Fréttablaðið - 09.09.2020, Qupperneq 32
Réttilega er horft til
landamæranna sem
þurfa að vera eins opin og
óhætt þykir, svo Ísland ein-
angrist ekki efna-
hagslega og menn-
ingarlega.
Þórdís Gylfadóttir,
ferðamálaráðherra
05.09.2020
MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is
Miðvikudagur 9. september 2020FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL |
Í mars og apríl á þessu ári voru aðgerðir stjórnvalda til að draga úr útbreiðslu COVID-
19 skiljanlegar. Um var að ræða
nýjan sjúkdóm sem lítið var
vitað um. Sjúkrahúsinnlögnum
fjölgaði hratt. Réttlætanleg sjón-
armið – sem sneru að afkasta-
getu heilbrigðiskerfisins – lágu
til grundvallar ákvörðunum
um samkomubönn og takmörk-
unum á atvinnustarfsemi.
Núna vitum við meira. Alls
hafa 2.150 smit verið staðfest á
Íslandi, en eflaust eru þau miklu
f leiri þar sem stór hluti þeirra
sem smitast af COVID-19 eru
einkennalausir. Tíu hafa látist.
Dánartíðnin er því í mesta lagi
0,46 prósent, en er þó sennilega
lægri þar sem líklegt er að fjöldi
einkennalausra hafi aldrei farið
í skimun, vegna þess að ekkert
amaði að þeim.
Þegar aðgerðir stjórnvalda
voru hertar á ný síðsumars lágu
aðrar ástæður til grundvallar en
afkastageta heilbrigðiskerfisins.
Þeir sem hafa lagst inn á sjúkra-
hús síðan þá eru örfáir. Fjöldi
tilfella var nú mælikvarðinn
sem horft var til. Þó var einsýnt
að tilfellum myndi fjölga þegar
skimum jókst.
Langtímaafleiðingar COVID-
19 eru eðli málsins samkvæmt
lítt þekktar, enda um nýja veiru
að ræða. Svo virðist sem lítill
hluti þeirra sem veikist glími við
eftirköst um langt skeið. Eins og
oft er tilfellið með hinar ýmsu
veirusýkingar. Þetta á enn þá
allt saman eftir að koma í ljós.
Samfélagslegar afleiðing-
ar stóraukins, langvarandi
atvinnuleysis eru hins vegar vel
þekktar og þarf ekki að fjölyrða
um. Fjöldi rannsókna sýnir að
langvarandi atvinnuleysi og
fátækt geti dregið mjög úr lífs-
líkum fólks. Sú efnahagslægð
sem Ísland stefnir nú inn í er
ekki vegna skorts á eftirspurn,
heldur vegna þess að atvinnu-
starfsemi eru enn þá settar
miklar skorður. Ísland er ekki
eitt á báti í þessum efnum, en
stjórnvöld hafa ekki gert neina
tilraun til að synda á móti
straumnum líkt og Svíar hafa
gert með eftirtektarverðum
árangri.
Í stað þess að fela okkur á bak
við sófann heima hjá okkur
undir dynjandi skilaboðum um
lágmarksmannhelgi, sama hvort
hún eru einn eða tveir metrar,
þá þarf einfaldlega að setja
traust í hendur einstaklinga
um að haga sér með ábyrgum
hætti. Sá sem mætir á fjöl-
mennan viðburð ætti þannig að
fresta heimsókninni til ömmu
um nokkra daga. Þeir sem eru
með undirliggjandi sjúkdóma
ættu að sama skapi að forðast
fjölmenni. Reynsla Nýja-Sjá-
lands sýnir að það er ómögulegt
að útrýma veirunni þó svo að
öllu sé skellt í lás. Á einhverjum
tímapunkti þarf bara að taka
þetta á kassann.
Opnum aftur
Þórður
Gunnarsson
SKOÐUN
Kolibri trönur
í miklu úrvali, gæða-
vara á góðu verðiKolibri penslar
Handgerðir þýskir penslar
í hæsta gæðaflokki
á afar hagstæðu verði
Ennþá meira úrval af
listavörum
WorkPlus
Strigar frá kr. 195
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Verkfæralagerinn
Listverslun.is
Íblöndunarefni fyrir akrýl og olíuliti.
Ný sending
af strigum
Akur fjárfestingar, sem stýrt er af Íslands-sjóðum, færði niður eign sína í rútu-fyrirtækinu Allrahanda/Gray Line
um 880 milljónir króna, í núll krónur í fyrra,
að því er fram kemur í ársreikningi.
Fjárfestingasjóðurinn, sem er einkum í
eigu lífeyrissjóða, keypti rútufyrirtækið
árið 2015. Það ár var 49 prósenta hlutur
bókfærður á 1,4 milljarða króna.
Allrahanda/Gray Line tapaði 404 millj-
ónum árið 2019 og 517 milljónum árið áður. Eigið fé
var 360 milljónir króna við lok síðasta árs.
Rútufyrirtækið fór í greiðsluskjól í sumar
vegna algers tekjufalls sem rekja má til
COVID-19. „Rekstrarhæfi félagsins til fram-
tíðar veltur á því hvort tekst að endurskipu-
leggja reksturinn,“ segir í ársreikningi þess.
Samkeppniseftirlitið samþykkti sam-
runa Allrahanda og Reykavík Sightseeing
í desember síðastliðnum. Fyrirtækin
reka bæði áætlunarakstur til og frá Kefla-
víkurflugvelli auk afþreyingarferða og hópferða. – hvj
Allrahanda afskrifað um 880 milljónir króna
Jóhannes Hauksson,
framkvæmdastjóri Akurs.