Framblaðið - 01.02.1958, Blaðsíða 33
veltur bannaðar hér í Reykjavík. Urðum við
þá að halda þær í næsta nágrenni bæjarins,
s. s. að Þormóðsstöðum og Álafossi. En þetta
lék allt í lyndi, þar eð félagslyndið og sam-
heldnin var svo góð. Áhugi félagsmanna á
þessu tímabili var alveg gífurlegur.
Þú ert formaður, þegar Fram, fyrst íþrótta-
félaga, hefur byggingu sína á félagsheimili
og knattspyrnuvelli. Hvað var þess valdandi,
að félagið réðist í þessar stórframkvæmdir?
Ollum er ljós sú nauðsyn, sem grózkufullu
íþróttafélagi er á tryggum samastað fyrir
starfsemi sína. Fram hafði tekizt að safna
nokkrum sjóði, vegna sérstakra aðstæðna í
skemmtanalífi höfuðstaðarins. Þegar svo áhugi
Sigurbergs Elíssonar og Lúðvíks Þorgeirssonar
kom þessu fé til viðbótar, reyndist nokkuð
auðvelt að hrinda þessu mikilvæga máli í
framkvæmd.
Hvað vildir þú segja við félagsmenn að
Iokum?
Ég óska félaginu allra heilla á þessum
tímamótum þess, og vænti að það verði sigur-
sælt í framtíðinni. En þó umfram allt, að
innan þess megi jafnan ríkja heilbrigt félags-
líf og hollur félagsandi. J. Þ.
III. jlokkur 1930. Fremsta röð frá vinstri: Guðjón Theo-
dórsson, Indriði Halldórsson, Þórður Jónsson. Miðröð:
Páll Sigurðsson, Ivar Sigurbjörnsson, Bragi Magnússon.
Ajtasta röð: Einar Sigurbjömsson, Guðmundur Guð-
mundsson, llögni Agústsson, Guðmundur Gíslason, Ski'di
Bjömsson.
Grasvellir
eru höfuð-
nauðsyn...
Þegar litið er yfir sögu Fram tímabilið
1940—1952, er engum vafa undirorpið, að
Sæmuudur Gíslason er sá knattspyrnumaður,
sem drýgstan þátt á í velgengni félagsins á
leikvelli þessi ár.
Blaðið fór því þess á leit við hann, að hann
svaraði nokkrum spurningum varðandi knatt-
spyrnuferil sinn og knattspyrnuna í Fram um-
rætt tímabil.
Hvenær og hvernig hófust afskipti þín af
Fram?
Ég er af Njálsgötunni og því alinn upp
undir handleiðslu Guðmundar Halldórssonar
og Lúðvíks Þorgeirssonar. Við strákarnir á
Njálsgötunni höfðum með okkur félag, sem
nefndist Vonin. Leikmenn yngri flokka Fram
voru margir úr þessu strákafélagi. Skipuðum
við Njálsgötustrákar og strákar úr Pólunum
oftast meginuppistöðu Fram á þessum tíma.
Ég byrjaði keppni 1934 í 3. flokki og var þá
markvörður. Aldrei líkaði mér sú staða, enda
kom það ekki af góðu, að ég byrjaði mark-
vörzlu. Þetta ár þjáðist ég af vöðvabólgu og
gat ekki beitt öðrum fæti. Þótti ég því sjálf-
sagður í mark og losnaði ekki þaðan, fyrr en
eftir 3 ár, að ég gekk upp úr 3. flokki.
Hvenær byrjar þú að leika með meistara-
flokki?
Ég lék fyrsta leik minn í meistaraflokki
árið 1937, þá sextán ára. Þetta ár lék ég tvo
FRAMBLAÐIÐ 31