Fréttablaðið - 09.09.2020, Side 2

Fréttablaðið - 09.09.2020, Side 2
Það virðast allir finna fyrir þessum aukna áhuga. Herdís Hallmarsdóttir, formaður Hundaræktendafélags Íslands Veður Hægari vindur og víða léttskýjað í dag, en dálitlar skúrir SV-lands. Hiti yfirleitt 5 til 10 stig. Vaxandi sunn- anátt og fer að rigna á S- og V-landi í kvöld. SJÁ SÍÐU 16 Gleðilegan fisk Eliza Reid forsetafrú og Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, gæða sér á fiski í Sælkerabúðinni Bitruhálsi. Smakkið er hluti af markaðsátakinu Fishmas, sem miðar að því að auka vitund fólks um ágæti íslenska fisksins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Faxafeni 11 • Sími 534 0534 Finndu okkur á Fermingarskraut í úrvali! ■ Myndaveggir ■ Nammibarir ■ Kortakassar ■ Servíettur ■ Borðrenningar ■ Blöðrur (fyrir loft/helíum) ■ Blöðrubogar/lengjur/hringir (fyrir loft) ■ Súkkulaðiegg í þemalitum veislunnar ■ Kerti ■ Og margt fleira ■ Veggborðar þar sem hægt er að raða bókstöfum saman í hvaða orð sem er, t.d. nafn fermingarbarns, „Ferming“, „Myndaveggur”, „Kort”, „Nammibar” Vöruúrvalið er að finna á facebook síðu Partýbúðarinnar SAMFÉLAG „Við höfum fundið fyrir auknum áhuga og það er greini- lega að aukast að fólk langi í hund,“ segir Herdís Hallmarsdóttir, for- maður Hundaræktarfélags Íslands, en Fréttablaðið hefur undanfarið fengið fjölda ábendinga um að hundaskortur ríki hér á landi. „Það virðast allir finna fyrir þessum aukna áhuga, bæði er hringt meira til okkar og spurst fyrir og rækt- endur tala um aukinn fjölda fyrir- spurna um hvolpa,“ segir Herdís. „Vinsælustu tegundirnar sem við fáum spurningar um þessa dagana eru þessar „f latnefja tegundir“. Annars koma oft fyrirspurnir um labrador, cavalier, miniature schnauzer, íslenskan fjárhund og golden retriever,“ bætir hún við. Á Facebook má f inna f jölda hópa þar sem fram fer umræða um hunda, en einnig þar sem fram fer sala á hundum og hvolpum. Til að mynda hóparnir Hvolpar til sölu, þar sem meðlimir eru tæplega tutt- ugu þúsund og HRFÍ hvolpar til sölu, sem telur um fjórtán þúsund meðlimi. Í báðum þessum hópum má sjá fjölda fyrirspurna um hvolpa til sölu og væntanleg got, en erfitt virðist vera að anna eftirspurninni sem til staðar er. Samkvæmt upplýsingum frá Hundaræktarfélagi Íslands voru nýskráðir hvolpar frá upphafi þessa árs til síðustu mánaðamóta 643 talsins og fæddust þeir í 140 gotum. Flestir voru af labrador-kyni, 170 talsins, og því næst miniature schnauzer, 121 hvolpur. Herdís segir það ekki endilega neikvætt að eftirspurn eftir hund- um og hvolpum sé meiri en fram- boðið. „Fókus ræktanda á ekki að vera á það að anna eftirspurn held- ur á heilbrigði,“ útskýrir hún. „Við ræktun þarf að gæta að því grund- vallarmarkmiði að rækta heilbrigða hunda með gott og dæmigert skap,“ bætir hún við. Spurð hvort biðlistar séu eftir hundum segir Herdís að það að fá sér hund sé ekki eins og að kaupa sér nýjan hlut. „Þetta er ekki fyrstur kemur, fyrstu fær, eða eins og að fara í röð úti í búð,“ segir hún. „Það er stór ákvörðun að fá sér hvolp og félagið vill biðla til fólks sem er í slíkum hugleiðingum að gefa sér góðan tíma til að kynna sér þær fjölmörgu tegundir sem til eru og spyrja sig hvort hundakynið henti þeim aðstæðum sem viðkom- andi getur boðið hundinum upp á,“ segir Herdís. Þá segir hún ræktendur velja vel heimili fyrir hvern hvolp og því sé mikilvægt að veita sem mestar upplýsingar þegar sóst er eftir því að fá hvolp. „Ræktendur eru að para saman einstaklinga og hunda svo því markvissari, upplýstari og fókuseraðri sem fyrirspurnir ein- staklinga eru, því líklegri eru þeir til að vera rétti aðilinn.“ birnadrofn@frettabladid.is Færri eignast hunda en vilja vegna skorts Mikill áhugi er meðal landsmanna á að eignast hund og hefur eftirspurnin aukist svo mikið að tala má um að hundaskortur sé í landinu. Formaður Hundaræktarfélagsins segir það vera stóra ákvörðun að eignast hund. Herdís Hallmarsdóttir, formaður Hundaræktendafélags Íslands, hefur fundið fyrir auknum áhuga á hundahaldi að undanförnu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI DÓMSMÁL Aðalmeðferð fer fram í dag í máli Samherja annars vegar, og Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra fyrirtækisins, hins vegar, gegn Seðlabanka Íslands. Þing- haldið hefst klukkan 9 í Héraðs- dómi Reykjavíkur í máli Samherja, eftir hádegi hefst svo meðferð í máli Þorsteins Más gegn bankanum. Samherji krefst meira en 300 milljóna króna í bætur vegna aðgerða bankans gegn fyrirtækinu. Fimmtán milljóna króna stjórn- valdssekt bankans á Samherja var felld úr gildi í Hæstarétti árið 2018, þá hafði sérstakur saksóknari tví- vegis vísað meintum brotum fyrir- tækisins á gjaldeyrislögum aftur til bankans. – ab Aðalmeðferð í máli Samherja Samherjamenn mæta Seðlabankanum í Héraðs- dómi Reykjavíkur í dag. STJÓRNSÝSLA Fyrirhugað er að gera breytingar á hlutverki nefndar um eftirlit með lögreglu, en dómsmála- ráðherra hefur óskað eftir umsögn- um um slík áform í samráðsgátt stjórnvalda. Þar kemur fram að í fyrirhug- uðu frumvarpi um breytingar á lögreglulögum verði leitast við að gera störf nefndarinnar skilvirkari, meðal annars með tímafrestum, bættum aðgangi nefndarinnar að gögnum og einfaldari leiðum til að ljúka málum. Þá komi til skoð- unar að nefndinni verði heimilað að komast að sjálfstæðri, efnislegri niðurstöðu í einstökum málum, en núverandi valdsvið nefndarinnar gerir ekki ráð fyrir því að nefndin fjalli efnislega um mál. Hlutverk hennar er að vísa málum til réttra yfirvalda og tryggja að þau séu skráð með fullnægjandi hætti. Þá er fyrirhugað að starfsemi lög- regluráðs verði lögfest og ákvæði um valdbeitingu og meðferð vald- beitingartækja og skotvopna verði sett í lögreglulög. – aá Bæta á eftirlit með lögreglu Efla á nefnd um lögreglueftirlit. Til skoðunar er að nefnd um eftirlit með lögreglu verði heimilað að komast að sjálfstæðri, efnislegri niður- stöðu í málum. 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.