Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.04.2020, Side 19
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Heimili&
hönnun
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 8. maí
Skoðuð verða húsgögn og innréttingar,
skrautmunir og fylgihlutir fyrir heimilið,
litir og lýsing ásamt mörgu öðru.
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til mánudagins 4. maí
Fatastíllinn minn er blanda af„street style“ og „fancy vi-bes“. Ég heillast mikið af
klassískum og sterkum formum;
vinnuklæðnaður hittir Dynasty.
Ævisaga mín mun líklega heita Bla-
zer-jakkar, kokteilkjólar og 501,“
segir Ragnheiður Helga þegar hún
er beðin að lýsa fatastílnum sínum.
Yfirhafnir eru líka í uppáhaldi hjá
Ragnheiði Helgu og þá sérstaklega
hvít kápa sem ömmusystir hennar
gaf henni.
„Hvíta ljónakápan mín með rönd-
ótta feldinum er án efa uppáhalds-
flíkin mín og verður líklegast alltaf.
Ég fékk hana í jólagjöf fyrir tveimur
árum frá ömmusystur minni og hún
er núna mikilvægasta flíkin í skápn-
um mínum. Hún er líka „vintage“,
sem gerir hana enn þá sérstakari.
Svo er það svarta „basic“ kápan mín.
Ég var búin að leita að hinni full-
komnu kápu mjög lengi og rakst á
hana fyrir tilviljun í COS. Hún er allt
sem ég vil í kápu; bein í sniðinu, í
smá yfirstærð en ekki þannig að hún
gleypi mig, síddin er fullkomin og
passar við allt sem ég á. Ég var líka
leið yfir strák daginn sem ég keypti
hana, kápan lagaði það sár hratt og
örugglega.“
Ragnheiður Helga á gott safn af
töskum.
„Ég hef alltaf verið hrifin af tösk-
um, þær hafa alltaf verið áhugamál
hjá mér. Ég til dæmis elska svörtu
stóru leðurtöskuna mína með gulllit-
uðu smáatriðunum. Hún er vintage
og minnir mig mikið á Hermès Birk-
in-töskur, sem mig dreymdi um að
eignast mjög lengi.
Hringi er ég alltaf með, þeir þurfa
helst að vera það stórir að þeir séu
fyrir mér, þannig líður mér best. Svo
get ég ekki sleppt að minnast á
hælaskó. Ég er hrifnust af svörtum
támjóum ökklastígvélum, þannig að
þegar ég fékk mér fjólubláu skóna
var það eins konar persónu-
leikabrestur því ég er ekki mikið í
litum en þeir passa bara mjög vel
inn í skápinn minn.“
Rétt eins og titillinn á óskrifaðri
ævisögu Ragnheiðar Helgu gefur til
kynna segist hún aldrei eiga nóg af
gallabuxnatýpunni 501 frá Levi’s.
Það er einnig alltaf pláss fyrir stutt-
ermaboli í fataskápnum. „Ég á
reyndar alveg nóg af þessu en þetta
er tvennt sem ég get alltaf verið í og
nota mjög mikið.“
Er eitthvað á óskalistanum fyrir
vorið?
„Óskalistinn minn er stuttur þetta
vorið vegna þess að mig vantar ekki
neitt, en ég er að leita að hvítri
Föt og
fylgihlutir
með sögu
heilla
Ragnheiður Helga Blöndal förðunarfræðingur er
óhrædd við að blanda saman fínum og hvers-
dagslegum fötum. Hún starfar í Spúútnik og er
sjálf hrifin af því að ganga í gömlum fötum. Hún
kaupir föt og fylgihluti með sál bæði hér heima og
erlendis og segir þolinmæði skipta máli þegar
kemur að því að kaupa notað.
Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is
Hvítu skórnir voru keyptir í H&M og
verða notaðir þegar samkomubanni lýkur.
Ragnheiður Helga hefur not-
að gráa jogginggallann úr
Spúútnik mikið undanfarnar
vikur. Kápan er úr COS.
Ragnheiður Helga
Blöndal á mikið af
notuðum fötum.
26.4. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19