Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2020, Síða 34
34 FÓKUS
Á ferð um landið SUÐURLAND
Það er fyrirtaks helgarplan að
renna austur fyrir fjall og njóta
sveitaloftsins og þeirra frábæru
afþreyingarmöguleika sem í boði
eru. Nú er bara að smella börn-
unum í regngalla, nesti í bak-
poka og leggja í hann. Draugar
og dýragarður, sund og sæla eru
handan við þjóðveginn.
LAUGARVATN FONTANA
Náttúruböðin á Laugarvatni bjóða upp á upplifun hinnar einstöku gufu beint
yfir gufuhvernum fræga sem heimamenn og gestir hafa nýtt til heilsubaða
að minnsta kosti síðan 1929. Auk þess er unnt að baða sig í heilsubaðvatni
í þrískiptri baðlaug, dvelja í heitu sánubaði, ganga í volgum sandinum, dýfa
sér í Laugarvatnið sjálft frá nýbyggðri bryggju eða slaka á í fallegum garð-
inum. Jafnframt gefur dvöl í böðunum ávallt tækifæri til að skynja hina
síbreytilegu íslensku veðráttu og njóta fjallasýnar. Einnig er hægt að bóka
rúgbrauðssmökkun fyrir hópa en þá er grafið upp rúgbrauð sem bakað er í
nágrenni við böðin með jarðvarma og það borðað volgt út í náttúrunni með
smjöri og reyktum silungi.
DRAUGASAFNIÐ
Draugasafnið á Stokkseyri er fjöl-
breytt skemmtun en þar er einnig
að finna Álfa-, trölla- og norður-
ljósasafnið. Söfnin eru opin alla
daga frá kl. 13-18 og eru staðsett
við hlið Fjöruborðsins, hins marg-
rómaða humarstaðar á Stokks-
eyri. Draugasafnið þykir afbragðs-
skemmtun en heyrst hafa sögur
af því að jafnvel svölustu gestum
hafi brugðið í brún af óskýrðum
ástæðum.
SÓLHEIMAR
Sjarmabýlið Sólheimar er dásam-
legur staður. Þar er sköpunar-
gleðin við völd hvert sem litið er.
Hægt er kíkja á listasýningar og
kaupa listaverk og fara í kaffi á
stórkostlegt kaffihús staðarins.
Yfir sumartímann má einnig versla
lífrænt grænmeti sem er ræktað
á Sólheimum og heimabaksturinn
er algert sælgæti. Á staðnum er
einnig gistiheimili og hægt að fá
leiðsögn um svæðið.
ÞINGVELLIR
Allir þurfa að heimsækja Þingvelli,
helst á hverju sumri. Hvort sem
er í spássitúr, til að veiða, fara í
lautarferð eða kíkja á Peningagjá.
Börnum finnst gaman að kasta
peningum í gjána og óska sér.
SLAKKI
Litli dýragarðurinn Slakki er
sjarmerandi og heimilislegur. Þar
er að finna framandi fugla í bland
við húsdýr og mínígolfvöll, leik-
tæki og franskar. Garðurinn er
staðsettur að Laugarási, Hruna-
mannahreppi – ekki langt frá Frið-
heimum – og er opinn frá 11-18 alla
virka daga.
MYND/GETTY
MYND/FACEBOOK
MYND/FACEBOOK MYND/ERNIR
MYND/GVA
MYND/FACEBOOK
KERIÐ
Kerið er vinsæll áningarstaður og er kjörið að koma þar við á ferð um Gríms-
nesið nú þegar mun minna er um ferðamenn. Kerið er gíghóll, 270 metra
langt og um 170 metra breitt. Gígurinn er vel yfir 50 metra djúpur og niðri í
honum er tjörn sem er fallega blá. Dýpt tjarnarinnar fer eftir grunnvatns-
stöðu, sem getur verið frá 7 metrum upp í 14 metra.
HRAUNBORGIR
Eitt besta tjaldstæði landsins. 22ja
ára aldurstakmark er inn á stæðið
svo unglingar í leit að veseni verða
að leita annað. Tjaldstæðið er
ákaflega fjölskylduvænt og rekið
af fjölskyldu sem þjónar sjálf til
borðs á litlum veitingastað í þjón-
ustumiðstöðinni. Staðurinn heitir
Þorparinn og þar er hægt að fá ís-
kaldan bjór á krana og fantagóðar
pítsur. Þar er einnig fínt útisvæði,
aparóla og sundlaug.
HÓTEL GRÍMSBORGIR
Hótelið er annað af tveimur 5
stjörnu hótelum landsins. Þjón-
ustan er margrómuð og hótelið
ákaflega fallegt og heitir pottar
víða um svæðið en hótelið býður
bæði upp á herbergi, íbúðir og
lúxusgistingu í húsum. Í sumar er
boðið upp á ýmis tilboð á hótelinu
auk þess sem Abba-sýningar eru
reglulega á staðnum. Veitinga-
staður hótelsins þykir virkilega
góður og er boðið upp á happy
hour milli 16 og 18 alla daga vik-
unnar. Morgunverðarhlaðboð
staðarins þykir eitt það besta á
landinu þar sem brakandi ferskt
freyðivín bíður og eggjakökur eru
sérsteiktar ofan í gesti.
MYND/EYÞÓR
17. JÚLÍ 2020 DV
MYND/FACEBOOK MYND/FACEBOOK