Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2020, Síða 11
„fyndu gellurnar“ þó svo að
aðrir hafi gert það.
Júlíana: „Mér finnst það
alveg frekar óþægilegt stund-
um. Eins og núna um daginn
þá var ég að tala við stelpu
sem ég hafði ekki hitt áður
og svo allt í einu sagði hún
við mig „ég er sko bara að
bíða eftir að þú segir eitthvað
fyndið“.
Vala: „Mér er alveg sama
þó ég sé „þessi fyndna þarna“
fyrir einhverjum úti í bæ. Það
er bara fínt, en ég lít ekki á
mig þannig.“
Venjulegt fólk
Þessa dagana standa yfir tök-
ur á þriðju seríunni af Venju-
legu fólki þar sem þær Vala og
Júlíana leika aðalhlutverkin og
skrifa handritið ásamt Dóra
DNA og Fannari Sveinssyni.
Glassriver framleiðir og verða
þættirnir aðgengilegir í Sjón-
varpi Símans Premium í haust.
Fyrsta þáttaröðin var frum-
sýnd hjá Sjónvarpi Símans
í október 2018 og sló strax í
gegn. Önnur þáttaröð fór síð-
an í loftið rúmu ári síðar og
viðtökurnar voru þær sömu.
Í október síðastliðnum var til-
kynnt að þættirnir væru á leið
vestur um haf en MHz Net-
works hefur keypt sýningar-
réttinn á þáttaröðinni sem
mun fara í dreifingu í Banda-
ríkjunum. Það er því ljóst að
mikið vatn hefur runnið til
sjávar frá árinu 2014.
Í þáttunum leika þær nokk-
urs konar skáldaða útgáfu
af þeim sjálfum. Þættirnir
fjalla um hversdagsraunir
vinkvennanna Völu og Júlí-
önu, sem báðar eru leikkonur
að reyna að fóta sig í lífinu á
meðan þær glíma við venju-
lega hluti eins og delluóðan
eiginmann, stöðugt lífsgæða-
kapphlaup, ruddalegan yfir-
mann og svo mætti lengi telja.
Júlíana: „Fólk er alltaf að
spyrja hvort við séum að leika
okkur sjálfar. Þegar við byrj-
uðum að tala um hugmynd-
ina þá byrjuðum við nálægt
okkur og fórum svo fjær og
fjær. Við héldum nokkrum at-
riðum og hentum burt öðrum.
Á þessum tíma var Vala ekki í
sambandi á meðan ég var gift
og með tvö börn. Síðan skildi
ég, og Vala fór í samband.“
Venjulegt fólk er gaman-
þáttaröð um hversdagslega
hluti, aðstæður sem allir
þekkja. „Þetta eru oft kóm-
ískar aðstæður sem fá fólk til
að hlæja en það er líka botn í
þessu, það verður að vera al-
vara líka.“
Vala: „Þetta er eins og
tramp ólín, því dýpra sem þú
sekkur í eitthvað sem er satt
og sárt, því meira leyfi hef-
urðu til að gera eitthvað sem
er frumlegt eða flippað eða
fyndið.“
Venjulegt fólk fjallar meðal
annars um sambönd: ný ástar-
sambönd sem eru að verða til
og þróast og eldri sambönd
þar sem aðilar þekkja hvorn
annan út og inn og þurfa að
hafa meira fyrir því en áður
að halda neistanum. Rétt eins
og persónurnar hafa Vala
og Júlíana báðar fundið ást,
tapað henni og fundið hana
aftur. Þær eru báðar ást-
fangar upp fyrir haus í dag.
Vala er í sambúð með Birki
Blæ Ingólfssyni fréttamanni
og skáldi og Júlíana fann ást-
ina hjá Andra Jóhannessyni
þyrluflugmanni.
Júlíana: „Ég fann ástina
aftur eftir skilnað svo ég veit
að það er hægt. Ég er ofboðs-
lega hamingjusöm í dag.“
Vala: „Ég hef komist að því
hvað það er mikilvægt að geta
staðið ein, verið heil áður en
maður fer í samband með ein-
hverjum. Það er ekki gott að
fara inn í samband með óupp-
gerð mál. Ég hef til dæmis
áður tjáð mig opinberlega
um hluti sem ég hef verið að
glíma við, eins og átröskun og
kvíða. Ég er rosalega fegin að
ég var búin að vinna í þessum
málum áður en við kynnt-
umst.“
Réttur staður og réttur tími
Leiðir vinkvennanna lágu
fyrst saman í Versló. Júlí-
ana var síðan nýútskrifuð úr
leiklistarnámi og Vala var
á þriðja ári í leiklistardeild
LHÍ þegar þær fóru á fund
með stjórnendum Stöðvar 2 og
lögðu fram hugmynd að nýjum
sketsaþætti.
Vala: „Við ætluðum fyrst
að gera leikrit saman en
svo sáum við að efnið sem
við vorum með var miklu
hentugra í sketsaþætti. Við
vorum samt ekki með ein-
hverja úthugsaða hugmynd
þegar við mættum upp á Stöð
2. „Þetta var meira: „hey,
prófum þetta, gerum þetta
bara. Eins og þegar þú ert
krakki og dettur eitthvað í
hug eins og að halda tombólu
eða finna leynistað eða fara í
mömmó. „Hey, komum í sjón-
varpsþáttaleik“-stemning
hjá okkur. Við notuðum svo
bara símana okkar til að taka
upp skets sem við sýndum á
fundinum. Svo bara kom það
á daginn að þetta var akkúrat
rétti tíminn til að koma með
sketsaþátt, það var pláss fyrir
okkur, og þetta var kærkomin
viðbót.“
Júlíana: „Mér fannst fyrst
og fremst vera kominn tími
á góða sketsaþætti á þessum
tíma, ég hugsaði aldrei: „Ég
er stelpa og þess vegna verð
ég að gera þetta.“ Þarna voru
margar æðislegar gamanleik-
konur búnar að koma fram,
eins og til dæmis Stelpurnar
á Stöð 2. Ég var bara að fók-
usera á að koma með gott efni,
fyrst og fremst.“
Þær eru sammála um að það
er langbest að vaða í hlutina, í
stað þess að ofhugsa allt.
Júlíana: „Ég pældi aldrei í
því að þetta væri ekki nógu
gott eða flott eða ekki nógu
prófessional. Ég man alltaf
eftir viðtali sem ég las við
Kristen Wiig leikkonu þar
sem hún sagði: „Um leið og
ég fer að pæla í því hvernig
fólk á eftir taka í hugmyndina
mína þá er hugmyndin orðin
ónýt.“ Mér finnst þetta frekar
góð regla. Ég meina, þú getur
hvort sem er aldrei gert öllum
til hæfis.“
Vala: „Það er bara bilun að
ætla að fara að fullkomna út-
komuna áður en þú leggur af
stað. Þá ertu aldrei að fara að
gera neitt.“
Það eru ekki allir sem hafa
kjark til að vaða í hlutina og
taka af skarið, óviss um út-
komuna. Vala og Júlíana segja
það gleðilegt ef að þeirra
árangur geti orðið hvatning
fyrir annað ungt fólk, ekki síst
stelpur, sem eiga oft erfiðara
með að trana sér áfram.
Júlíana: „Mér finnst það svo
æðislegt ef að við erum fyrir-
myndir fyrir einhverja þarna
úti, einhverjar svona litlar
snúllur, en það er ekki eins og
við höfum lagt upp með það.“
Vala: „Ef það eru einhverjar
ungar stelpur eða bara krakk-
ar þarna úti sem hugsa: „Vá
það er hægt að gera svona“, þá
er það auðvitað besta mögu-
lega útkoman. Það er algjör
heiður.“
Júlíana: „Mér finnst það hafa
Þetta er eins og trampólín,
því dýpra sem þú sekkur í
eitthvað sem er satt og sárt,
því meira leyfi hefurðu til að
gera eitthvað sem er frumlegt
eða flippað eða fyndið.
Vala Kristín
FRÉTTIR 11DV 17. JÚLÍ 2020
Vala og
Júlíana eru
sammála um
að það sé
langbest að
vaða í hlutina,
í stað þess að
ofhugsa allt.
MYND/ERNIR