Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2020, Side 4
1 Fjölskylda flýr hrottalegt ofbeldi í Grindavík – Myndband ekki
fyrir viðkvæma Guðmunda Þor-
steinsdóttir hefur ákveðið að flytja
með fjölskyldu sína frá Grindavík
vegna eineltis og hrottafengins
ofbeldis sem 15 ára sonur hennar
verður ítrekað fyrir.
2 Kynlífsherbergi í Reykjavík – Þú velur klukkan hvað og hversu
lengi Þú getur leigt kynlífsherbergi
í miðbæ Reykjavíkur í gegnum vef-
síðuna sexroom.is, ef þig langar.
3 Smitaði 71 af krónaveiru á einni mínútu Kona, grunlaus um að
vera smituð af kórónaveirunni, fór
í lyftu. Lyftuferðin tók aðeins eina
mínútu en olli því að 71 smitaðist í
kjölfarið.
4 Mikil ólga í Grindavík vegna birtingar ofbeldismyndbands
Grindvíkingar voru ekki par sáttir með
myndband sem móðir birti af hrotta-
fengnu ofbeldi sem hún sagði son
sinn hafa orðið fyrir, þar sem mynd-
bandið sýndi ekki son hennar heldur
allt aðra aðila.
5 Hermann las viðtal við Svövu í Mogganum og eftir það varð
ekki aftur snúið Hermann Guð-
mundsson sendi matgæðingnum
Svövu Gunnarsdóttur skilaboð eftir
að hann las viðtal við hana í Morgun-
blaðinu fyrir tveimur árum. Það
reyndist afdrifarík ákvörðun og ekki
leið á löngu áður en Svava og Her-
mann felldu hugi saman.
6 Nauðgaði nemanda og giftist honum svo – Nú er hún látin
Mary Kay Letourneau var kennari
sem átti í ástarsambandi við 12 ára
nemanda sinn. Fyrir vikið var hún
dæmd í fangelsi fyrir nauðgun. Engu
að síður ól hún nemandanum tvö
börn á meðan hún sat af sér dóminn
og giftist honum eftir afplánun. Hún
lést nýlega 58 ára að aldri.
7 Mikil reiði meðal sjálfstæðis-manna Björn Jón Bragason
fjallaði í síðasta blaði um ósætti
innan Sjálfstæðisflokksins vegna
tilfæringa sem hafa verið gerðar á
listum flokksins undanfarin ár.
MEST LESIÐ
Á DV Í VIKUNNI Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST...
Kurr vegna fréttar
Frétt Sigríðar Daggar Auðunsdóttur, fréttamanns RÚV, um
flutning ríkisstofnana frá höfuðborginni til landsbyggðarinn-
ar, vakti hörð viðbrögð. Var Sigríður sökuð um landsbyggðar-
hatur, hroka, rangfærslur og að hafa ætlað sér að draga upp
mynd af kjördæmapoti og spillingu. Sigríður hefur bent á að
fréttin hafi hreinlega verið samantekt um þær stofnanir og
svið ríkisins sem hafi flutt starfsemi sína út á land frá alda-
mótunum. Ekkert umfram það.
Herjólfur í hers höndum
Málefni Herjólfs hafa vakið mikla athygli, en í vikunni stóð
yfir vinnustöðvun starfsmanna sem er liður í baráttu þeirra
fyrir bættum kjörum. Mörgum þykir nóg um kröfur starfs-
manna Herjólfs, sem hafi upp undir milljón í mánaðarkaup.
Starfsmenn aftur á móti benda á að mikill hluti vinnu þeirra sé
yfirvinna og eigi þeir rétt á skikkanlegri vinnutíma og hærra
kaupi. Herjólfur ohf. tók þá umdeildu ákvörðun að sigla frá
Vestmannaeyjum til lands á gamla Herjólfi, þrátt fyrir vinnu-
stöðvun áhafnar á þeim nýja. Sjómannafélag Íslands hefur
kallað athæfið klárt verkfallsbrot og lítur alvarlegum augum
á málið.
Játa mistök
Flugfreyjufélag Ísland (FFÍ) gekkst við því að hafa gert mis-
tök við undirritun kjarasamnings við Icelandair. Samningur-
inn var felldur af félagsmönnum en eftir atkvæðagreiðsluna
sendi FFÍ félagsmönnum sínum tilkynningu þar sem gengist
var við mistökunum og einnig greint frá því að Icelandair hafi
neitað að leiðrétta mistökin. Þessu hefur Icelandair aftur á
móti alfarið hafnað. FFÍ hafi farið fram á minniháttar orða-
lagsbreytingu og við því hafi Icelandair orðið, það hafi hins
vegar ekki breytt innihaldi umdeildra ákvæða varðandi auka-
frídag flugfreyja 60 ára og eldri og svokallaðrar sex daga
reglu.
Gert út af við legsteinasafnið
Páli Guðmundssyni, listamanni á Húsafelli, hefur verið gert að
fjarlægja hús sem hann hafði byggt á lóð sinni og átti að hýsa
legsteinasafn. Nágranni Páls var ósáttur við bygginguna og
stefndi honum vegna málsins. Húsið mun hafa kostað á fjórða
tug milljóna og því um mikið áfall fyrir Pál að ræða og framtíð
legsteinasafnsins er í uppnámi.
Leikmaður Breiðabliks stígur fram
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir, leikmaður Breiðabliks í
knattspyrnu, steig fram í vikunni en það var hún sem fékk
COVID-19 sjúkdóminn og varð til þess að tvö lið í knattspyrnu
fóru í sóttkví. Það reyndist henni afar erfitt þegar fjölmiðlar
nafngreindu hana og birtu mynd af henni án hennar sam-
þykkis. „Ég þurfti ekki einu sinni að kalla á mömmu, ég bara
veinaði,“ sagði hún í samtali við mbl.is.
Tómlegur Herjólfsdalur í ágúst
Þjóðhátíð Vestmannaeyinga hefur verið aflýst, en slíkt hefur
aldrei átt sér stað í yfir 100 ára sögu Þjóðhátíðar í Vestmanna-
eyjum. Ljóst er að þetta er mikið fjárhagslegt áfall fyrir
íþróttafélag Vestmannaeyja, ÍBV. Þeir sem höfðu keypt sér
miða á hátíðina geta fengið hann endurgreiddan, flutt hann
yfir á næsta ár, eða styrkt ÍBV um andvirði miðans.
CMYK
SV/HV
Vertu viss um að velja
besta kjötið á grillið!
Meira á
www.fjallalamb.is
4 FRÉTTIR 17. JÚLÍ 2020 DV