingu ef undan er skilið hefðbundið ávarp í út- varpi og sjónvarpi á nýársdag. Það ávarp á sér sögu allt frá upphafi for- setaembættisins við stofnun lýðveld- isins. Þjóðhöfðingjar nágrannaland- anna hafa einnig ávarpað landsmenn sína undanfarna daga vegna veiru- faraldursins, m.a. Margrét Dana- drottning, Karl Gústaf Svíakonungur og Elísabet Englandsdrottning. Ávörp við sérstök tilefni Dæmi eru þó um að fyrirrenn- arar Guðna á forsetastól hafi flutt þjóðinni ávörp í beinni útsendingu við sérstök tilefni. Kristján Eldjárn ávarpaði þjóðina eftir harmleikinn á Þingvöllum þegar Bjarni Benedikts- son forsætisráðherra, kona hans og dóttursonur létust í eldsvoða 10. júlí 1970. Það gerði Kristján einnig dag- inn sem eldgosið hófst í Heimaey 23. janúar 1973 og flytja þurfti alla íbúana á brott. Vigdís Finnbogadóttir flutti ávarp til þjóðarinnar 16. janúar 1995 eftir snjóflóðin á Súðavík. Hún flutti einnig ávarp í sérstakri dagskrá á báðum sjónvarpsstöðvunum þremur dögum seinna, en þá hófst lands- söfnun til stuðnings íbúum á Súðavík eftir snjóflóðin þar tveimur dögum fyrr. Þá ávarpaði Vigdís þjóðina í út- varpi og sjónvarpi 26. október sama ár eftir að snjóflóð féllu á byggðina á Flateyri. Ólafur Ragnar Grímsson hafði annan stíl. Hann ávarpaði þjóðina með óbeinum hætti á blaðamanna- fundum í beinni útsendingu þegar hann braut blað í sögu embættisins með því að synja lögum frá Alþingi staðfestingar, fyrst fjölmiðlalögunum sumarið 2004 og síðan Icesave-lögunum tvívegis 2010 og 2011. Sama gerði hann í apríl 2016 þegar hann synjaði þáverandi for- sætisráðherra um heimild til þing- rofs. Ætla hefði mátt að forsetinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.