Framblaðið - 01.02.1958, Page 47
glæsilega fyrir okkur, því mótherjarnir byrj-
uðu með því að setja tvö mörk. En þannig
stóð leikurinn í hálfleik. Ekki vantaði að leik-
menn okkar væru hvattir til hins ýtrasta í
hléinu, en þó ítrekað við þá að gæta fyllstu
prúðmennsku gagnvart mótherja og hreyfa í
engan stað mót.mælum við dómara. Baráttu-
vilji liðsins var hinsvegar sá að eitthvað hlaut
að ske. Eftir svarinu þurfti ekki lengi að
bíða, því að strax í upphafi seinni hálfleiks
hófu Framarar sókn er hélzt út allan hálfleik-
inn. Árangurinn varð líka eftir því. Þeir skor-
uðu fjögur mörk gegn engu þennan hálfleik.
Leiknum lauk því með sigri Fram, fjögur
mörk gegn tveim. Leikurinn var frá upphafi
mjög spennandi og efalaust sá erfiðasti, sem
háður var í ferðinni. Bæði liðin voru með
óslökkvandi sigurvilja og var aldrci látið eftir
fyrr enn fullreynt var hvort betur hefði. Var
þetta í eina skiptið í ferðinni, sem við gátum
kvartað yfir framkomu dómara í leik, enda
var framkoma hans afsökuð við okkur, af
ábyrgum aðilum.
Þegar yfir heildina er litið, verður að segja
það, að skilningur dómara á knattspyrnulög-
unum, sérstaklega hvað viðvíkur tökklun og
rangstöðu, er nokkuð á annan veg en hér
heima. Fyrra atriðið hafa þeir rýmra, en það
síðara nokkuð strangara.
Heildarútkoma hinna fimm leikja, er háðir
voru í ferðinni, verður því, að Fram gerði 26
mörk gegn níu. Tapaði engum leik.
Föstudaginn 10. ágúst var farið árla dags
til Hafnar. Þar var skoðaður Dýragarðurinn
og Tuborgs-verksmiðjurnar heimsóttar. Síð-
an var dagurinn notaður til verzlunarerinda.
LFm kvöldið var okkur haldið kveðjusam-
sæti. Kom hver ineð sinn „heimilisföður“ og
góðgerðir. Þar var og skipzt á gjöfum.
Laugardaginn 11. ágúst var haldið heim-
leiðis með m.s. „Gullfossi“. Heimferðin var í
alla staði hin ánægjulegasta, m. a. var okkur
haldið hóf um borð og þökkuð hin ágæta
frammistaða leikmanna okkar. J. Þ.
Lálnir félagar
1 framhalcli af annál þeim um starf-
semi félags vors fram til 1926, sem birt-
ist í þessu blaði, vil ég í fám orðum og
samkvœmt beiðni ritstjórnarinnar minn-
ast nolckurra þeirra félagsmanna, sem á
því tímabili „settu svip á“ félagið og
knattspyrnuíþróttina hér í bœ, en eru
nú látnir.
Arreboe Clausen
2. nóv. 1892 — 8. des. 1956
Arreboe var elztur stofnenda félagsins, og
cr óhætt að telja hann frumkvöðul þess. Hann
var ritari í fyrstu stjórn, en árið eftir formað-
ur, og stýrði hann félaginu í nokkur ár með
miklum dugnaði og árvekni. Hann hafði verið
í K. R. áður en Fram var stofnað, og kunni
skil á frumatriðum íþróttarinnar. Arreboe
var vinstri bakvörður og öflugasti maður
félagsins í vörn meðan hann keppti, en það
var síðast 1918. Þó að Arreboe starfaði ekki
FIUMBLAÐIÐ 45