Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2020, Qupperneq 45
E ivør Pálsdóttir söngkona er í huga margra sveipuð dulúð og náttúrulegum krafti. Eivør á afmæli á þriðjudaginn,
21. júlí, og því tilvalið að rýna í Krabbann og
hans eiginleika.
Krabbinn er hálfgerður verndarengill, hann hugsar
svo ofboðslega vel um sitt fólk og vill allt fyrir alla
gera. Krabbinn er mjög ástríkur og passar að næra
sitt innra barn með aulahúmor og leik. Krabbinn á
það til að taka hluti of nærri sér og leynir því ekki
þegar hann er þreyttur eða svangur. Í þeim tilfellum
væri kannski best að halda sig aðeins fjarri.
Bikarriddari
Lykilorð: Sköpunargleði, rómantík, sjarmi, ímynd-
unarafl, fegurð
Fagurt er fyrsta spil þitt en það einkennist af sköpun
og rómantík. Innsæið mitt segir að það sé jafnvel
tengt ástarsambandi þar sem þú framkvæmir nýtt
hljóðverk með sálufélaga sem mun vekja mikla lukku.
Ef þér finnst þú hafa verið föst í formi þá er nýr sköp-
unarkraftur að koma til þín með afli!
Sverðriddari
Lykilorð: Metnaður, árangur, útsjónarsemi
Næsta spil helst vel í hendur við það fyrra enda er
áfram talað um þessa nýja orku sem kemur til þín
og það sem þú munt afreka með henni. Það eru svo
sannarlega spennandi tímar framundan hjá þér og ný
tækifæri sem þú skapar sjálf.
Fjarki í Sverðum
Lykilorð: Hvíld, slökun, hugleiðsla, íhugun
Síðasta spilið er spil sem er mikilvægt fyrir alla þá
sem eru að drukkna í vinnu og segja aldrei nei við
verkefnum og jú í sumum tilfellum hafa bara svona
gaman að vinnunni. Það er svo mikilvægt að hlúa vel
að sér og brenna ekki út. Hugleiðsla, jarðtenging og
hvíld er það sem heldur boltanum rúllandi. Þetta spil
hvetur þig til þess að hvíla þig vel áður en þú ferð
áfram í þetta nýja verkefni.
Skilaboð frá
spákonunni
Leyfðu þér að stoppa og dýfa fingrunum í mold og
sameinast náttúrunni. Það róar hugann og nærir
sálina.
STJÖRNUSPÁLESIÐ Í TAROT Eivør Pálsdóttir
Svona eiga þau saman
Vikan 17.07. – 23.07.
Verndarengill með húmor
Sterk saman
MYND/AÐSEND
stjörnurnarSPÁÐ Í
R óbert Marshall og Brynhildur Ólafs-dóttir eru orkumikið par sem hefur látið að sér kveða í samfélaginu. Þau
kynntust þegar þau voru bæði fréttamenn en
síðustu ár hafa þau verið áberandi í útivistinni,
séð um leiðsögn og þjálfun á fjöllum. Nýlega
ákvað Róbert hins vegar að skipta um gír og
er kominn í forsætisráðuneytið þar sem hann
starfar sem upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar-
innar. DV ákvað að lesa í stjörnumerki þeirra
og athuga hvernig þau eiga saman.
Róbert og Brynhildur eru bæði Tvíburar.
Það er líf og fjör í þessu sambandi því það er
líkt og fjórar manneskjur komi saman, ekki
aðeins tvær.
Þessi tvö verða fljótt leið á einhverju og
þurfa mikla andlega örvun. Þau virka vel sam-
an þar sem þau geta hent hugmyndum á milli,
kenningum og krefjandi verkefnum. Tvíburinn
þráir frelsi og alls kyns tjáningu og því geta
Brynhildur og Róbert náð sínum hæstu mark-
miðum saman, því þau eru svo sterk saman.
Ef þau ná að forðast að fara í samkeppni
hvort við annað og vinna saman þá verður
þetta ástarsamband afar langlíft og farsælt. n
Róbert Marshall
31. maí 1971
Tvíburi
n Góð aðlögunarhæfni
n Skapandi
n Fljótur að læra
n Blíður
n Óákveðinn
n Stressaður
Brynhildur Ólafsdóttir
18. júní 1967
Tvíburi
n Húmoristi
n Mannvinur
n Forvitin
n Ástúðleg
n Stressuð
n Ekki samkvæm sjálfri sér
MYND/SIGTRYGGUR ARI MYND/VALLI
Hvaða planta hentar þínu stjörnumerki?
Hrútur
21.03. – 19.04.
Latneska heitið á plöntunni þinni
er Plasticus því ójú, þú af öllum
merkjum, ættir helst að fá þér bara
eitt stykki plastplöntu því þótt að
þú sért hæf/ur í ýmsu þá ertu ekki
með sérlega græna fingur.
Naut
20.04. – 20.05.
Nautið er mjög þolinmótt merki
og því ætti það vel við þig að sá til
plöntu úr fræi. Bændastörfin gætu
alveg átt vel við þig. Þú finnur
mikla hugarró í að sinna plöntum
og ættir því að eiga nokkrar. Þín
planta er Basil-kryddjurtin en hún
þarf natni, ekki of mikið vatn og
þolir ekki útiveru.
Tvíburar
21.05. – 21.06.
Þú ert afar listrænt merki og kannt
að meta hluti sem eru aðeins
öðruvísi. Plantan þín ætti helst að
vera tvílituð og því tileinkum við
þér Kólus-plöntuna. Hún kemur í
ýmsum útfærslum, eins og þú sjálf
eftir því hvaða dagur er og hvaða
verkefni er fram undan.
Krabbi
22.06. – 22.07.
Þú ert svo fjölskyldumiðað merki
að þú velur þér auðvitað plöntu
sem gefur af sér fullt af afleggj-
urum sem þú getur dreift til allra
vina og vandamanna. Plantan þín
er því engin önnur en Veðhlaupar-
inn eða Peningaplantan góða.
Ljón
23.07. – 22.08.
Elsku ljónið okkar er mikið sólar-
merki og laðast að framandi
blómum og plöntum. Sólblóm ætti
að gleðja þig eða jafnvel afríska
blómið Protea. Í raun henta öll gul
blóm þínu merki afar vel. Láttu
það eftir þér að auka litagleðina í
kringum þig.
Meyja
23.08. – 22.09.
Það má segja að þú sért viðkvæmt
blóm og hafir miklar tilfinningar.
Þú er týpan sem blæs á fífla og
óskar þér í leiðinni, alveg sama
hversu gömul/gamall þú ert
orðin/n. Það er hollt að trúa á töfra
alheims! Blómstrandi plöntur sem
ilma, á borð við pottarósir, munu
gleðja þig.
Vog
23.09. – 22.10.
Elsku rómatíska Vogin okkar sem
horfir á heiminn í gegnum rósrauð
gleraugu og elskar allt sem er
bleikt. Bleik planta er sérstak-
lega aðlaðandi fyrir þér og því er
plantan þín bleik eldlija sem vel
má rækta úti í garði eða kaupa
afskorna.
Sporðdreki
23.10. – 21.11.
Sporðdrekinn er svo upptekinn í
því að sigra heiminn að hann má
helst bara eiga eitt stykki kaktus
og svo bara stóran garð eða land
þar sem hlutirnir rækta sig bara
sjálfir eins og fjöllin og hólarnir.
Þín planta er Aloe Vera: græn,
vatnsmikil og sefandi eins og
jörðin sjálf.
Bogmaður
22.11. – 21.12.
Þú nýtur þín vel í garðræktinni svo
lengi sem þú uppskerð vel. Bog-
maðurinn elskar afskorin blóm en
vill helst ekki gul blóm. Ef þú fengir
vönd af bóndarósum þá yrðir þú
glöð út alla vikuna.
Steingeit
22.12. – 19.01.
Ef það er einhver sem kann að
meta klassíska rós þá ert það þú
þú! Þú hefur gaman af hefðum og
ert oft á tíðum kölluð gömul sál.
Mjög líklega ertu líka með stoltan
mynturunna úti í garði hjá þér.
Vatnsberi
20.01. – 18.02.
Age of Aquarius… (heyrist
sungið). Þú ert svo mikill hippi í þér
þannig það kæmi engum á óvart
að þú værir að rækta sveppi eða
eitthvað í þeim dúr, en við mælum
með að það sé bara fyrir súpur en
ekki eitthvað annað. Þitt blóm er
vöndur sem þú týnir saman sjálf/
ur úr náttúrunni. Villt og frjálst eins
og þú.
Fiskur
19.02. – 20.03.
Þú ert týpan til að fá plöntuveikina
og átt líklega ófáar plöntur sem þú
ert jafnvel farin að fela frá mak-
anum þínum. „Ha þessi? Neeei,
hún er ekki ný!!“ Þú ert mjög
heimakært merki og því gleður
það þig mikið að eiga flest allar
plöntur. Þín planta er Zebrina.
STJÖRNUFRÉTTIR 45DV 17. JÚLÍ 2020