Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2020, Qupperneq 20
SAKAMÁLATRÍÓIÐ
SIGURÐUR G. GUÐJÓNSSON er hæsta-
réttarlögmaður sem hefur einnig haft annan
fótinn í fjölmiðlun í gegnum árin. Hann hefur
gegnt lögmannsstörfum fyrir marga stóra
aðila í íslensku viðskiptalífi, meðal annars
fyrrum bankastjóra Landsbanka Íslands, eig-
endur World Class og Jón Ásgeir Jóhannes-
son. Sem stendur er hann verjandi konu sem
er grunuð um að hafa svikið fleiri milljónir út
úr systrum sem glíma við Alzheimer.
ÓMAR R. VALDIMARSSON var blaðamaður
og almannatengill áður en hann snéri sér að
lögmennsku. Þrátt fyrir að aðeins séu fimm
ár síðan að Ómar hlaut málflutningsréttindi
hefur hann getið sér gott orð sem verjandi í
sakamálum og er meðal þeirra lögmanna sem
Afstaða, félag fanga, hefur lýst yfir trausti á.
Ómar hefur vakið athygli fyrir nýja aðferð við
öflun skjólstæðinga en hann fylgdist með
dagskrá dómstóla og hafði samband við sak-
borninga og bauð þeim þjónustu sína. Töldu
sumir þessa háttsemi hans hafa valdið því að
nöfn sakborninga koma ekki lengur fram í dag-
skrá dómstóla. Ómar lét þá gagnrýni lítið á sig
fá og sagðist aðeins hafa það að markmiði að
tryggja sakborningum réttláta málsmeðferð.
STEINBERGUR FINNBOGASON er á lista Af-
stöðu, félags fanga, yfir þá lögmenn sem fé-
lagið ber traust til. Fyrir fjórum árum var Stein-
bergur úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna
gruns um að hann ætti aðild að farsakenndu
fjársvikamáli skjólstæðings síns, en málið var
látið niður falla og stefndi Steinbergur í kjöl-
farið ríkinu vegna þeirrar frelsissviptingar
sem honum var gert að sæta. Krafðist hann
um 10 milljóna króna í skaðabætur vegna
málsins. Steinbergur er verjandi Jóhannesar
Tryggva Sveinbjörnssonar, stjörnumeðhöndl-
ara, sem kærður hefur verið um kynferðisbrot
gegn fjölda kvenna.
MANNRÉTTINDAMÓGÚLLINN
RAGNAR AÐALSTEINS-
SON hefur yfir hálfrar aldar
reynslu af lögmannsstörfum
og hefur mikla sérhæfingu
hvað varðar stjórnskipun
landsins og mannréttindi.
Hann er því góður haukur í
horni hvers er telur sig hafa
verið beittan misrétti af yfirvöldum, sem og öðrum.
Hann tók meðal annars að sér mál Eflingar á hendur
starfsmannaleigunni Menn í vinnu.
MEIÐYRÐAMEISTARINN
Viltu stefna einhverjum vegna meiðyrða? Leitaðu ekki
lengra. Varla fer meiðyrðamál fyrir dóm án þess að
VILHJÁLMUR H. VILHJÁLMSSON komi við sögu. Tók
hann meðal annars að sér meiðyrðamál Egils Einars-
sonar, eftir að nokkrir aðilar bendluðu hann við meint
kynferðisbrot, mál manna sem sakaðir voru um kyn-
ferðisbrot í svonefndu Hlíðamáli og mál Guðmundar
Spartakusar Ómarssonar gegn fjölmiðlamönnunum
Sigmundi Erni Rúnarssyni og Atla Má Gylfasyni vegna
umfjöllunar þeirra um meinta aðkomu Guðmundar að
fíkniefnum og hvarfi Friðriks Kristjánssonar.
RÉTTARGÆSLUKONAN
SIGRÚN JÓHANNSDÓTTIR hefur getið sér gott orð
sem réttargæslumaður brotaþola í refsimálum, þá
oft í kynferðisbrotamálum. Hún er réttargæslumaður
kvenna sem hafa sakað stjörnumeðhöndlarann Jó-
hannes Tryggva Sigurbjörnsson um kynferðisbrot, þó
svo að verjandi Jóhannesar hafi farið fram á að hún
hefði stöðu vitnis í málinu. Árið 2015 hóf lögmanns-
stofa Sigrúnar að bjóða þolendum kynferðisofbeldis
upp á ráðgjöf og þjónustu, þeim að kostnaðarlausu.
FORSJÁRFÉLAGINN
Þegar kemur að forsjár-
málum þá heyrist oft eitt
nafn nefnt. VALBORG Þ.
SNÆVARR. Valborg hefur
rekið gífurlegan fjölda for-
sjármála í gegnum árin, við
góðan orðstír og ekki á hún
langt að sækja hæfnina en
faðir hennar Ármann Snævarr var mikils metinn laga-
prófessor sem skrifaði meðal annars umfangsmikið rit
um hjúskapar- og sambúðarrétt. Eins var hann um tíð
rektor Háskóla Íslands og hæstaréttardómari.
VINNUVERNDARINN
Varstu snuðaður um laun eða réttindi á vinnumarkaði?
LÁRA V. JÚLÍUSDÓTTIR er sérhæfð í vinnurétti og
höfundur margra rita sem notuð eru í lögfræðikennslu
á Íslandi. Hún vakti nýlega athygli er hún tók að sér mál
Kristjönu Valgeirsdóttur, fjármálastjóra stéttarfélags-
ins Eflingar, sem ber fyrrum vinnuveitanda sínum ekki
vel söguna. Lára hefur einnig tekið að sér mál á sviði
sifjaréttar svo sem skilnaði og forsjármál.
KONUNGUR ÞROTABÚANNA
SVEINN ANDRI SVEINSSON er konungur þrotabúanna, þó svo að margir
deili oft um ágæti hans við þau störf. Hann hefur verið skipaður skipta-
stjóri hvers risaþrotabúsins á fætur öðru. Það kostar þó skilding að fá
Svein Andra í þrotabúið sitt en hann rukkar ríflega 40 þúsund krónur fyrir
hverja klukkustund. Hann var skipaður einn skiptastjóra flugfélagsins
WOW, kröfuhöfum til lítillar gleði, en margir hefðu þeir gjarnan viljað
ódýrari aðila sem ekki er jafn umdeildur í starfið.
Á UPPLEIÐ
HILDUR HJÖRVARR starfar sem
lögfræðingur við Mannréttinda-
dómstól Evrópu. Hún hlaut árið
2017 hæstu einkunn sem þá hafði
verið gefin fyrir fullnaðarpróf í
lögfræði og sópaði til sín öllum
verðlaunum sem voru veitt fyrir
námsárangur á námstíma hennar
í Háskóla Íslands. Það verður
fróðlegt að fylgjast með þessari
öflugu konu í framtíðinni sem er
án efa ekkert nema björt.
IVANA ANNA NIKOLIC hlaut í vor
hæstu einkunn sem hefur verið
veitt fyrir meistarapróf í Háskóla
Íslands með 9,5 í meðaleinkunn.
Hún dúxaði einnig í bakkalárnám-
inu og hlaut hæstu meðaleinkunn
á fyrsta ári lögfræðinnar. Hún er
sem stendur lögfræðingur hjá
Umboðsmanni Alþingis en kveðst
hlakka til að prófa sig áfram í
framtíðinni.
20 EYJAN 17. JÚLÍ 2020 DV
ÞESSIR LÖGMENN VITA
HVAÐ KLUKKAN SLÆR
Á Íslandi má finna fjölda lögfræðinga og
lögmanna. Sumir eru meira áberandi en
aðrir. Hér eru nokkrir gífurlega vinsælir
lögmenn sem vert er að fylgjast með.
Erla Dóra
Magnúsdóttir
erladora@dv.is