Morgunblaðið - 08.04.2020, Side 47
Kennari í íslensku og
íþróttum í Laugalands-
skóla í Holtum 2020-2021
Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum
einstaklingi sem getur unnið með okkur að
einkunnarorðum skólans; „samvinna, traust og
vellíðan í leik og starfi“. Þar er lögð áhersla á
sjálfstæð og gagnrýnin vinnubrögð, með sérstakri
áherslu á félagsþroska nemenda.
Kennsluréttindi og hæfni í mannlegum samskiptum
eru nauðsynleg.
Laugalandsskóli er í um 90 km fjarlægð frá Reykja-
vík í fögru umhverfi í Holtum. Þar eru margvísleg
tækifæri til þess að njóta útiveru og náttúru. Leik-
skóli er rekinn á Laugalandi og öll venjuleg þjónusta
er á Hellu.
Húsnæði í nágrenni.
Umsóknarfrestur er til 17. apríl 2020.
Veffang: http://www.laugaland.is
Netfang: laugholt@laugaland.is
Upplýsingar veitir skólastjóri í vs. 487-6540 og
gsm. 896-4841.
Komdu að vinna með okkur!
Lausar stöður fyrir skólaárið 2020-2021
• Umsjónarkennarar á yngsta stigi (1.-4. bekkur), miðstigi (5.-7. bekkur) og efsta stigi
(8.-10. bekkur), 100% stöður.
• Kennarar í leiklist, 2 stöður (60% og 100% staða).
• Tónmenntakennari á yngsta stigi, 46% staða.
• Náms- og starfsráðgjafi (100% staða).
Við leitum að metnaðarfullum einstaklingum með mikla hæfni í mannlegum samskiptum, góða íslenskukunnáttu og
brennandi áhuga á grunnskólastarfi. Reynsla af teymisvinnu er mikilvægur eiginleiki.
Í Vallaskóla eru yfir 630 nemendur í 1.-10. bekk og yfir 100 starfsmenn, sjá www.vallaskoli.is.
Sótt er um stöðuna á vef Sveitarfélagsins Árborgar, http://starf.arborg.is
Upplýsingar veitir Guðbjartur Ólason skólastjóri (gudbjartur@vallaskoli.is).
Umsóknarfrestur er til og með 17. apríl 2020 og ráðið verður í störfin frá og með 1. ágúst 2020.
Störfin henta jafnt körlum sem konum. Launakjör fara eftir kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi
stéttarfélags.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 9 þúsund íbúar, þar af um 2000 börn í fimm leikskólum og þremur grunnskólum.
Í sveitarfélaginu er unnið að styrkingu heildstæðrar nærþjónustu við börn, foreldra og skóla. Lögð er áhersla á faglega
forystu í anda lærdómssamfélagsins, snemmtæka íhlutun, samstarf skóla og stofnana um umbótastarf og þróun úrræða
fyrir börn. Nánari upplýsingar um sveitarfélagið, fjölskyldusvið og Skólaþjónustu Árborgar má finna á www.arborg.is.
Framkvæmdastjóri
Capacent — leiðir til árangurs
Þjónustuskrifstofa FS er
þjónustueining fyrir fimm
aðildarfélög Bandalags
háskólamanna: Félag
háskólamenntaðra
starfsmanna Stjórnarráðsins,
Félag íslenskra
félagsvísindamanna,
Fræðagarð, Stéttarfélag
bókasafns- og
upplýsingafræðinga og
Stéttarfélag lögfræðinga.
Samtals eru félagsmenn
nálægt 4800.
Nánari upplýsingar má finna
hér: www.stett.is
Upplýsingar og umsókn
capacent.com/s/24625
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólamenntun/háskólapróf á sviði viðskipta, hagfræði,
stjórnunar eða sambærileg menntun.
Yfirgripsmikil þekking á vinnumarkaðsmálum og innsýn í
breytingar sem eru framundan í þeim.
Yfirgripsmikil þekking á starfsemi og starfsumhverfi
stéttarfélaga.
Stjórnunarreynsla og reynsla af störfum félagasamtaka.
Þekking á samningagerð og reynsla af samningavinnu.
Frumkvæði og metnaður til árangurs í starfi.
·
·
·
·
·
·
·
·
·
·
·
·
·
·
Umsóknarfrestur
16. apríl
Starfs- og ábyrgðarsvið:
Daglegur rekstur skrifstofu og félaga.
Starfsmannahald skrifstofu.
Undirbúningur, gerð og eftirfylgni kjarasamninga.
Þjónusta og upplýsingagjöf til félagsmanna.
Móttaka og meðhöndlun gagna.
Undirbúningur funda og gagnaöflun.
Seta í nefndum og stjórnum í umboði skrifstofu og félaga.
Ýmis tilfallandi verkefni og samskipti fyrir hönd
aðildarfélaganna.
Þjónustuskrifstofa FS leitar að öflugum framkvæmdastjóra til starfa. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem reynir
á frumkvæði og ríka samskiptahæfni. Hlutverk FS er að þjónusta fimm stéttarfélög háskólamenntaðra sérfræðinga og
gæta hagsmuna þeirra og félagsmanna.
Framkvæmdastjóri heyrir undir stjórn FS og ber ábyrgð á þjónustuskrifstofu félaganna. Viðkomandi starfar náið með
formönnum aðildarfélaganna að markmiðum FS. Leitað er að einstaklingi til að stýra og móta starfsemi mjög sjálfstæðra
sérfræðinga í margþættu og síbreytilegu umhverfi.
atvinna@mbl.is • Sölufulltrúi • Richard Richardsson, richard@mbl.is, 569 1391