Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.04.2020, Qupperneq 14
É
g hef það bara ágætt, þakka þér fyr-
ir. Er að vísu svolítið linur; maður
verður það með aldrinum,“ segir
Svanur Jóhannesson í Hveragerði
á hinum enda línunnar en hann hélt
upp á níræðisafmæli sitt síðasta haust. Ekki er
Svanur þó linari en svo að í næstu viku kemur
út glæný bók eftir hann, Prentsmiðjubókin, þar
sem saga prentsmiðja á Íslandi er rakin frá því
um 1530. Hefur Svanur unnið að verkinu und-
anfarin fimm ár og orðið margs vísari um þessa
löngu og merkilegu sögu.
Nýja bókin er framhald af bók Svans, Prent-
smiðjueintök, sem kom út 2014 og aftur í end-
urskoðaðri útgáfu 2015. Þá var aðeins skrifað
um þær prentsmiðjur sem hann átti eintök frá
en nú er hins vegar lögð áhersla á að segja sögu
allra prentfyrirtækja frá því prentun hófst á Ís-
landi. Niðurröðun efnisins er eftir aldursröð
prentsmiðjanna á landinu öllu þótt vinnslan á
bókinni hafi verið eftir byggðarlögum eða
landshlutum.
Svanur á ekki langt að sækja bókaáhugann
en faðir hans var skáldið ástsæla Jóhannes úr
Kötlum. Sjálfur er hann bókbindari að mennt
og vann lengi sem slíkur en síðar á skrifstof-
unni hjá Félagi bókagerðarmanna. Reglum
samkvæmt þurfti Svanur að láta af störfum 67
ára, fyrir 24 árum. Honum þótti það tóm vit-
leysa á sínum tíma en þetta varð eigi að síður til
þess að hann gat farið að huga að ýmsum hugð-
arefnum, svo sem prentsögunni.
Frá Jóni sænska að Prentmeti Odda
Heimildum ber saman um að Jón Hólabiskup
Arason hafi fyrstur manna flutt prentsmiðju til
Íslands, en ekki er ljóst hvaða ár það var. Einn-
ig er sagt, að prentarinn hafi heitið Jón Matt-
híasson eða Mattheusson og verið kallaður hinn
sænski. „Menn hafa deilt skarpt um ártalið
gegnum tíðina, enda lítið um heimildir, en oft-
ast er miðað við árið 1530 sem þýðir að 490 ár
eru á þessu ári liðin frá þessum merka viðburði.
Það er voðalega löng saga,“ segir Svanur. „Ég
hallast að því að það sé rétt en auðvitað getur
þó munað einhverjum árum til eða frá. Þarna
hef ég mína frásögn en það síðasta sem ég
minnist á er sameining Prentmets og Odda á
síðasta ári.“
Örfáar prentsmiðjur störfuðu á Íslandi
fyrstu aldirnar en mest af íslenskum bókum
var prentað í Danmörku fram á nítjándu öld.
Svanur fjallar um þessar prentsmiðjur í bók-
inni en flestar voru þær í Kaupmannahöfn.
„Það var mjög fróðlegt að skoða þetta en prent-
un íslenskra bóka var merkilega stór hluti af
danska markaðnum á þessum tíma – enda Ís-
lendingar alltaf að skrifa bækur. Að minnsta
kosti ein prentsmiðja sem prentaði þessar bæk-
ur er ennþá til, J.H. Schultz, 360 ára gömul.
Önnur, S.L. Møller, varð um 200 ára en þar
störfuðu margir Íslendingar.“
Á nítjándu öld voru stofnaðar a.m.k. 26
prentsmiðjur á Íslandi, þar af 23 eftir 1850. Frá
1900 til 1950 voru stofnaðar um eitt hundrað
prentsmiðjur hér á landi og algjör sprenging
varð frá 1950 til 2000 þegar um 200 nýjar
prentsmiðjur tóku til starfa. Það gera 300
prentsmiðjur á einni öld. Að sögn Svans tók
langan tíma að finna margar af þessum prent-
smiðjum og oft var erfitt að finna raunveruleg
prentsmiðjueintök og stundum fundust þau alls
ekki, en þá var brugðið á það ráð að fá rafræn
eintök frá timarit.is eða öðrum aðilum.
Litríkur maður og margdæmdur
Svanur segir uppganginn í íslensku prentverki
eftir miðja nítjándu öld tengjast nýjum prent-
frelsislögum og baráttu Jóns Ólafssonar í þá
veru. Þó svo að Íslendingar þyrftu áfram að fá
leyfi frá konungi og dönskum yfirvöldum til að
stofna og reka prentsmiðjur þá virðist það hafa
verið mun auðveldara eftir að lög þessi tóku
gildi.
„Jón var lykilmaður í þeirri baráttu og kom
víða við. Það er fræg frásögn. Hann var litríkur
maður og margdæmdur, meðal annars fyrir að
birta níð um Dani í blaði sem Friðrik Guð-
mundsson bókbindari var ábyrgðarmaður að.
Jón hrökklaðist að minnsta kosti tvisvar úr
landi; í annað skiptið fór hann vestur um haf og
lenti þar með Grant Bandaríkjaforseta. Sagan
segir að þeir hafi setið að sumbli í Hvíta húsinu
eftir að Jón skilaði honum skýrslu um Alaska-
förina. Þeir fóru síðan á knæpurnar og kom að
því að Jón vildi hætta og fara heim. Grant vildi
hins vegar halda áfram og fékk lánaðan hálfan
silfurdal hjá Jóni þegar leiðir skildi.“
Jón var þrjóskur að upplagi og lét ekki segj-
ast; sneri alltaf aftur heim enda hafði hann
brennandi þörf fyrir að tjá sig á prenti. Í eitt
skipti fékk hann bróður sinn, Pál Ólafsson
skáld, til að sækja um prentsmiðjuleyfi fyrir sig
til konungs. Leyfið var veitt og starfaði sú
prentsmiðja á Eskifirði og gaf meðal annars um
tíma út blaðið Skuld.
Jón var einnig um skeið í samstarfi við Bene-
dikt Sveinsson á Elliðavatni en, að sögn Svans,
var hann fyrsti maðurinn til að láta smíða fyrir
sig prentsmiðju hér á landi; fékk til verksins
prentsmið og járnsmið. „Því miður er ekki vitað
hvað varð um hana,“ segir Svanur. „Jón gaf út
smápésa, sem hann kallaði Smávegis, á
Elliðavatni. Sá pési er mikið fágæti, enda var
mest af upplaginu gert upptækt, en mér tókst
að hafa uppi á einu eintaki.“
Á köflum þvælin saga
Alls er getið um 395 prentsmiðjur á Íslandi í
bókinni en Svanur tók þann pól í hæðina að
halda sig við nöfn prentsmiðjanna sem gefið
hafa út bækur eða blöð en ekki tilteknar prent-
vélar sem gjarnan gengu kaupum og sölum.
„Þetta er á köflum þvælin saga og miklu fleiri
prentsmiðjur en mig hafði órað fyrir.“
Hann segir suma staði atkvæðameiri en
aðra; má þar nefna Vestmannaeyjar. „Prent-
smiðjur í Vestmannaeyjum voru um tíma
óvenjumargar miðað við stærð staðarins.
Prentvélarnar voru að vísu ekki nema tvær eða
þrjár en reglulega var skipt um nafn á prent-
smiðjunum. Gera má því skóna að rekstur hafi
á köflum verið erfiður og svo fléttast ógurleg
pólitík inn í þetta líka. Meðal manna sem komu
þarna við sögu voru Ísleifur Högnason og Gísli
J. Johnsen.“
Af öðrum stöðum sem mikið hefur verið
prentað á nefnir Svanur Seyðisfjörð, Ísafjörð
og Akureyri. „Það er mjög gaman að skoða
hversu samofin þessi prentsaga er menningu
þessara staða. Mikill þvælingur var á sumum
þessum prentsmiðjum. Skúli Thoroddsen fór til
dæmis með sína prentsmiðju frá Ísafirði suður
á Bessastaði. Prentsmiðjan sem var um skeið í
Viðey fluttist yfir í Aðalstræti í Reykjavík, í
Bergmannsstofu. Svona mætti lengi telja.“
Svanur er einnig með fjölritunarstofur inni í
heildarfjölda prentsmiðja en dæmi eru um að
ungskáld og fleiri hafi gegnum tíðina leitað til
slíkra stofa til að spara sér útgjöld. „Það er
sannarlega útgáfa og sumt af því meira að
segja býsna merkilegt.“
Hefur fengið góða aðstoð
– Hvernig kom það til að þú byrjaðir á þessari
vinnu?
„Þetta var í raun rökrétt framhald af
vinnunni við fyrri bók mína. Við Þorsteinn Jak-
obsson, prentari í Reykjavík, höfum verið að
safna eintökum úr prentsmiðjum á síðustu ár-
um; svokölluðum prentsmiðjueintökum, svo við
notum orð sem Stefán Ögmundsson prentari
bjó til. Í upphafi stóð til að gera þetta fyrir Fé-
lag bókagerðarmanna en af því varð ekki og
það var ekki fyrr en mörgum árum seinna að
við Þorsteinn helltum okkur út í þetta af fullum
krafti. Hann hefur verið betri en enginn við
þessa vinnu, eins Rúnar Sigurður Birgisson,
fornbókasali í Kolaportinu og bankastjóri
Bókabankans, sem lumaði á mörgum dýr-
gripnum í safni sínu, sérstaklega gömlum blöð-
um, og Ragnar Guðmundsson bókasafnari, sem
nú er látinn, en hann lagði líka til mörg góð ein-
tök. Kann ég þeim að vonum bestu þakkir fyrir
þeirra framlag. Við komumst fljótt að því að
fjölmargir prentstaðir stóðu út af en í fyrri bók-
inni er aðeins getið um 130. Margir þeirra voru
einkum og sér í lagi stofnaðir til að gefa út blöð
vítt og breitt um landið. Segja má að ég hafi
farið nokkra hringi um landið til að safna þessu
saman.“
Svanur er einnig mjög þakklátur Páli syni
sínum sem braut bókina um. „Páll er mín hjálp-
arhella og alltaf gott að geta leitað til hans. Við
vinnum mjög vel saman, feðgarnir,“ segir
Svanur en þess má geta að hann er sjálfur lipur
á tölvur, sem er alls ekki sjálfgefið fyrir mann
af hans kynslóð.
– Hvaða tímabil í þessari sögu finnst þér
merkilegast?
„Því er erfitt að svara. Það er margt ansi
merkilegt. En ætli ég myndi ekki segja að tíma-
bilið í kringum aldamótin 1900 sé merkilegasti
og skemmtilegasti tíminn. Þá fjölgaði prent-
smiðjum mjög hratt og mikill uppgangur var í
greininni.“
Margir litríkir og atorkusamir hugsjóna-
menn koma við sögu í bókinni. Svanur nefnir
sem dæmi Þorvald Sigurðsson bókbindara og
Valdimar Jóhannsson bókaútgefanda, föður Jó-
hanns Páls Valdimarssonar hjá Forlaginu og
afa Egils Arnar, núverandi framkvæmdastjóra.
„Valdimar bauðst á sínum tíma að kaupa þýð-
ingu á Konu manns eftir sænska rithöfundinn
Vilhelm Moberg og gaf hana út. Bókin sló í
gegn og seldist upp á tveimur dögum, að mig
minnir. Valdimar vildi að vonum ráðast strax í
aðra prentun en þá voru allar prentsmiðjur
uppteknar í miklum jólaönnum. Hann dó hins
vegar ekki ráðalaus, heldur setti sig í samband
Prentsmiðjubókin eftir Svan Jóhannesson kemur út í næstu
viku en þar er hermt af tæplega fjögur hundruð prentstöðum á
Íslandi allt aftur á öndverða sextándu öld. Svanur segir verkið
hafa verið fróðlegt og ánægjulegt en hann stendur á níræðu.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
’Hilmir, sem var áhlaupa-maður, mátti ekkert vera aðþví að bíða eftir því og fékk þvíleyfi til að rífa þakið af húsinu
og flytja prentvélina þannig í
heilu lagi með krana sem hann
leigði hjá Eimskip. Þetta kallar
maður að hugsa í lausnum.
Prentsmiðjubókin var fimm ár í
smíðum og Svanur Jóhannes-
son sér ekki eftir einni einustu
mínútu sem fór í verkið.
VIÐTAL
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.4. 2020
Fór nokkra
hringi til að safna
þessu saman