Morgunblaðið - 08.04.2020, Page 54

Morgunblaðið - 08.04.2020, Page 54
54 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2020 60 ára Emil ólst upp á Húsavík en býr í Reykjavík. Hann er Cand.oecon í við- skiptafræði frá HÍ og MBA frá San Diego State University. Emil er stjórnarformaður Arctic Trucks. Maki: Rikke Elkjær Knudsen, f. 1962 í Danmörku, vinnur við þróun lyfja hjá Novartis. Dætur: Emma Soffía, f. 1997, og Anna Björk, f. 2002. Foreldrar: Anna Jeppesen, f. 1939, d. 2015, kennari, og Grímur Leifsson, f. 1936, d. 2019, rafvirkjameistari. Þau voru búsett á Húsavík og í Reykjavík. Emil Grímsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Vertu óhræddur við að kanna nýjar leiðir og taka einhverja áhættu. Einhver ann- ar gæti reynt að hagnast á vinnu þinni. 20. apríl - 20. maí  Naut Láttu ekki hvatvísina ráða ferðinni því þá áttu víst að sitja uppi með óþægindi. Ein- hver óánægja kemur upp varðandi ákvarð- anir þínar í starfi. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það þarf kjark til þess að komast áfram og þú getur ekki ætlast til þess að aðr- ir vinni verkin fyrir þig. Sumir dagar eru bara þannig að þeir eiga að fá að líða sem fyrst. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú gætir staðið frammi fyrir erfiðum málum á vinnustað en þú hefur alla burði til að takast á við þau. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er óþarfi að bugast þótt allt gangi ekki upp eins og best verður á kosið. Láttu það eftir þér að gera eitthvað það sem hugur þinn stendur til. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er smámisræmi í því hvernig þú sérð þig og hvaða augum allir aðrir í heim- inum líta þig. Hugaðu að því hvernig þú kem- ur fram við þína nánustu. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þótt margt mætti vera öðruvísi en það er núna hefurðu fulla ástæðu til að þakka það sem þú hefur. Vertu opin/n fyrir nýjum tækifærum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er eitthvert valdatafl í gangi í kringum þig svo þér er skapi næst að gefast upp. Ekki láta ótta þinn við höfnun halda aft- ur af þér. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú verður að geta tekið ut- anaðkomandi áreiti, annars áttu á hættu að missa tökin. Einbeittu þér að því að taka til í þínum ranni. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert ekki nógu hörð/harður í samskiptum við aðra og þyrftir að taka þig á og vera fastari fyrir. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú ert á ferðinni og þeim mun minni farangur sem þú hefur, því betra. Not- aðu innsæi þitt til þess að stjórna og beina tilfinningunum í þá átt að skapa betri fram- tíð. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er nauðsynlegt að meta málin með reglulegu millibili. Mundu að það eru miklar líkur á því að vinnuaðstæður þínar muni breytast til batnaðar á árinu. samfélags- og efnahagsmál“ 2004 og var hann stjórnarformaður fyrstu fimm árin. Rannsóknarmiðstöðin hélt margar ráðstefnur og gaf út sjö bækur. M.a. lét hún þýða og gefa út „Mystery of Capital“ eftir perúíska hagfræðinginn Hernado de Soto. Frá 1999 hefur Jóhann verið í stjórn Grundar, hjúkrunarheimilis, og síðan 2003 sem stjórnarformaður. Menningarmál og áhugamál Jóhann hefur mjög gaman af óp- erutónlist. „Ég sé allar óperur þegar færi gefst, hérlendis og erlendis. Ég var meðstofnandi Wagnerfélagsins á Íslandi og hef setið í stjórn þess frá upphafi. Ég beitti mér innan félags- ins til að fá dr. Árna Björnsson, þjóð- háttafræðing til að skrifa um hvaða áhrif íslenskar bókmenntir höfðu á líf og starf Richards Wagners. Árang- urinn varð bók Árna, „Wagner og Völsungar“ sem Mál og menning gaf út. Niðurstaðan var að rekja mátti 80% af efni Niflungahrings Wagners til íslenskra bókmennta. Þessi bók hefur verið þýdd á þýsku og ensku.“ Árið 1993 hafði Jóhann frum- kvæðið að því að haldin var mál- verkasýning í samstarfi við Gallery og 1986-1989; í stjórn Verzlunarráðs Íslands 1970-1992, þar af í fram- kvæmdastjórn frá 1976 og formaður 1986-1992. „Á Verzlunarráðs árum mínum var Guðjón B. Ólafsson, for- maður Sambands íslenskra sam- vinnufélaga. Við frændurnir, úr Svarfaðardal og frá Hnífsdal, vorum því samtímis forustumenn stærstu fyrirækjasamtaka landsins. Sam- bandið átti í miklum erfiðleikum um þær mundir og hafði ég stungið upp á því í blaðagrein að samvinnumenn breyttu sínum fyrirtækjum í hluta- félög. Guðjóni leist vel á það en því miður var orðið of seint að bregðast við.“ Jóhann hefur jafnframt fjárfest í öðrum fyrirtækjum og má þar nefna Stöð 2 þar sem hann var í stjórn og stjórnarformaður 1990-1993. Hann fjárfesti einnig í Áburðarverksmiðj- unni hf., þegar hún var einkavædd og sat í stjórn hennar. Hann hefur setið í fleiri stjórnum svo sem Flugleiðum, Ísafoldarprentsmiðju hf., Húsi versl- unarinnar og Viðskiptum og verslun, sem fékk Jakob Ásgeirsson til að skrifa bókina „Þjóð í hafti“. Jóhann var einn af stofnendum „RSE, Rannsóknarmiðstöðvar um J óhann J. Ólafsson fæddist í Reykjavík 8. apríl 1935 og ólst upp á Öldugötu 18 í Vesturbænum. „Sex ára var ég sendur til Valdimars móðurafa míns í Hnífsdal sem kenndi mér að lesa og skrifa. Þar var ég á annað ár en að því loknu var ég send- ur til Flateyrar þar sem ég var hjá hjónunum Ásu Álfsdóttur og Páli Kristjánssyni útgerðarmanni.“ Þar var Jóhann í þrjú sumur. „Seinna var ég sendur til Einars Markússonar, bónda á Keldhólum austur á Héraði og Bjargar Jónsdóttur konu hans og var þar eitt sumar. Allar þessar fjar- vistir höfðu góð og djúp áhrif.“ Að námi loknu í Miðbæjarbarna- skólanum við Tjörnina innritaðist Jóhann í Verzlunarskóla Íslands og útskrifaðist þaðan sem stúdent 1956. Þá innritaðist hann í lagadeild Há- skóla Íslands en gerði hlé á námi sínu til að vinna við fjölskyldufyrirtækið Jóhann Ólafsson & Co, sem faðir hans stofnaði 1916. Jóhann ætlaði að hefja laganámið aftur 1963 en þá andaðist faðir hans. Jóhann þurfti því að taka við rekstri fjölskyldufyrirtækisins 27 ára gam- all. „Til að ljúka laganáminu kom æskuvinur minn, Sigurður Gizurar- son, mér til hjálpar. Á morgnana yfir veturinn mætti Sigurður í háskólann en ég vann í fyrirtækinu í stað þess að mæta í tíma og lásum við lögfræð- ina saman eftir hádegi. Þetta tókst frábærlega og lukum við lögfræði- prófi í janúar 1967.“ Við andlát Jó- hanns Ólafssonar hafði Gaukur Jör- undsson borgardómari beðið Jóhann yngri að taka sæti í sjó- og versl- unardómi Reykjavíkur. Þar sat hann í 30 ár. Starfsferillinn „Að laganámi loknu var fullur kraftur settur á verslunarstörfin og fyrirtækjareksturinn. Nýtt húsnæði var byggt í Sundaborg. Jafnframt fyrirtækjarekstri hófust ýmis félags- störf fyrir verslunarstéttina.“ Jóhann sat í stjórn Félags ís- lenskra stórkaupmanna 1969-1977 þar af varaformaður 1975-1977; í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna 1970-1992, þar af formaður 1980-1983 Fold á málverkum Haraldar Bilson og kynna þennan íslenska listamann fyrir löndum sínum. Á áttunda áratug síðustu aldar fannst í Augsburg í Þýskalandi hand- rit Konrads Maurers af ferð hans til Íslands árið 1858. Þetta handrit hafði verið glatað í meira en heila öld. Jóhann hafði frumkvæði að þýðingu þess og útgáfu í samvinnu við Ferða- félag Íslands 1997, á 70 ára afmæli þess. Einnig stofnaði hann Konrad Maurer-félag á Íslandi 2019 og hefur staðið fyrir Maurer-ferðum á vegum FÍ árlega síðan 2014. Árið 2006 beitti Jóhann sér fyrir fjármögnun og útgáfu Lögfræðiorða- bókar, sem kom út árið 2008 á aldar afmæli lagakennslu á íslandi. Bók þessi var gefin út af Lagastofnun lagadeildar HÍ. „Áhugamál mín hafa mest verið ferðalög innanlands og gönguferðir um óbyggðir Íslands, þó mest í ná- grenni Reykjavíkur.“ Fjölskylda Jóhann kvæntist 28.10. 1967 Guð- rúnu Jónsdóttur ljósmóður, f. í Reykjavík 20.2. 1943. Hún er dóttir Jóns J. Brynjólfssonar sútunarmeist- Jóhann J. Ólafsson stjórnarformaður – 85 ára Stórfjölskyldan Fremri röð f.v. Emil Martin Portal, Margrét Jóhanna Jó- hannsdóttir, Jóhann Tómas Portal, Guðrún Jónsdóttir, Guðrún Gná Nielsen, Jóhann J. Ólafsson, Þórdís Una Nielsen, Ásta Guðrún Jóhannsdóttir sem sit- ur með Sindra Birni Nielsen. Aftari röð f.v. Lára Isabelle Portal, Marc André Portal, Hugo Pétur Portal, Jón Árni Jóhannsson, Andrés Nielsen. Afmæli í sjálfskipaðri sóttkví Ljósmynd/Sigurjón Pétursson Hjónin Jóhann og Guðrún. Ljósmynd/Ljósmyndir Rutar og Silju 40 ára Gói ólst upp í 101 Reykjavík en býr í Kópavogi. Hann er leikari að mennt frá Listaháskóla Íslands og er leikari í Þjóð- leikhúsinu en er í fæðingarorlofi. Maki: Ingibjörg Ýr Óskarsdóttir, f. 1984, ljósmóðir á Landspítalanum. Börn: Óskar Sigurbjörn, f. 2008, Krist- ín Þórdís, f. 2011, og Ari Steinn, f. 2019. Foreldrar: Karl Sigurbjörnsson, f. 1947, fyrrverandi biskup Íslands, og Kristín Guðjónsdóttir, f. 1946, fyrrver- andi bankastarfsmaður. Þau eru búsett í Reykjavík. Guðjón Davíð Karlsson Til hamingju með daginn Kópavogur Ari Steinn Guðjónsson fæddist á Landspítalanum 29. októ- ber 2019. Hann vó 3.790 g og var 52 cm langur. For- eldrar hans eru Guðjón Davíð Karlsson og Ingi- björg Ýr Óskarsdóttir. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.