Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2020, Side 38
Matseðill
Elísu
Morgunmatur
Hafrar, chia-fræ, hampfræ, salt,
smá sítrónusafi, látið liggja í
möndlumjólk yfir nót t. Toppa
þessa máltíð svo með því sem
til er hverju sinni. Oftast er það
banani og stökkt múslí & KAFFI.
Ég er mikil kaffikona.
Millimál
Ótrúlega misjafnt, en ávextir eða
grænmeti, flatkökur, hreint skyr
með banana og múslí, brauð með
áleggi og svo gæti ég borðað
hummus með skeið upp úr boxi
ef þannig ber við.
Hádegismatur
Ég bý mér oft til alls konar mat-
armikil salöt úr því sem til er í ís-
skápnum, kínóa eða bygg, fala-
felbollur, klettasalat, ofnbakað
grænmeti með góðri dressingu
er svolítið það sem ég er að
vinna með.
Ef skipulagið fer alveg úr bönd-
unum (sem gerist oft) þá hefur
eggjavélin í vinnunni komið mér
ansi oft til bjargar og þá eru það
2 brauðsneiðar með smjöri, osti
og soðnu eggi, legg ekki meira
á ykkur.
Millimál
Fæ mér eit thvað kolvetnaríkt
fyrir æfingar, brauð með áleggi,
morgunkorn eða ávexti.
Kvöldmatur
Fiskur verður mjög of t fyrir
valinu á mínu heimili, annars
einhverjir ljúffengir grænmetis-
réttir.
Fiskur á einni pönnu er í miklu
uppáhaldi og alveg ótrúlega ein-
falt og gott.
Fiskur á einni pönnu
Uppskrift fyrir 2-3
500 g þorskhnakkar
1 blaðlaukur
1 grænt epli
50 g parmesan-ostur
300 ml kókosrjómi/matreiðslurjómi
1 tsk. aromat
1 tsk. chillí flögur
2 msk. karrý
Salt og pipar eftir smekk
Handfylli af klettasalati
Hveiti til að velta fiskinum upp úr
Fiskinum velt upp úr hveiti og steikt-
ur á vel stórri pönnu upp úr smjöri og
olíu 2-3 mínútur á hvorri hlið, þá er
fiskurinn kryddaður og kókosrjóm-
anum/matreiðslurjómanum hellt yfir.
Látið malla í 5-10 mínútur á meðal
háum hita. Blaðlauknum og eplunum
er bætt við sem og parmesan-osti,
þetta er látið malla í 5 mínútur, eða
þar til osturinn er bráðinn og laukur-
inn og eplin aðeins farin að eldast.
Að lokum er klettasalati stráð yfir og
örlítið meira af parmesan rifið yfir.
Fiskurinn er svo borinn fram á beint
á pönnunni.
Ákveðin hugleiðsla að elda
Elísa Viðarsdóttir er afrekskona í knattspyrnu og spilar með Val. Hún er líka meistara-
nemi í næringarfræði, móðir, og starfar sem matvælafræðingur. Hún þarf mikla orku
fyrir amstur dagsins og gefur sér oftast tíma til að elda góðan og næringarríkan mat.
Elísa hefur mikinn áhuga á eldamennsku og trúir því að hún sé ágætis kokkur. MYND/ERNIR
MYND/AÐSEND
Sóley
Guðmundsdóttir
soley@dv.is
V enjulegur dagur hjá mér byrjar á því að mæta í vinnuna upp úr
átta,“ segir Elísa. „Eftir vinnu
fer ég í búðina til að geta und-
irbúið kvöldmatinn áður en ég
sæki stelpuna mína á leikskól-
ann um klukkan þrjú.“ Elísu
finnst mjög nærandi að sækja
dóttur sína snemma í leik-
skólann. „Það er gott að eiga
tíma með henni áður en ég fer
á æfingu seinni partinn. Eftir
æfingu er gott að koma heim
og þurfa bara að hita upp mat-
inn. Á kvöldin, þegar stelpan
er sofnuð, finnst okkur gott að
horfa á einn þátt til að tæma
hugann.“
Heilbrigt samband
við mat mikilvægast
Elísa fylgir ekki neinu
ákveðnu mataræði. Hún er að
leggja lokahönd á meistararit-
gerð í næringarfræði og veit
því vel hvað hentar henni að
borða til að hafa næga orku
til að sinna vinnu, skóla, fjöl-
skyldunni og æfingum. „Það
sem hentar mér er að borða
fjölbreyttan mat sem er vel
samsettur af próteinum, kol-
vetnum og fitu. Mér finnst
þó mikilvægast að eiga í heil-
brigðu sambandi við mat og
ekki flokka mat í slæman eða
góðan, frekar næringarríkan
eða næringarsnauðan. Það er
nefnilega allt í lagi að borða
allt, bara ekki allt í einu og
ekki alltaf.“
Elísa hefur mjög mikinn
áhuga á eldamennsku. „Mér
finnst ákveðin hugleiðsla í
því að standa í eldhúsinu að
elda og sæki því mjög mikið í
það. Ég verð að segja að sjálfs-
traustið er með mér í eldhús-
inu og ég trúi því innilega að
ég sé ágætis kokkur.“ n
38 MATUR 17. JÚLÍ 2020 DV