Framblaðið - 01.02.1958, Blaðsíða 8
Það má segja, að Fram hafi verið 20 ár
að rétta við til fulls. Næstu tvö árin fyrir
fertugsafmæli þess voru sigurár í meistara-
flokki eins og þegar bezt lét á fyrri árum,
auk þess sem félagið var þá öflugt í öllum
öðrum flokkum. Það er gott til þess að vita,
að nú á fimmtugsafmælinu er Fram enn í
fremstu röð og allar horfur á, að svo megi
lengi verða.
P. S.
1927 - 1939
Hinu glæsilega sigurtímabili Fram í 1. fl.
lauk með sigri félagsins á íslandsmótinu 1925
og þó frekar úrslitaleik á sama móti 1926.
A því móti sigraði flokkurinn alla mótherja,
nema K.R., sem gerði jafntefli á síðustu leik-
mínútu. Á mótinu beið flokkurinn mikla
hnekki, við að flestir leikmenn hans meidd-
ust meira og minna og þegar til úrslita var
keppt við K.R. var yfir helmingur liðs-
manna, er byrjað höfðu mótið, meðal áhorf-
enda, en nokkrir léku með meiddir. Liðið
sem mætti K.R. var því ákaflega veikt og
veittist K.R. auðvelt að sigra það. En þessi
meiðsli orsökuðu annað og meira, því meiri
hluti liðsins hætti keppni eftir þetta, og þó
að félagið tæki þátt í íslandsmótinu 1927,
voru það aðeins síðustu fjörbrotin. Þar á eftir
má telja að gamla liðið hafi fullkomlega
hætt keppni.
Nú, eftir 30 ár, er hollt að skyggnast um
öxl og athuga „status“ félagsins á þessum
tímamótum.
1. flokkslið félagsins átti glæsilegan feril að
baki og hafði verið nær ósigrandi í áratug.
í þessu liði mynduðu sömu leikmenn kjarn-
ann flest þessi ár og tiltölulega fáir nýliðar
fengu tækifæri til að Ieika með liðinu. Af
þessum orsökum missti félagið stóran hóp af
efnilegum leikmönnum til hinna félaganna,
sem tóku þeim tveim höndum. Margir þeirra
mynduðu síðan kjarnann í liðum andstæðing-
anna' og hjálpuðu til að sigra sitt gamla
félag, á þrengingartímum þess. Eldri félag-
arnir sinntu yngri flokkunum ekki sem skyldi,
og er hér var komið sögu hafði 2. flokkur
ekkert mót unnið, en 3. flokkur eitt mót.
Getuleysi yngri flokkanna stuðlaði einnig að
flótta ungra efnilegra pilta í önnur félög.
Meistarafl. 1929. Aftari röð frá
vinstri: Svavar Olsen, Jón Sig-
urðsson, Jón Magnússon, Bryn-
jólfur Jóhannesson, Runólfur
Eiríksson og Sigurður Ilalldors-
son. Fremri röð frá vinstri: Sig-
urgeir Kristjánsson, Jón Ouð-
jónsson, Ounnar K. Þorvarðs-
son, Harry Freieriksen, Ölafur
K. Þorvarðsson.
6 FRAMBLAÐIÐ