Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2020, Blaðsíða 29
JAKKINN SEM ALLIR ÞRÁ
Barbour-jakkar hafa verið vin-
sælir í áratugi og hafa gjarnan
verið tengdir við háklassamenn-
ingu, breska plebba á veiðum eða
snobbaða hestamenn. Það er þó
löngu liðin tíð, en jakkarnir fást
meðal annars hérlendis hjá Kor-
máki og Skildi og í Geysi. Jakk-
arnir fást með ýmsu sniði, svo sem
vatteraðir eða vaxjakkar og þykja
þeir hin besta fjárfesting, sökum
þess hversu endingargóðir þeir
eru og hægt er að vaxbera jakk-
ana aftur og aftur.
UNDIRFÖT SEM HALDA HITA
Íslenska nóttin getur verið ansi köld
þó hún sé björt. Þá skiptir máli að
vera í góðum undirfötum. Hægt er
að kaupa falleg undirföt á konur
og karla í Ullarkistunni, Laugavegi.
Blúndan kemur svo í veg fyrir að
þetta sé einhver hryllingur. Svo má
alltaf reyna að treysta á makann,
ef hann er ekki víraður við gítar eða
hvítvínsbelju fram eftir öllu.
HÖFÐINGLEGUR HATTUR
Allir sem eru á samfélagsmiðlum
vita að fallegur hattur er ávísun á
góða mynd. Það er líka allt miklu
skemmtilegra með hattinn, eða svo
segja menn. Hatturinn er „unisex“
svo hjónin geta deilt honum, séu
þau jafn höfuðstór.
ÚTILEGU/GÖNGU PILS
Vatnshelt pils með stuttbuxum
undir. Efnið teygist og andar. Vasar
og hankar fyrir belti. Algjör snilld til
að ganga í, eða smella sér í fallegan
topp og kíkja í drykk á hótelbarnum
eftir góða göngu. Pilsið fæst í
tveimur litum.
BRJÁLÆÐISLEGA ÞÆGILEGAR
Þessar buxur kallast Hagi og eru
frá Farmers market. Þær eru full-
komnar í ferðalagið, mjúkar og
gefa vel eftir, henta hvort sem er á
hestbak, göngu eða við háa hæla
sé farið út að borða. Svo eru þær
á útsölu! Buxurnar fást ljósgráar
og dökkgráar.
SÓLGUL ULLARPEYSA
Það fer enginn neitt án þess að
vera með hnausþykka peysu.
Hvort sem er til að ganga í eða
hjúfra sig í á kvöldin þegar lofthiti
lækkar.
SMART STÍGVÉL
Frönsku stígvélin frá Aigle eru ekki bara falleg heldur
virkilega þægileg og endingargóð, en þau eru úr nátt-
úrulegu gúmmíi. Hægt er að kaupa sérstakt sprey til að
vernda gúmmíið enn frekar, en þegar gúmmíið ofþornar
geta stígvélin farið að trosna. Stígvélin fást í hinum
ýmsu útgáfum og eru með hæl. Aigle framleiðir einnig
„unisex“ stígvél og gullfalleg barnastígvél.
SÉRLEGIR SOKKAR
Fallegir og hlýir sokkar geta
bjargað bæði líkamshita og út-
litinu. Ekki er verra að sokkarnir
fást í ýmsum stærðum svo hægt
er að kaupa þá á alla fjölskylduna
og jafnvel peysu eða galla í stíl.
TEYGJANLEGUR FATNAÐUR
Það má gera hinar ýmsu æfingar
í útivistarfatnaði til að meta hvort
hann sé í raun þægilegur. Til dæmis
ganga á höndum. Mikilvægt er að
góð teygja sé í fötum þegar stunduð
er útivist. „Softshell“ buxur eru því
einstaklega hentugar og flíspeysan
klikkar aldrei. Buxurnar hrinda frá
sér vatni og eru „unisex“.
DJÚSÍ PEYSUPARTÝ
Þykk rúllukragapeysa mun svo
sannarlega koma sér vel í sumar og
er falleg, hvort sem er við gallabux-
ur og háa hæla eða útivistarbuxur
/ leggings. Peysan er úr ástralskri
merino-ull og skoskri lambsull og
því þykk en mjúk og ertir ekki.
KORMÁKUR OG SKJÖLDUR
Verð frá: 18.900 kr.
FARMERS
MARKET
14.700 kr.
GEYSIR
Verð frá: 44.900 kr.
ELLINGSEN/
ÚTLILÍF
10. 990 kr.
FARMERS MARKET
10.990 kr .
ÁSTUND
Verð frá:
17.990 kr.
CINTAMANI
Buxur
29.995 kr.
Flíspeysa
21.995 kr.
CINTAMANI
25.995 kr.
FARMERS MARKET
verð frá: 1.500 kr.
ULLARKISTAN
verð frá :
3.990 kr.
FÓKUS 29DV 17. JÚLÍ 2020