Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.04.2020, Qupperneq 11

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.04.2020, Qupperneq 11
Ólétt og fótbrotin í beinni Þegar Edda var í hagfræðinni var boðið upp á áfanga hjá RÚV sem sneri að því að búa til þátt tengdan náminu. „Ég hitti þá Sigrúnu Stefánsdóttur, þá- verandi dagskrárstjóra, sem opnaði nám- skeiðið. Þá var ég ólétt að syni mínum og gerði ég þátt um heilbrigði og óléttu og eftir það fékk ég tilboð að koma í prufu í starf kynnis í Gettu betur. Ég fékk svo starfið en ég benti Sigrúnu á að ég ætti von á barni á svipuðum tíma og þátturinn ætti að hefja göngu sína. Það er mér mjög minnisstætt hvernig hún tók á því; henni fannst það ekki tiltökumál. Það væri ekki sjúkdómur að eignast barn og við myndum leysa það þegar að því kæmi og ég er henni mjög þakklát í dag fyrir að hafa hvatt mig áfram í þetta. Ég átti svo son minn og fyrsta viðtalið í tengslum við þáttinn var tveimur dögum eftir fæðingu. Svo byrjaði þátturinn mánuði seinna. Ég var þarna með nýfætt kríli, hafði aldrei verið í sjónvarpi, allt í einu komin í beina útsendingu í Gettu betur. Svo var ég fótbrotin í þokkabót eftir að hafa dottið um rúmið heima. Það er eins gott að maður hafði smá húmor fyrir þessari stórundarlegu stöðu.“ Edda segir vinnuna hafa verið mikið átak á sínum tíma. Hún vandaði sig vel við að undir- búa sig. „Ég þorði aldrei að segja neitt nema ég væri með það skrifað; þannig var það fyrsta árið. Svo varð ég afslappaðri með árunum en ég var í þessu í þrjú ár,“ segir hún. „Ég er svo þakklát fyrir að hafa látið vaða og sagt já við þessu tækifæri því það hefði verið svo miklu auðveldara að gera þetta ekki. Maður lærir að vera ekki hræddur þótt allt sé ekki fullkomið hjá manni. Ég gerði alveg fullt af mistökum og get varla horft á þessa þætti í dag, en heilt yfir er ég ánægð hvernig þetta gekk. Með hverju árinu varð ég alltaf meira ég sjálf á skjánum.“ Edda Hermannsdóttir gaf nýlega út bókina Framkoma og segir einn tilganginn með bók- inni vera að efla konur til dáða. Hún segir að konur séu ragari við að láta í sér heyra þótt það hafi mikið breyst á síðustu árum. Morgunblaðið/Ásdís 26.4. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11 Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880 Prófaðu nýju Opn S heyrnartækin í 7 daga - Tímabókanir í síma 568 6880 Ef heyrn þín er skert fær heilinn ekki nægar hljóðupplýsingar til að vinna úr og talmál virðist dempað eða óskýrt. Nýju Opn S heyrnartækin skanna hljóðumhverfið 100 sinnum á sekúndu og framkvæma 56.000 hljóðmælingar á sama tíma! Einstaklega hröð og nákvæm hljóðúrvinnsla í Opn S skilar þér margfalt betri talskilningi í krefjandi aðstæðum en fyrri kynslóð heyrnartækja. Þú getur fengið Opn S með endurhlaðanlegum rafhlöðum! Ekki láta skerta heyrn loka þig af! Rjúfðu einangrunina með Opn S heyrnartækjum

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.