Framblaðið - 01.02.1958, Qupperneq 6
Fyrsta unglingalið Fram 1916. —
Fremsta röð jrá vinstri: Karl Magn-
tisson, læknir, Oddgeir Hjartarson,
Linneus Ostlund, Sveinn Gunnars-
son, sr. Sigurður Lárusson. Miðröð:
Þóróljur Karelsson, Tryggvi For-
berg, Bolli Thoroddsen. Ajtasta röð:
Geir Haukdal, Gústaf Sigurbjarna-
son, Osvaldur Knudsen, Eiríkur
Jónsson, Kveldúlfur Grönvold.
1915. Nú hafði K.R. látið gera verðlauna-
grip og boðið til Reykjavíkurmóts, svo að
allt féll í ljúfa löð. Valur tók þátt í þcssu
móti og öllum mótum næstu ár. Fram vann
úrslitaleikinn við K.It. í hvassviðri (5:4).
Leikurinn er okkur minnisstæðastur fyrir það,
að við lékum helming fyrra hálfleiks með 9
mönnum og liinn síðara með 10. Fram vann
líka Rcykjavíkurmótið.
1916. Fram vann íslandsmótið, en K. R.
Reykjavíkurmótið. Margt var sögulegt við
þessi mót, sem of langt yrði frá að segja.
1917. íslandsmót og Reykjavíkurmót unn-
ust, en félagið tók ekki þátt í haustmóti, er
þá var stofnað til.
1918. Fram vann íslandsmót. Þá keppti
Víkingur í fyrsta skipti í 1. aldursflokki. K.R.
vann Reykjavíkurmót og haustmót.
1919. K.R. vann Islandsmót, en Fram
Reykjavíkurmót og haustmót.
1920. Fjórða mótið, Víkingsmótið, bættist
við og var fyrsta mótið á sumrinu. Fram
vann 3 mót, en Víkingur sigraði á íslands-
móti. Valur keppti ekki í meistaraflokki
þetta ár né tvö hin næstu. Vestmannaeyingar
kepptu í haustmóti. Þá sigraði Fram með
16:0 í 3 leikjum (5:0, 5:0, 6:0).
1921. Fram sigraði í öllum 4 mótum. í
Reykjavíkurmóti K.R. með 10:0, sem var
mesti sigur félagsins í meistaraflokki þangað
til síðastliðið sumar. Verðlaunagrip haust-
mótsins vann félagið til eignar með því að
sigra 3 ár í röð. Féll það mót þá niður, og
urðu mótin 3 næstu ár.
1922. Öll 3 mótin unnin.
1923. Sigur í íslandsmóti.
192J/.. Ekkert mót unnið. Víkingur sigraði
í íslandsmóti í framlengdum kappleik við
Fram.
1925. Fram vann íslandsmót.
1926. Fram og K.R. urðu jöfn að stigum í
íslandsmótinu, en Iv.R. sigraði, þegar fé-
lögin kepptu aftur.
Nú verða þáttaskil í sögu félagsins, og
verða þessar endurminningar ekki raktar
lengra.
Á árunum 1911—26 varð Fram hlutskarp-
ast í 8 Islandsmótum, auk þess sem félagið
bar sigur af K.R. þau 2 ár, sem ekkert félag
bauð sig fram til að keppa við það á Islands-
móti. Vann Reykjavíkurmót 6 sinnum, Vík-
ingsmót þrisvar, haustmót þrisvar. Sigraði í
íþróttamótum U.M.F.Í. (1911, 1914), enn-
fremur í svonefndum konungskappleik 1921
við úrvalslið úr hinum félögunum.
4 FRAMBLAÐIÐ