Morgunblaðið - 08.04.2020, Page 48

Morgunblaðið - 08.04.2020, Page 48
48 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2020 Faxaflóahafnir sf. auglýsa laust til umsóknar starf hafnarstjóra. Hafnarstjóri er framkvæmdastjóri Faxaflóahafna, ber ábyrgð á daglegum rekstri og leiðir starfsemi Faxaflóahafna í samráði við stjórn. Hlutverk hans er að stuðla að stöðugum umbótum í takt við framsækna og nútímalega hafnarþjónustu. Leitað er að leiðtoga með gott orðspor, getu til að takast á við margvíslegar aðstæður og brennandi áhuga á verkefnum Faxaflóahafna. HAFNARSTJÓRI Ábyrgðarsvið hafnarstjóra • Daglegur rekstur félagsins í umboði hafnarstjórnar • Yfirmaður allra starfsmanna Faxaflóahafna • Ábyrgð á að fjárhags- og fjárfestingaáætlun sé fylgt og ábyrgð á fjárreiðum félagsins • Samskipti og upplýsingagjöf til hafnarstjórnar • Samskipti við eigendur, sveitarstjórnir, ríkisvaldið og atvinnulífið • Vinnur störf sín að öðru leyti í samræmi við ákvæði hafnalaga og hafnarreglugerða og samþykktir hafnarstjórnar Menntunar- og hæfnikröfur • Víðtæk reynsla af stjórnun og rekstri, þar með talið breytingastjórnun • Reynsla af stjórnun viðamikilla verkefna og áætlana • Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi • Þekking á opinberri stjórnsýslu, hafnamálum, skipulags- og umhverfismálum æskileg • Frumkvæði, drifkraftur og metnaður til að ná árangri • Leiðtogahæfni og færni til að hvetja aðra til samstarfs og samvinnu • Lipurð og færni í mannlegum samskiptum • Hæfni til að tjá sig skipulega í ræðu og riti á íslensku og ensku. Kunnátta í öðrum tungumálum er kostur Faxaflóahafnir sf. eru sameignarfélag í eigu fimm sveitarfélaga, Reykjavíkurborgar sem er stærsti eigandinn, Akraneskaupstaðar, Hvalfjarðarsveitar, Borgarbyggðar og Skorradalshrepps. Faxaflóahafnir sf. eiga og reka fjórar hafnir, Reykjavíkurhöfn, Grundartangahöfn, Akraneshöfn og Borgarneshöfn. Hjá fyrirtækinu vinna um 70 manns en Faxaflóahafnir sf. annast almenna hafnarþjónustu við skip og eiga m.a. fjóra dráttarbáta. Allar nánari upplýsingar má finna á www.faxafloahafnir.is Umsóknarfrestur er til og með 29. apríl nk. Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið. Umsóknir með ítarlegri ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á hagvangur.is. Vísindi á vakt Hjá Veðurstofu Íslands starfar öflugur hópur fólks sem hefur það hlutverk að stuðla að bættu öryggi almennings, eigna og innviða gagnvart öflum náttúrunnar. Því hlutverki sinnir starfsfólk Veðurstofunnar með vöktun lofts, láðs og lagar, byggðri á öflun og greiningu gagna, rannsóknum, þróun og miðlun upplýsinga. Jafnframt er það hlutverk Veðurstofunnar að styðja sjálfbæra nýtingu náttúrunnar og samfélagslega hagkvæmni. Nánari upplýsingar um Veðurstofu Íslands má finna á vedur.is Veðurstofa Íslands óskar eftir að ráða í tvö ný störf hópstjóra á Upplýsingatæknisviði Veðurstofu Íslands: Hópstjóri þróunar og DevOps og hópstjóri kerfisreksturs og notendalausna „Framsækni og áreiðanleiki“ eru tvö af gildum Veðurstofu Íslands og endurspeglast þau í víðtæku starfsumhverfi Upplýsingatæknisviðs. Sviðið sér um hugbúnaðarþróun, kerfisþróun og DevOps, rekstur mjög fjölbreytts upplýsingatækniumhverfis s.s. fjöldi sérkerfa, gagnagrunna og fl., auk notendaþjónustu með fjölda Linux útstöðva. Eins leggur Upplýsingatæknisvið til sérfræðiþekkingu og ráðgjöf á vettvangi upplýsingatækni sem styður við hlutverk Veðurstofu Íslands sem sinnir eftirliti og rannsóknum á náttúru Íslands. Á sviðinu starfa að jafnaði 18 starfsmenn. Við leitum að einstaklingum með háskólapróf og framhaldsmenntun sem nýtist í starfi, s.s. í tölvunarfræði, verkfræði eða sambærilegu. Meginhlutverk hópstjóranna er að veita faglega forystu og bera ábyrgð á verkstýringu verkefna. Hópstjórarnir eiga einnig að sinna sérfræðistörfum og samskiptum við innri og ytri þjónustuþega Upplýsingatæknisviðs. Ef þú hefur áhuga á að styðja vísindamenn Veðurstofu Íslands við vöktun og rannsóknir á veðri, vatni, jöklum, eldgosum, jarðskjálftum og loftslagsbreytingum, þá skaltu kynna þér starfið á Starfatorginu – starfatorg.is en þar eru að finna nánari hæfniskröfur sem gerðar eru í störfin. Umsóknarfrestur er til og með 20. apríl nk. – á Upplýsingatæknisviði TVÖ NÝ SPENNANDI STÖRF HÓPSTJÓRA Gildi Veðurstofunnar eru þekking áreiðanleiki, framsækni og samvinna. Ráðningar hjá stofnuninni taka mið af þessum gildum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.