Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2020, Page 44
44 STJÖRNUFRÉTTIR
TAPAÐI BARÁTTUNNI VIÐ FÍKNINA
COREY ALLAN MICHAEL MONEITH fór með hlutverk
Finn Hudson í þáttunum, ameríska fótboltamannsins
með englaröddina sem lék lykilhlutverk í að færa Gleði-
sveitina til vegs og virðingar. Utan þáttanna glímdi
Moneith þó við persónulega djöfla. Frá 13 ára aldri
hafði hann glímt við fíkn og reyndist erfitt að komast
undan henni. Árið 2013 fannst samstarfsmönnum hans
í þáttunum nóg komið, gripu inn í og hvöttu hann til að
leita sér hjálpar. Moneith fór þá í meðferð og virtist allt
horfa til betri vegar.
Aðeins tveimur mánuðum eftir að hann lauk meðferð-
inni fannst Moneith látinn á hótelherbergi eftir að hafa
farið út að skemmta sér með vinum. Banamein reynd-
ist banvæn blanda af vímuefnum og áfengi. Ekki var
talið að um viljaverk væri að ræða. Moneith hafði farið
í meðferð og þol hans fyrir vímugjöfum hafði minnkað
svo mikið að skammtur sem hann hafði áður þolað vel,
reyndist banvænn. Hann var aðeins 31 árs þegar hann
lét lífið. Andlát hans lagðist þungt á samstarfsmenn
hans, en að undirlagi mótleikkonu hans, Lea Michele,
var ákveðið að halda töku þáttanna áfram og helguðu
þau heilan þátt minningu Moneith og persónu hans
Finns.
KENNDI JULIU ROBERTS UM
Það voru ekki bara leikarar þátt-
anna sem féllu frá langt fyrir aldur
fram.
JIM FULLER var aðstoðarleik-
stjóri þáttanna. Hann varð bráð-
kvaddur í svefni árið 2013, aðeins
41 að aldri. Við þættina vann einn-
ig kona að nafni NANCY MOTES.
Hún var yngri systir stórstjörn-
unnar Juliu Roberts og bar systur
sinni ekki fagra söguna en hún
sakaði Roberts um mikla stjórn-
semi og vanvirðandi framkomu.
Motes tók eigið líf árið 2014 en
hún glímdi við alvarlegt þung-
lyndi. Hún skildi eftir sig bréf til
unnusta síns þar sem hún kvað
móður sína og systur meðal ann-
ars bera ábyrgð á hvernig komið
var fyrir henni. „Móðir mín og
svokölluð systkini mín fá ekkert
eftir mig nema minninguna um að
það voru þau sem ollu mínu versta
þunglyndi.“
GÍFURLEGT MAGN AF BARNAKLÁMI
MARK WAYNE SALLING fór með hlutverk Noah „Puck“ Puckerman í þátt-
unum, Puck var amerískur fótboltamaður, líkt og Finn, og bar litla virðingu
fyrir samnemendum sínum í Gleðisveitinni, eða allt þar til að hann öðlaðist
kjarkinn til að viðurkenna að hann hafði gaman af því að syngja og dansa.
Tveimur árum síðar var Salling handtekinn á heimili sínu í Los Angeles
grunaður um vörslu barnakláms. Við húsleit heima hjá honum fannst gífur-
legt magn af barnaklámi og málið spurðist fljótlega út opinberlega. Ljóst var
að Salling var búinn að vera. Hann var í kjölfarið ákærður og sakfelldur fyrir
brot sín. Átti hann yfir höfði sér fjögurra til sjö ára fangelsi auk þess sem
hann kæmi til með að þurfa að vera á skrá yfir kynferðisbrotamenn og leita
sér meðferðar við barnagirnd. Áður en dómari hafði ákvarðað refsinguna
fannst Salling, sem þá var laus gegn tryggingu, látinn nærri heimili sínu.
Dánarorsök var sjálfsvíg.
FÓRNAÐI SÉR FYRIR SONINN
NAYA MARIE RIVERA fór með hlutverk Santönu Lopez í þáttunum, klapp-
stýra sem kallaði ekki allt ömmu sína. Eftir að þáttaröðin hafði runnið sitt
skeið gekk Rivera að eiga leikarann Ryan Dorsey og átti með honum sitt
fyrsta og eina barn, Josey. Árið 2017 var Rivera handtekin fyrir heimilisof-
beldi gegn manni sínum og skildu þau í kjölfarið. Dorsey neitaði þó að leggja
fram kæru og var heimilisofbeldismálið látið niður falla.
Þann 8. júlí síðastliðinn var tilkynnt að Riveru væri saknað eftir að fjögurra
ára sonur hennar fannst aleinn á reki í bát á vatninu Lake Piru í Kaliforníu.
Drengurinn fannst sofandi í björgunarvesti um borð í bátnum og gat hann
greint lögregluyfirvöldum frá því að hann og móðir hans hefðu stungið
sér til sunds og svo hefði Rivera komið honum aftur upp í bátinn en aldrei
skilað sér þangað sjálf.
Upphófst umfangsmikil leit að Rivera. Daginn eftir að leit hófst greindi lög-
reglustjórinn á svæðinu frá því að við leit væri gengið út frá því að Rivera
hefði drukknað.
Fimm dögum síðar fannst Rivera og var opinberlega úrskurðuð látin. Talið
er að hún hafi lent í miklum straumþunga í vatninu og nýtt síðustu krafa
sína í að bjarga syninum. Dánarorsök var skráð drukknum af slysförum.
ÖNNUR HNEYKSLI
GLEÐISVEITARINNAR
LEA MICHEL var stjarna þáttanna.
Hún hefur nýlega verið sökuð um
að beita meðleikara sína einelti og
yfirgangi á tökustað og vera með
yfirgengilega stjörnustæla.
JESSE LUKEN fór með gestahlut-
verk í þáttunum árið 2012. Hann
var handtekinn og kærður fyrir
ölvunarakstur árið 2019, sem þótti
mikið hneyksli.
Leikkonan HEATHER MORRIS fór
með stórt hlutverk í þáttunum.
Hún varð fyrir því árið 2010 að
óprúttnir tölvuþrjótar komust í
nektarmyndir af henni og birtu á
Internetinu.
Leikararnir MELISSA BENOIST
og BLAKE JENNER léku bæði í
þáttunum og áttu í ástarsambandi
utan þáttanna. Benoist greindi
síðar frá því að Jenner hafi beitt
hana ofbeldi í sambandinu.
BÖLVUN GLEÐISVEITARINNAR
Sú kenning hefur náð flugi á
Internetinu að bölvun hvíli yfir
þáttaröðinni um Gleðisveit-
ina, en leikkonan Naya Rivera
drukknaði í Kaliforníu á dögunum
og varð þar með þriðji aðalleikari
þáttanna til að láta lífið langt
fyrir aldur fram.
Þ ættirnir um gleðisveit-ina (e. Glee) eru vin-sæl þáttaröð um söng,
dans og gleði. Þættirnir fjöll-
uðum um svonefnda gleðisveit
unglinga í menntaskóla, ástir
þeirra og örlög. Það var ekki
alltaf tekið út með sældinni
að vera í gleðisveitinni en í
gegnum söng og dans virtust
persónur þáttanna ná að yfir-
vinna hverjar þær aðstæður
sem upp komu í lífi þeirra. En
utan tökustaðar hafa miklar
hörmungar riðið yfir leikend-
ur og starfsmenn þáttanna,
svo mjög að kenningar hafa
vaknað um að bölvun hvíli á
þáttunum. n
Erla Dóra
Magnúsdóttir
erladora@dv.is
17. JÚLÍ 2020 DV