Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2020, Blaðsíða 14
Á ÁBYRGÐ EIGANDA AÐ
ALLT SÉ LOKAÐ OG LÆST
Nú er tími sumarleyfa og því mikilvægt að gæta að
öryggi heimilisins á meðan á ferðalaginu stendur.
Þ að er mikilvægt að hafa það í huga að því meira sem þú setur á
samfélagsmiðlana, myndir
og slíkt úr fríinu, því meira
ertu að auglýsa að þú sért
ekki heima,“ segir Sigrún A.
Þorsteinsdóttir sérfræðingur
í forvörnum einstaklinga hjá
VÍS. Fjölmörg dæmi eru um
að tryggingar bæti ekki fyrir
innbrot þar sem húseigendur
hafa ekki gætt að einföldum
atriðum.
Heimilistryggingar bæta
tjón vegna innbrots í læstar
íbúðir, hvort sem brotist er
inn um glugga eða dyr eða far-
ið inn með stolnum lykli eða
þjófalykli. Það er því gríðar-
lega mikilvægt að gæta þess
mannlaus hús séu alltaf læst
og öllum gluggum lokað. Ann-
ars er hætta á að tjónið lendi
alfarið á eigandanum, enda
nær hugtakið innbrot yfir at-
höfnina þegar einhver brýtur
sér leið inn í húsnæði í stað
þess að fara inn um venju-
legar inngönguleiðir.
Nágrannavarsla mikilvæg
„Það er því miður þann-
ig að þeir sem eru í þessum
„bransa“, þeir eru að fylgjast
grannt með. Hvenær fólk fer
og hvenær það kemur. Þeir
labba niður götuna á nóttunni
og kanna hvar útidyrahurðir
og bílhurðir eru opnar. Númer
eitt, tvö og þrjú er að gæta að
allar útidyrahurðir séu læstar
og að svalir og gluggar séu
krækt aftur. Þá er mikilvægt
að muna eftir að taka raftæki
úr sambandi og skrúfa fyrir
vatn að vatnstengdum vélum,“
segir Sigrún í samtali við DV.
Hún segir það vera ein al-
gengustu mistök fólks að
biðja ekki nágranna eða ein-
hvern nákominn um að taka
póst sem kemur inn á heim-
ilið. „Þetta á kannski fyrst
og fremst við um þá sem
búa í raðhúsi eða minni fjöl-
býlishúsum. Pósturinn fær að
hlaðast upp í daga og vikur og
það er auðvitað bara auglýsing
fyrir það að enginn sé heima.“
Hún segir mikilvægt að fólk
leiti til nágranna eða annarra
upp á aðra hluti, til dæmis við
að slá garðinn eða leggja bíl
í bílastæði sem annars væri
tómt dögum saman. Gera
þannig allt sem mögulegt er
til að láta líta út fyrir að ein-
hver sé heima.
Tímastillt ljós eru tilvalin
Margir grípa til þess ráðs að
hafa kveikt á ljósum og útvarp
í gangi á heimilinu þegar þeir
fara í frí en Sigrún bendir
á að slíkt geti jafnvel vakið
grunsemdir hjá óprúttnum
aðilum. Nú í dag séu komnar
fjölmargar betri lausnir. Hún
nefnir sem dæmi tímastillt
ljós, sem slokkna og kvikna
á ákveðnum tímum. „Það er
nefnilega mikilvægt að hafa
ekki alltaf kveikt á sömu ljós-
unum í sömu herbergjunum.“
Aðspurð um öryggiskerfi
segir Sigrún að myndavélar og
innbrotskerfi séu alltaf örugg
lausn, og þökk sé tækninni í
dag þá þurfa slík tæki ekki að
kosta mikið eða vera flókin í
uppsetningu. Ýmiss konar for-
rit eru á markaðnum sem gera
fólki kleift að fylgjast með úr
snjallsímanum. „Það þarf ekki
alltaf að kaupa vöktun hjá ein-
hverju fyrirtæki. Myndgæðin
í dag eru orðin mjög góð.“
„Svo er mikilvægt að hafa
ekki lausamuni fyrir utan
húsið, eins og hjól eða sláttu-
vél eða eitthvað sem getur
auðveldað þjófum að brjótast
inn, eins og stigi. Líka að láta
hluti ekki sjást innan frá,
þegar horft er inn um glugga,
hluti eins og fartölvur og
myndavélar.
Sigrún bendir að lokum
á að gott sé að hafa í huga
hvar verðmætin eru geymd á
heimilinu. Það sé t.d. algengt
að fólk geymi skartgripi í
svefnherberginu, en ekki á
ódæmigerðum stöðum, eins og
í kassa í þvottahúsinu. „Þegar
menn brjótast inn þá fara þeir
oftast hratt yfir og fara beint
á augljósustu staðina. Þeir
gefa sér sjaldnast mikinn tíma
í að leita og gramsa.“ n
Gott ráð er að geyma verðmætustu munina á ódæmigerðum stöðum. MYND/GETTY
Auður Ösp
Guðmundsdóttir
audur@dv.is
Gott er að
hafa í huga
hvar verð-
mætin eru
geymd á
heimilinu.
14 FRÉTTIR 17. JÚLÍ 2020 DV
DRÁTTARBEISLI
Hágæða beisli, föst eða
losanleg, fyrir flestar gerðir
fólksbíla og jeppa. Upplýsingar
um verð og afgreiðslutíma hjá
Bílanaust.
www.bilanaust.is
STÓRVERSLUN
DVERGSHÖFÐA 2
Dalshrauni 17
220 Hafnarfirði
110 Reykjavík
S. 535 9000
S. 555 4800
Vatnagörðum 12
104 Reykjavík
S. 535 9000
Furuvöllum 15
600 Akureyri
Hafnargötu 52
260 Reykjanesbæ
Hrísmýri 7
800 Selfossi
Sólvangi 5
700 Egilsstöðum
S. 421 7510 S. 482 4200 S. 535 9085 S. 471 1244