Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.04.2020, Síða 24
Deborah Thiele birtir hér fallega
mynd frá Great Rift Valley í Keníu.
Hún segir að rigningatímabilið sé
hafið og því sé allt undurgrænt um
þessar mundir. Myndin hefur fengið
3.300 læk og um 400 ummæli.
Sarah Stewart, Nova Scotia, Kanada
setur þessa áhrifaríku mynd á síðuna
en þar dóu nýlega 23 þegar óður
byssumaður skaut á mann og annan.
Hún skrifar: „Eftir skelfilega helgi er
samfélagið í sorg. Himinninn í kvöld
var undurfagur og hlýr.“ Myndin hef-
ur hlotið 45.000 læk og 6.700 um-
mæli þar sem fólk vottar Kanada-
búum samúð sína.
Í Michigan í Banda-
ríkjunum má sjá
hlöður út um fín-
riðið net. Kim
Locke Stotz birtir
þessa skemmtilegu
mynd af sínum veru-
leika. Hún vinnur
sem hjúkrunarfræð-
ingur og sinnir
kórónuveiru-
sjúklingum og óttast
mest að bera smit
með sér heim.
Myndin hefur fengið
32.000 læk og 3.400
ummæli.
ar agndofa yfir myndum frá Maldí-
veyjum eða slíkum framandi stöð-
um. En mjög mörgum finnst þetta
geggjað – og þetta er bara útsýnið út
um eldhúsgluggann minn í Heið-
argerðinu!“ segir Linda og skelli-
hlær.
„Ég er auðvitað ekki búin að lesa
öll kommentin en kíkti yfir þau
þarna fyrsta daginn. Og ekki svarað
þeim heldur! Fólk skrifar að því
finnist þetta útsýni svo stórkostlega
fallegt og svo mikil fríðindi að hafa
svona út um gluggann hjá sér. Fólk
sér í þessu frelsi og víðáttu. Svo hafa
margir sagt að Ísland sé fyrsta land-
ið sem er á þeirra „bucket-lista“
þegar loks má fara að ferðast aftur.
Þau eru fjölmörg svoleiðis skilaboð;
ég er að redda efnahagnum!“ segir
hún og hlær.
Sprengdi alla skala
Blaðamaður skoðaði fjölmargar
myndir í hópnum og ekki var annað
að sjá en mynd Lindu tróndi á
toppnum hvað vinsældir varðar.
Næsta sem komst nálægt hennar
mynd var ein sem hafði fengið 80
þúsund læk.
„Já, ég veit, ég er með flest læk af
öllum. Ég hef rennt yfir þetta og
finn enga aðra mynd með eins mörg
læk. Ég sprengdi netið með Esju-
myndinni minni. Svo er búið að deila
henni rúmlega þúsund sinnum! Það
var líka haft samband við mig frá
Brasilíu og beðið um leyfi til að birta
myndina mína þar í blaði.“
Moskva á sína
fulltrúa í hópnum
en þessa fallegu
mynd birti Marga-
rita Zobnina.
Myndin hefur feng-
ið 31.000 læk og
2.600 ummæli.
Ron Toledo birti
þessa fallegu mynd
af Tel Aviv í kvöld-
birtunni. Fékk
myndin tæp 3.000
læk.
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.4. 2020
LÍFSSTÍLL
SCREEN RÚLLUGARDÍNUR
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is
alnabaer.is
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum