Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.04.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.04.2020, Blaðsíða 14
É g hef það bara ágætt, þakka þér fyr- ir. Er að vísu svolítið linur; maður verður það með aldrinum,“ segir Svanur Jóhannesson í Hveragerði á hinum enda línunnar en hann hélt upp á níræðisafmæli sitt síðasta haust. Ekki er Svanur þó linari en svo að í næstu viku kemur út glæný bók eftir hann, Prentsmiðjubókin, þar sem saga prentsmiðja á Íslandi er rakin frá því um 1530. Hefur Svanur unnið að verkinu und- anfarin fimm ár og orðið margs vísari um þessa löngu og merkilegu sögu. Nýja bókin er framhald af bók Svans, Prent- smiðjueintök, sem kom út 2014 og aftur í end- urskoðaðri útgáfu 2015. Þá var aðeins skrifað um þær prentsmiðjur sem hann átti eintök frá en nú er hins vegar lögð áhersla á að segja sögu allra prentfyrirtækja frá því prentun hófst á Ís- landi. Niðurröðun efnisins er eftir aldursröð prentsmiðjanna á landinu öllu þótt vinnslan á bókinni hafi verið eftir byggðarlögum eða landshlutum. Svanur á ekki langt að sækja bókaáhugann en faðir hans var skáldið ástsæla Jóhannes úr Kötlum. Sjálfur er hann bókbindari að mennt og vann lengi sem slíkur en síðar á skrifstof- unni hjá Félagi bókagerðarmanna. Reglum samkvæmt þurfti Svanur að láta af störfum 67 ára, fyrir 24 árum. Honum þótti það tóm vit- leysa á sínum tíma en þetta varð eigi að síður til þess að hann gat farið að huga að ýmsum hugð- arefnum, svo sem prentsögunni. Frá Jóni sænska að Prentmeti Odda Heimildum ber saman um að Jón Hólabiskup Arason hafi fyrstur manna flutt prentsmiðju til Íslands, en ekki er ljóst hvaða ár það var. Einn- ig er sagt, að prentarinn hafi heitið Jón Matt- híasson eða Mattheusson og verið kallaður hinn sænski. „Menn hafa deilt skarpt um ártalið gegnum tíðina, enda lítið um heimildir, en oft- ast er miðað við árið 1530 sem þýðir að 490 ár eru á þessu ári liðin frá þessum merka viðburði. Það er voðalega löng saga,“ segir Svanur. „Ég hallast að því að það sé rétt en auðvitað getur þó munað einhverjum árum til eða frá. Þarna hef ég mína frásögn en það síðasta sem ég minnist á er sameining Prentmets og Odda á síðasta ári.“ Örfáar prentsmiðjur störfuðu á Íslandi fyrstu aldirnar en mest af íslenskum bókum var prentað í Danmörku fram á nítjándu öld. Svanur fjallar um þessar prentsmiðjur í bók- inni en flestar voru þær í Kaupmannahöfn. „Það var mjög fróðlegt að skoða þetta en prent- un íslenskra bóka var merkilega stór hluti af danska markaðnum á þessum tíma – enda Ís- lendingar alltaf að skrifa bækur. Að minnsta kosti ein prentsmiðja sem prentaði þessar bæk- ur er ennþá til, J.H. Schultz, 360 ára gömul. Önnur, S.L. Møller, varð um 200 ára en þar störfuðu margir Íslendingar.“ Á nítjándu öld voru stofnaðar a.m.k. 26 prentsmiðjur á Íslandi, þar af 23 eftir 1850. Frá 1900 til 1950 voru stofnaðar um eitt hundrað prentsmiðjur hér á landi og algjör sprenging varð frá 1950 til 2000 þegar um 200 nýjar prentsmiðjur tóku til starfa. Það gera 300 prentsmiðjur á einni öld. Að sögn Svans tók langan tíma að finna margar af þessum prent- smiðjum og oft var erfitt að finna raunveruleg prentsmiðjueintök og stundum fundust þau alls ekki, en þá var brugðið á það ráð að fá rafræn eintök frá timarit.is eða öðrum aðilum. Litríkur maður og margdæmdur Svanur segir uppganginn í íslensku prentverki eftir miðja nítjándu öld tengjast nýjum prent- frelsislögum og baráttu Jóns Ólafssonar í þá veru. Þó svo að Íslendingar þyrftu áfram að fá leyfi frá konungi og dönskum yfirvöldum til að stofna og reka prentsmiðjur þá virðist það hafa verið mun auðveldara eftir að lög þessi tóku gildi. „Jón var lykilmaður í þeirri baráttu og kom víða við. Það er fræg frásögn. Hann var litríkur maður og margdæmdur, meðal annars fyrir að birta níð um Dani í blaði sem Friðrik Guð- mundsson bókbindari var ábyrgðarmaður að. Jón hrökklaðist að minnsta kosti tvisvar úr landi; í annað skiptið fór hann vestur um haf og lenti þar með Grant Bandaríkjaforseta. Sagan segir að þeir hafi setið að sumbli í Hvíta húsinu eftir að Jón skilaði honum skýrslu um Alaska- förina. Þeir fóru síðan á knæpurnar og kom að því að Jón vildi hætta og fara heim. Grant vildi hins vegar halda áfram og fékk lánaðan hálfan silfurdal hjá Jóni þegar leiðir skildi.“ Jón var þrjóskur að upplagi og lét ekki segj- ast; sneri alltaf aftur heim enda hafði hann brennandi þörf fyrir að tjá sig á prenti. Í eitt skipti fékk hann bróður sinn, Pál Ólafsson skáld, til að sækja um prentsmiðjuleyfi fyrir sig til konungs. Leyfið var veitt og starfaði sú prentsmiðja á Eskifirði og gaf meðal annars um tíma út blaðið Skuld. Jón var einnig um skeið í samstarfi við Bene- dikt Sveinsson á Elliðavatni en, að sögn Svans, var hann fyrsti maðurinn til að láta smíða fyrir sig prentsmiðju hér á landi; fékk til verksins prentsmið og járnsmið. „Því miður er ekki vitað hvað varð um hana,“ segir Svanur. „Jón gaf út smápésa, sem hann kallaði Smávegis, á Elliðavatni. Sá pési er mikið fágæti, enda var mest af upplaginu gert upptækt, en mér tókst að hafa uppi á einu eintaki.“ Á köflum þvælin saga Alls er getið um 395 prentsmiðjur á Íslandi í bókinni en Svanur tók þann pól í hæðina að halda sig við nöfn prentsmiðjanna sem gefið hafa út bækur eða blöð en ekki tilteknar prent- vélar sem gjarnan gengu kaupum og sölum. „Þetta er á köflum þvælin saga og miklu fleiri prentsmiðjur en mig hafði órað fyrir.“ Hann segir suma staði atkvæðameiri en aðra; má þar nefna Vestmannaeyjar. „Prent- smiðjur í Vestmannaeyjum voru um tíma óvenjumargar miðað við stærð staðarins. Prentvélarnar voru að vísu ekki nema tvær eða þrjár en reglulega var skipt um nafn á prent- smiðjunum. Gera má því skóna að rekstur hafi á köflum verið erfiður og svo fléttast ógurleg pólitík inn í þetta líka. Meðal manna sem komu þarna við sögu voru Ísleifur Högnason og Gísli J. Johnsen.“ Af öðrum stöðum sem mikið hefur verið prentað á nefnir Svanur Seyðisfjörð, Ísafjörð og Akureyri. „Það er mjög gaman að skoða hversu samofin þessi prentsaga er menningu þessara staða. Mikill þvælingur var á sumum þessum prentsmiðjum. Skúli Thoroddsen fór til dæmis með sína prentsmiðju frá Ísafirði suður á Bessastaði. Prentsmiðjan sem var um skeið í Viðey fluttist yfir í Aðalstræti í Reykjavík, í Bergmannsstofu. Svona mætti lengi telja.“ Svanur er einnig með fjölritunarstofur inni í heildarfjölda prentsmiðja en dæmi eru um að ungskáld og fleiri hafi gegnum tíðina leitað til slíkra stofa til að spara sér útgjöld. „Það er sannarlega útgáfa og sumt af því meira að segja býsna merkilegt.“ Hefur fengið góða aðstoð – Hvernig kom það til að þú byrjaðir á þessari vinnu? „Þetta var í raun rökrétt framhald af vinnunni við fyrri bók mína. Við Þorsteinn Jak- obsson, prentari í Reykjavík, höfum verið að safna eintökum úr prentsmiðjum á síðustu ár- um; svokölluðum prentsmiðjueintökum, svo við notum orð sem Stefán Ögmundsson prentari bjó til. Í upphafi stóð til að gera þetta fyrir Fé- lag bókagerðarmanna en af því varð ekki og það var ekki fyrr en mörgum árum seinna að við Þorsteinn helltum okkur út í þetta af fullum krafti. Hann hefur verið betri en enginn við þessa vinnu, eins Rúnar Sigurður Birgisson, fornbókasali í Kolaportinu og bankastjóri Bókabankans, sem lumaði á mörgum dýr- gripnum í safni sínu, sérstaklega gömlum blöð- um, og Ragnar Guðmundsson bókasafnari, sem nú er látinn, en hann lagði líka til mörg góð ein- tök. Kann ég þeim að vonum bestu þakkir fyrir þeirra framlag. Við komumst fljótt að því að fjölmargir prentstaðir stóðu út af en í fyrri bók- inni er aðeins getið um 130. Margir þeirra voru einkum og sér í lagi stofnaðir til að gefa út blöð vítt og breitt um landið. Segja má að ég hafi farið nokkra hringi um landið til að safna þessu saman.“ Svanur er einnig mjög þakklátur Páli syni sínum sem braut bókina um. „Páll er mín hjálp- arhella og alltaf gott að geta leitað til hans. Við vinnum mjög vel saman, feðgarnir,“ segir Svanur en þess má geta að hann er sjálfur lipur á tölvur, sem er alls ekki sjálfgefið fyrir mann af hans kynslóð. – Hvaða tímabil í þessari sögu finnst þér merkilegast? „Því er erfitt að svara. Það er margt ansi merkilegt. En ætli ég myndi ekki segja að tíma- bilið í kringum aldamótin 1900 sé merkilegasti og skemmtilegasti tíminn. Þá fjölgaði prent- smiðjum mjög hratt og mikill uppgangur var í greininni.“ Margir litríkir og atorkusamir hugsjóna- menn koma við sögu í bókinni. Svanur nefnir sem dæmi Þorvald Sigurðsson bókbindara og Valdimar Jóhannsson bókaútgefanda, föður Jó- hanns Páls Valdimarssonar hjá Forlaginu og afa Egils Arnar, núverandi framkvæmdastjóra. „Valdimar bauðst á sínum tíma að kaupa þýð- ingu á Konu manns eftir sænska rithöfundinn Vilhelm Moberg og gaf hana út. Bókin sló í gegn og seldist upp á tveimur dögum, að mig minnir. Valdimar vildi að vonum ráðast strax í aðra prentun en þá voru allar prentsmiðjur uppteknar í miklum jólaönnum. Hann dó hins vegar ekki ráðalaus, heldur setti sig í samband Prentsmiðjubókin eftir Svan Jóhannesson kemur út í næstu viku en þar er hermt af tæplega fjögur hundruð prentstöðum á Íslandi allt aftur á öndverða sextándu öld. Svanur segir verkið hafa verið fróðlegt og ánægjulegt en hann stendur á níræðu. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’Hilmir, sem var áhlaupa-maður, mátti ekkert vera aðþví að bíða eftir því og fékk þvíleyfi til að rífa þakið af húsinu og flytja prentvélina þannig í heilu lagi með krana sem hann leigði hjá Eimskip. Þetta kallar maður að hugsa í lausnum. Prentsmiðjubókin var fimm ár í smíðum og Svanur Jóhannes- son sér ekki eftir einni einustu mínútu sem fór í verkið. VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.4. 2020 Fór nokkra hringi til að safna þessu saman

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.