Framblaðið - 01.02.1958, Síða 20
V.-Berlín—Fram, 1956.
ins notið hinnar beztu fyrirgreiðslu og skal
öllum þessum aðilum þakkað gott samstarf.
Flokkar frá Fram hafa leikið gegn allmörg-
um erlendum liðum t. d. lék meistaraflokkur
gegn Dvnamo Kiev 1957 og tapaði með 3:1
og þótti það góð frammistaða. II. flokkur lék
1955 gegn Hamborgar Fussballverband og
tapaði 3:1 og 1956 gegn Brummendalen frá
Noregi og vann 1:0. III. flokkur A keppti
við Bagsværd 1955 og vann 2:1 og III. flokkur
B gerði jafntefli við B-lið Bagsværd.
Sumarið 1956 liófust á vegum K.S.l. próf
í knattspvrnuþrautum og verður að teljast,
að þar hafi verið stigið verulegt spor í rétta
átt knattspyrnunni til framfara og heilla.
Knattspyrnunefnd Fram og unglingaþjálf-
arar, Reynir Karlsson og Guðmundur Jóns-
son, hafa lagt lcapp á, að sem flestir drengir
ljúki prófi í þrautum þessum, enda hafa fleiri
lokið þessum þrautum frá Fram en nokkru
öðru félagi. Til bronsmerkis hafa unnið 60,
til silfurmerkis 11 og til gullmerkis 1, Ásgeir
Sigurðsson úr IV. flokki. Annar Framari, Hall-
grímur Sveinsson, varð fyrstur til að Ijúka
silfurþrautum og hlaut að launum bikar frá
unglinganefnd K.S.Í. Flokkar félagsins hafa
tekið þátt í knattþrautum unglingadags K.
S.í. og frammistaða þeirra verið góð, t. d.
voru 7 efstu menn í IV. flokki 1957 frá Fram.
II. fl. B. íslands- og Reykja-
víkurmeistarar í handknattl. ‘57.
Fremri röð frá v.: Baldur Schev-
ing, Karl Karlss., Jón Þorlákss.
Aftari röð: Axel Sigurðsson,
þjálfari, Riinar Jónsson, Gunnar
Agústsson, Iíaraldur Daníelsson,
Oli Jósefsson.
18 FRAMBLAÐIÐ