Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2020, Page 10
10 FRÉTTIR 17. JÚLÍ 2020 DV
Langbest að
vaða í hlutina
Vala Kristín og Júlíana Sara hafa gert fjórar gam-
anþáttaraðir á sex árum og eru án efa með fyndn-
ustu leikkonum landsins. Þær standa fast á sínu
og segja vinnuumhverfi leikara hafa breyst mikið
á síðastliðnum árum.
Auður Ösp
Guðmundsdóttir
audur@dv.is
Á rið 2014 fóru tvær ungar og óreyndar leikkonur á fund með
Stöð 2. Þær lögðu þar fram
hugmynd að nýjum sketsa-
þætti og sýndu stjórnendum
stöðvarinnar grínatriði sem
þær höfðu tekið upp á símana
sína. Þátturinn fékk nafnið
Þær tvær og sló í gegn. Þessar
tvær leikkonur, Vala Kristín
Eiríksdóttir og Júlíana Sara
hafa síðan þá skrifað, fram-
leitt og leikið í fjórum sjón-
varpsþáttaröðum og er sú
fimmta á leiðinni. Þær leiddu
blaðamann DV í allan sann-
leikann um breytt landslag í
leiklistarbransanum á Íslandi,
vandræðaleg og skondin mó-
ment frá ferlinum, lífið, til-
veruna, ástina og framtíðina.
Það er ekki leiðinlegt að um-
gangast þær Völu og Júlíönu.
Þær líta þó ekki á sig sem