Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2020, Page 8
8 FRÉTTIR 17. JÚLÍ 2020 DV
Klæðning hússins er ónýt og hurðin stendur opin. Mörg hundruð fermetra kjallari stendur opinn fyrir veðri, vindum og óboðnum gestum.
Rusl úr húsinu er í hrúgum utan við húsið að aftan og galopnar dyr. MYND/ERNIR
hverfis- og auðlindamál og
felldi nefndin það úr gildi
þar sem framkvæmdin átti
sér ekki stoð í deiliskipulagi
og grenndarkynning var ekki
fullnægjandi.
Á byrjunarreit
þremur árum síðar
Reykjavíkurborg fór þá af
stað með deiliskipulags-
vinnu og lauk henni með aug-
lýsingu í Stjórnartíðindum í
júlí í fyrra. Það skipulag var
einnig kært og felldi nefndin
það úr gildi í mars 2020. Á
þessum tímapunkti voru því
nærri þrjú ár liðin frá upp-
haflegri umsókn um bygg-
ingaleyfi og eigendur hússins
á byrjunarreit. Húsið hafði á
þessum tíma drabbast niður
töluvert og nágrannar teknir
að þreytast.
Þegar DV spurði nágranna
hússins út í ástandið og við-
brögð nágranna voru svörin
á ýmsa vegu. Sumir höfðu
skilning á ætlunum eigenda
hússins, aðrir alls ekki. Aðrir
beindu reiðinni að borginni,
aðrir ekki. Aðrir voru bara
reiðir en ekkert endilega
út í neinn. Enn aðrir sögðu
bílastæðin þrætuepli, en ná-
grannar hafa nýtt ónotuð
bílastæði Dunhaga 18-20
undir sín ökutæki. Einn kær-
andi í málinu sagðist lang-
þreyttur á stjórnsýslunni:
„Að við skulum þurfa að fara
í gegnum ferlið í þrígang er
alveg ótrúlegt. Það er eins og
Reykjavíkurborg kunni ekki
að lesa.“
Í dag stendur húsið tómt,
yfirgefið og er vanrækt.
Minnisvarði um svifaseina
stjórnsýslu borgarinnar og
göfugar ætlanir eiganda og
margra ára vinnu þeirra sem
nú er á byrjunarreit. Þegar
blaðamann bar að garði á
Dunhaga 18 blöstu við honum
galopnar dyr og ruslahrúgur.
Playstation-tölva og nýlegt
sjónvarp lágu innan um ann-
að rusl á jörðinni – fórnar-
lömb íslenskrar sumarbleytu.
Opið var inn í gömlu skrif-
stofu Háskólaprents og þar
talsvert af köttum af hland-
lyktinni að dæma. Ljóst er
að einhver hefur hreiðað um
sig í einu horninu en enginn
Rúmenar í ókeypis húsnæði
Stigagangar íbúðarhússins
voru jafnframt opnir og líf í
þeim báðum. Blaðamaður var
svo heppinn að rekast á íbúa
annars þeirra. Voru þar Rúm-
enar að sjóða sér kartöflurétt í
kvöldmat og buðu blaðamanni
inn. Rúmenarnir vinna fyrir
starfsmannaleiguna Ztrong-
force ehf. Þeir hafa verið þar
um einhverja hríð og herma
heimildir DV að fyrirtækið
hafi ekkert greitt fyrir hús-
næðið nema hita og rafmagn.
Vegna ástands hússins þykir
ekki forsvaranlegt að inn-
heimta leigu. Af stæðum pósts
í anddyri hússins að dæma er
ljóst að þar hefur búið einhver
fjöldi af erlendu verkafólki á
síðustu misserum.
Rekstur starfsmannaleiga
hefur ekki farið varhluta af
Covid-19-„ástandinu,“ enda
samdráttur í ferðamennsku
leitt til samdráttar í bygg-
ingageiranum og þessir tveir
bransar verið hvað dug-
legastir að nýta sér þjónustu
starfsmannaleiga. Engu að
síður virtust heimilismenn á
Dunhaga 18 hafa nóg að gera
og héngu vinnugallarnir og
vettlingarnir í sameigninni til
þerris eftir langan vinnudag í
rigningunni. Tekið skal fram
að þrátt fyrir ömurlegt ástand
hússins virtist íbúðinni sem
strákarnir deildu vera ágæt-
lega viðhaldið.
Þegar blaðamaður kvaddi
strákana rúmensku varð hon-
um kaldhæðnin skyndilega
skýr: Á besta stað í Reykjavík
stendur 1.500 fermetra fast-
eign niðurnídd. Eigendur vilja
breyta húsinu til batnaðar og
nágrannar vilja bætt ástand
en deila um skilgreininguna
á „batnaði“. Á milli situr svo
skipulagssvið borgarinnar
á byrjunarreit, fórnarlamb
endalausra áfrýjunarleiða og
kærumöguleika í skipulags-
ferlinu og svifaseinnar úr-
lausnar Úrskurðarnefndar um
umhverfis- og auðlindamál.
Í húsinu búa svo rúmensk-
ir verkamenn, kannski ein-
mitt þeir sem fara í að bæta
ástandið, þegar Íslendingarnir
hætta að rífast. n
Það er eins og Reykjavíkur-
borg kunni ekki að lesa.
sjáanlegur. Staflar af sófum
og rúmum og nokkur bretti
af jarðfræðiblaðsíðum, sem
eflaust áttu að verða að bók
,blöstu við.
Brotnar rúður í ónotuðum húsum. Þetta hefur blasað við íbúum Hagahverfis í áraraðir. MYND/ERNIR
00000
www.veidikortid.is
Hvar ætlar þú að
veiða í sumar?
Útsölustaðir: N1, OLÍS, veiðivöruverslanir