Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2020, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2020, Page 18
18 FRÉTTIR 17. JÚLÍ 2020 DV KLUKKUSTUND Í KYNLÍFSHERBERGI Síðasta miðvikudag birtust fréttir um kynlífsherbergi í miðborg Reykjavíkur. Herbergi sem hægt er að panta með stuttum fyrirvara og er sérútbúið fyrir kynlífsathafnir. Fréttin um herbergið sem birtist á DV.is sl. mið-vikudag, var sú mest lesna daginn sem hún birtist svo ljóst er að landsmenn eru forvitnir um herbergið. Blaðamaður DV ákvað að fórna sér og bóka herbergið. Fyrsta klukkustundin kost- ar 15.000 krónur, Eftir það lækkar verðið í 6.000 krónur á tímann. Þetta verð truflaði mig lítið (enda þurfti ég ekki að borga sjálfur). Þó lét ég einn tíma nægja. Bókunarferlið Bókað er í gegnum heima- síðuna sexroom.is og þarf að gefa upp greiðslukort eða not- ast við Pei-greiðslukerfi sem býður einnig upp á greiðslu- dreifingu. Á kortayfirlitinu kemur aðeins fram rukkun frá Greiðslumiðlun. Gefa þarf upp símanúmer til að fá send- an staðfestingarkóða og email til að fá senda kvittun. Þetta fannst mér nokkuð persónu- leg nálgun því í raun er ég að gefa upp fullt nafn og mynd í gegnum þessar upplýsingar. Klukkustund fyrir bókaðan tíma fékk ég svo sms með staðsetningu herbergisins. Leikhústjöld og drama Á slaginu 18.00 var ég mættur fyrir framan heim- ilisfangið. Hús sem er eflaust ekki sögufrægt, en vissulega áberandi í miðborginni. Ég hafði búist við því að þurfa að ganga inn um langa óhugnan- lega ganga til að komast í her- bergið, sem var ekki raunin, heldur voru bara einar dyr. Fyrir framan dyrnar var talnalás þar sem ég stimplaði inn fjögurra stafa kóða sem ég hafði fengið sendan í tölvu- pósti. Í svartri lítilli forstofunni var kolniðamyrkur. Um- kringdur svörtum leikhús- tjöldum sá ég glitta í rauðan ljósbjarma. Ég kom mér inn í sjálft herbergið, þar sem ég sá rúm, rólu, bekk og stórt X. Allt lýst upp með eldrauðum ljósum. Hvað var ég nú búinn að koma mér út í? Ég var hrædd- ur um að einhver væri að fylgjast með mér. Hræddur um að einhver sem ég þekki hefði horft á mig labba inn í herbergið og hugsað: „Hvað er hann að gera þarna einn?“ – Hvað var ég að gera þarna? Ég átti erfitt með að svara því sjálfur. Forvitnin og fórn- fýsi mín fyrir lesendur hafði rekið mig áfram á þennan undarlega stað. Á rúminu biðu mín fjórir smokkar. Rúmið var stórt og á því var svört dýna, en enginn koddi. Ég lagðist upp í rúmið og hugsaði minn gang. Dýnan var merkilega þægileg, en ég myndi ekki ráðleggja neinum að panta herbergið til þess eins að kúra eða taka sér blund. Á rúminu voru mörg handföng og rimlar auk þess sem stóran spegil var að finna fyrir ofan sjálft rúmið. Engin róló-róla Rólan var ekki eins og þær sem maður kannast við af leikvöllum. Á þessari voru festingar, handföng, keðjur og krókar. Hún virtist vera tengd við takkaborð, með þremur tökkum. Einn takk- inn benti upp, annar niður, sá þriðji í hring. Ég óttaðist þessa takka. Ég þorði ekki að ýta á þá, en eftir smá stund lét ég mig hafa það. Upp úr krafsinu kom lítið, ekkert nema einstaka hljóð sem að Jón Þór Stefánsson jonthor@dv.is fengu mig til að óttast um að ég væri hugsanlega að eyði- leggja eitthvað. Ég leyfði mér aðeins að setjast í róluna, en áttaði mig fljótt á því að það væri ekkert svakalega snið- ugt, en ég á það til að vera klaufskur og nenni ekki að fara í gips. Einnig var að finna bekk annars vegar og hins vegar stórt X úr stáli, fast við gólfið úti í horni. Ég verð að viður- kenna að ég átta mig ekki al- veg á því hvert notkunargildi þessara hluta var. Án þess að velta því of mikið fyrir mér, þá leyfi ég mér að spyrja hvort það væri betra að hafa leiðbeiningar til að útskýra það? Vantar stemningstónlist Á heimasíðunni kemur fram að gestum sé ekki heimilt að koma með eigin tæki og tól, því hafði ég búist við því að finna fleiri slík, eins og titr- ara, dildóa og svipur. Ekkert þannig var sjáanlegt, en það er eflaust sniðugt af almenn- um sóttvarnarástæðum. Þó hefði verið gaman að finna svona Eyes Wide Shut-Fen- eyja-grímur, en þær voru heldur ekki til staðar. Annað fannst mér vanta, en það var AUX-snúra í gott hátalarakerfi. Í herberginu var dauðaþögn, fyrir utan loftræstikerfi sem gaf reglu- lega frá sér smá hljóð. Mig grunar að fólk, sem að langar að mæta þangað, vilji setja smá tónlist í gang. Þögnin átti einnig ekki vel við þann mikla hita sem var inni í herberginu. Ég var ekki lengi að koma mér úr regnstakknum og skónum. Ég var meira að segja farinn að svitna. Og ekki af eró- tískum ástæðum. Í einu horninu var að finna þann hluta rýmisins sem ef- laust mætti kalla eðlilegastan, en það var baðherbergið. Þar var klósett, vaskur og sturta í heldur heimilislegum stíl. Auk þess hafði ég aðgang að þrem- ur handklæðum, klósettpappír og sjampóbrúsum og sápu. Þar sem mér var orðið heitt hugs- aði ég um að fara í sturtuna. Mér fannst samt eitthvað bog- ið við það og ákvað að sleppa því, ég var jú í vinnunni. Speglapartý Eitt sem vakti athygli mína var fjöldi spegla á staðnum. Sturtuinnréttingin sýndi spegilmyndina, aðalherbergið var fullt af speglum, bæði á veggjum og lofti og svo var auðvitað spegill hjá baðher- bergisvaskinum. Ég velti fyrir mér ástæðum þess. Þessi heimsókn mín var sérkennileg. Ég held að ég hafi sjaldan upplifað mig eins einmana og einmitt þarna. Spurning hversu mikið þögn- in, speglarnir og umhverfið í heild sinni hafi stuðlað að þessum einmanaleika? Þegar tíminn minn fór að líða að lokum fór ég út. Ég var ekki lengi að setja upp hettu, en einhverra hluta vegna fann ég fyrir smá skömm. n Sérútbúið kynlífsherbergi í miðbæ Reykjavíkur kostar 15.000 kr. klst. MYND/JÞS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.