Morgunblaðið - 08.04.2020, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 08.04.2020, Blaðsíða 45
MINNINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2020 ✝ Jón GunnarSveinsson fæddist 10. júlí 1959 í Hafnarfirði. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítalans 28. mars 2020. Foreldrar hans voru Sveinn Krist- jánsson og Val- gerður Þórunn Kristjánsdóttir. Jón á fimm systkini, þau eru a) Magnea, maki Viðar Hólm, barn Ástrós Björk, maki Árni Huldar, börn Ásdís María, faðir Hrafn Leó, Sveinbjörn Viðar og Steinþór Ári Árnasynir. b) Kristján c) Hjalti Þór, maki Torild, barn Jórunn. d) Haraldur Már. e) Guðrún, maki Ein- ar, börn Tryggvi og Kristín. Útför fór fram í kyrrþey. Jón frændi, með þessu bæna- versi kveðjum við þig. Drottinn, láttu mig dreyma vel sem dyggan þjón þinn Ísrael þegar á steini sætt hann svaf sæla værð hinum náð þín gaf. (Hallgrímur Pétursson) Ásdís María, Sveinbjörn Viðar og Steinþór Ári. Hann var sannur vinur vina sinna og örlæti hans í þeirra garð var takmarkalaust. Við sem vor- um svo lánsöm að vera í þeim hópi vorum ekki svikin. Hann smitaði okkur með einlægri gleði sinni og var ætíð fyrstur til að bjóða fram vinnu sína fyrir okkur hin, oftast óumbeðinn. Við vorum starfsfélagar í Austurbæjarskóla um árabil en hittumst líka iðulega utan starfstíma skólans. Jón naut þess mjög að ferðast og var mikill sóldýrkandi. Við minnumst þess þegar við fórum nokkur saman vinnufélagar til Krítar eitt sum- arið. Jón Gunnar lét sig ekki muna um að bjóða öllum hópnum út að borða á góðan veitingastað og var potturinn og pannan í öllu sem gert var. Annað sumar dvöldumst við nokkur saman í Cambridge í tvær vikur og nut- um þar dásamlegra daga innan um kýr á beit á grænum grund- um í miðborginni. Mikið sem var hlegið dátt í þeirri ferð. Eru þá ótaldar aðrar ferðir og viðburðir á vegum skólans þar sem Jón Gunnar var ómissandi maður. Betri ferðafélaga og vin var ekki hægt að hugsa sér, brosandi, glaðan og gefandi. Samband Jóns og Guðmundar Sighvatssonar, skólastjóra og yfirmanns til margra ára, var einstaklega fal- legt. Traustið var algert og kær- leikurinn augljós. Guðmundur lést fyrir aldur fram árið 2018 og var það á einhvern hátt táknrænt að Jón skyldi kveðja þessa jarð- vist á útfarardegi hans. Svona eins og til að sýna lokasamstöðu. Það fer ekki hjá því að hugur okkar hinna hvarfli líkt og hjá Þórbergi forðum til allífsins. Skyldu nú þessir einstaklega lífs- þyrstu og kátu félagar hafa náð saman á ný hinum megin? Vel má vera að Jón Gunnar hafi farið að kenna þess meins er að lokum dró hann til dauða fyrir nokkuð löngu og grunað sem var. En honum var andstætt að játa vanmátt sinn og aldrei vildi hann viðurkenna að hann væri veikur að ráði. Hann mætti til vinnu meðan stætt var og mun lengur. Það leyndi sér ekki að hann var þjáður, en stóru brúnu augun urðu enn stærri og full af heilagri vandlætingu ef maður spurði eft- ir heilsu hans, sem hann sagði vera fína, og hvað með það? Það er bjart yfir minningu okkar kæra vinar og sárt að horfa á bak honum fyrir aldur fram. En við viljum trúa því að hann hafi verið sáttur á sinn hátt við þetta verkefni eins og önnur sem hann tókst á hendur af eðlislægri bjartsýni og dugnaði. Trúr og staðfastur. Þannig minnumst við hans. Hann bar mikla virðingu fyrir vinnustað sínum. Þar voru allir jafnir í hans augum, yngri sem eldri. Mannúð og jöfnuður hafa löngum einkennt menningu Austurbæjarskóla og þær dyggð- ir voru Jóni í blóð bornar. Hann stóð sína vakt brosandi og glaður og skipar sér í hóp eftirminni- legra skólamanna og kvenna sem gengin eru af þeim bæ. Blessuð sé minning góðs drengs. Bragi og Kristín. Lát flugvélar emja yfir landi og sjó, skrifa’ á loftin skýjastöfum að hann dó. (W.H. Auden. Þýð. Þorst. Gylfason) Veikindastríð Jóns Gunnars Sveinssonar var bæði langt og erfitt. Einveran á sjúkrahúsinu þungbær í skugga Covid 19-veir- unnar. Að því leyti er gott að þjáningum hans skuli vera lokið. En það skal skrifað skýrum stöf- um, að við sem þekktum hann einna best eftir margra ára sam- starf í Austurbæjarskólanum hörmum örlög hans. Þangað kom hann árið 1998 og áleit það eitt mesta lán sitt í lífinu að fá að starfa þar undir stjórn Guðmundar Sighvatssonar. Enda varð þeim vel til vina. „Forlög koma ofan að, örlög kringum sveima,“ segir í gamalli rímu. Jón lést á útfarardegi Guðmundar, 28. mars sl. Jóni þótti vænt um skólann og eignaðist þar marga sína bestu vini. Hann var óvenju fjölhæfur og var trúað fyrir ólík- um verkefnum, var t.d. skólarit- ari hluta dags. Þó minnast gamlir nemendur hans fyrir annað. Um árabil útbjó Jón gómsætar sam- lokur til að seðja hungur ung- linga í frímínútum, þekkti alla með nafni og nægði að sjá hver mættur var að borðinu hverju sinni. Þá greip hann réttu sam- lokuna og rétti viðkomandi. Oft bjargaði hann skóladegi þeirra, sem voru auralitlir. Þeim var treyst til að borga síðar. Svo mik- ið veit ég, að sumir höfðu úr litlu að moða og gleyma þessu seint. Veganestið úr Fjölbrautaskólan- um í Breiðholti reyndist Jóni drjúgt. Þar spreytti hann sig á matargerð undir styrkri hand- leiðslu öðlingsins Bryndísar Steinþórsdóttur. Ekki lét árang- urinn á sér standa. Jón varð afar snjall á því sviði. Á sama hátt er ég þess fullviss, að manngæska hans og traust til nemenda eigi eftir að verða þeim gott veganesti út í lífið. Mennskan var lengstum eitt af leiðarstefjum Austurbæj- arskólans. Hvað ungur nemur gamall temur. Verkin voru látin tala en minna masað. Jón var slyngur skólaritari, talnaglöggur og minnugur. Mundi yfirleitt hvar allir voru staddir í húsinu hverju sinni og hverjir voru fjar- verandi. Minnið nýttist vel þegar hann aðstoðaði við stundatöflug- erð. Þar komu stjórnendur ekki að tómum kofunum. Jón var ljúf- menni, gamansamur, þótt alvar- an byggi undir niðri, einlægur, réttsýnn og mikill vinur vina sinna. Hann var bóngóður og allt- af tilbúinn að aðstoða, t.d. þegar einhver var búinn að flækja pappírinn í ljósritunarvélinni. Jón hafði mikinn áhuga á íþrótt- um. Ég fór tvisvar með honum til Englands að horfa á knattspyrnu og ófá skipti sátum við saman við þá „iðju“ ásamt Guðmundi Sig- hvatssyni. Mér er minnisstætt hversu örlátur Jón var. „Ég skal borga“ sagði hann stundum, eins og hann þyrfti að losa sig við pen- ingana. Örlæti hans kom einnig fram í gjöfum til skólans, ekki síst bókasafnsins. Jón var mikil- vægur hlekkur í þeim góða hópi sem vann í Austurbæjarskólan- um í upphafi 21. aldarinnar, liðs- andinn einstakur og fólk tilbúið að leggja ýmislegt á sig bæði í leik og starfi. Þá var Jón virkur í stjórn Hollvinafélags Austurbæj- arskóla. Vinir hans syrgja látinn vin en gleyma honum ekki. Fyrir hönd nokkurra sam- starfsmanna, Pétur Hafþór Jónsson. Jón Gunnar Sveinsson starfaði við Austurbæjarskóla í rúm 20 ár og sinnti mörgum mikilvægum störfum innan skólans. Síðustu ár vann hann sem stuðningsfulltrúi og var þar kennurum til aðstoðar við að sinna einum eða fleiri nemendum sem þurftu á sérstakri aðstoð að halda. Lagði Jón Gunnar sig fram í störfum sínum með nemendum og var í mun að þeir öðluðust aukna færni og sjálfstæði, jafnt félagslega sem í námi. Upp úr hádegi, þegar starfs- degi Jóns Gunnars í Austurbæj- arskóla lauk, starfaði hann sem frístundaleiðbeinandi í Frístundaheimilinu Drauma- landi. Jón Gunnar var réttsýnn mað- ur, bóngóður og athugull og sennilega einn af fáum starfs- mönnum skólans sem þekktu alla nemendur og jafnvel systkini, foreldra, afa og ömmu með nafni. Samband hans við nemendur ein- kenndist af virðingu og hlýju enda vissu þeir að til hans gátu þeir leitað með öll möguleg og ómöguleg mál. Jóni Gunnari þótti afar vænt um skólann sinn og átti í hópi samstarfsmanna góða vini. Sam- ferðamenn í Austurbæjarskóla sjá á bak góðum félaga og kveðja hann með söknuði og þakklæti. Ástvinum hans öllum sendi ég hugheilar samúðarkveðjur. Kristín Jóhannesdóttir. Jón Gunnar Sveinsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, og langamma, MARÍA BÆRINGSDÓTTIR, Skólastíg 14a, Stykkishólmi, lést á Sjúkrahúsinu í Stykkishólmi þriðjudaginn 31. mars. Í ljósi aðstæðna mun útför hennar fara fram í kyrrþey. Minningarathöfn verður haldin síðar. Þeim sem vilja heiðra minningu Maríu er bent á Minningarkort Dvalarheimils aldraðra í Stykkishólmi, s. 433-8165, til stuðnings félagsstarfi eldri borgara. Árþóra Ágústsdóttir Þorsteinn Gunnarsson Harpa Ágústsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RAGNAR INGI HARALDSSON bifreiðarstjóri, Grundarfirði Kistulagning með nánustu aðstandendum og bálför fór fram þriðjudaginn 7. apríl. En vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verður útför í sumar. Nánar auglýst síðar. Þökkum auðsýndan hlýhug. Aðstandendur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ARNDÍS LILJA NÍELSDÓTTIR, Boðahlein 10, Garðabæ, lést á líknardeild LHS í Kópavogi aðfaranótt 3. apríl. Útför fer fram þriðjudaginn 21. apríl klukkan 13. Vegna aðstæðna í samfélaginu verður streymt frá athöfninni og hægt er að hafa samband við aðstandendur og fá aðgang að henni. Stefnt er að minningarstund síðar þegar aðstæður leyfa. Kristjana Þ. Ásgeirsdóttir Guðni Gíslason Guðrún Ásgeirsdóttir Guðmundur Tómasson Lilja Petra Ásgeirsdóttir Erlendur M. Magnússon Guðlaug Ásgeirsdóttir Eiríkur Arnarson Níels Árni Ásgeirsson Denice Baker barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR JÓHANNESSON, bóndi Helguhvammi, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga þriðjudaginn 31. mars. Útförin fer fram í Hvammstangakirkju miðvikudaginn 8. apríl klukkan 14. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða bara nánustu aðstandendur viðstaddir. Hægt er að hafa samband við aðstandendur til að fá aðgang að streymi frá athöfninni, einnig verður útvarpað á fm 106,5 á Hvammstanga. Helga Magnúsdóttir Elín Kristín Guðmundsdóttir Ólafur Benediktsson Þorbjörg Vigdís Guðmundsd. Sigtryggur Sigurvaldasson Sigurður M. Guðmundsson María Inga Hjaltadóttitr og barnabörn Kær móðir okkar og sambýliskona, JÓNA KJARTANSDÓTTIR, Akureyri, lést laugardaginn 28. mars. Kistulagning og bálför hafa farið fram. Útför fer fram síðar þegar aðstæður í þjóðfélaginu leyfa. Pétur Stefánsson Emil Helgi Pétursson Sigurrós Pétursdóttir Sigurður Örn Bergsson Hólmfríður Jóhanna Steinþórsdóttir Lilja Steinþórsdóttir Steinþór Steinþórsson Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ELÍ BÆRING EINARSSON, fyrrverandi sjómaður og hreingerningarmaður, lést á Hrafnistu 23. mars. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu fór útförin fram í kyrrþey. Guðbjörn Lárus Elíson Amanda Ingibjörg Einarsdóttir Páll Rúnar Elíson Yvonne Elíson Elín Elídóttir Axel Ólafsson Sólrún Elídóttir Einar Guðlaugsson Guðrún Erna Ingimundard. Gunnar Erik Gulsrud Svanur Elíson Agnes Gunnarsdóttir Einar Bæring Elíson Sæunn Sævarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, GISSUR SIGURÐSSON fréttamaður, lést á Landspítalanum aðfaranótt 4. apríl. Jarðarför hans verður frestað um óákveðinn tíma vegna samkomubanns og auglýst síðar. Guðbjörg Gissurardóttir Jón Árnason Gissur Páll Gissurarson Sigrún Daníelsdóttir Flóvenz Jón Grétar Gissurarson Björg Alfa Björnsdóttir Hrafnhildur Gissurardóttir Helga Auðardóttir Frank Hall barnabörn Elsku bróðir okkar, mágur og frændi, JÓN GUNNAR SVEINSSON Skipholti 28, lést laugardaginn 28. mars á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut. Útförin fer fram í kyrrþey. Magnea, Kristján, Hjalti Þór, Haraldur Már og Guðrún og aðrir aðstandendur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.