Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2020, Blaðsíða 24
24 FÓKUS 25. SEPTEMBER 2020 DV
Uppáhalds
breytingar
Arnars
Gauta
Lífsstílsfrömuðurinn Arnar Gauti
fer yfir tvær uppáhalds fram-
kvæmdirnar sínar. Hann fékk inn-
blástur frá bókasafni við hönnun
á veitingastað og segir bæjar-
stjóra Reykjanesbæjar hrifinn.
H önnuðurinn og tísku-sérfræðingurinn Arn-ar Gauti Sverrisson
er mættur aftur á skjáinn í
glænýjum lífsstílsþætti sem
ber heitið Sir Arnar Gauti.
Fyrsti þátturinn var sýndur
í gærkvöldi á sjónvarpsstöð-
inni Hringbraut. Þættirnir
verða sýndir á fimmtudögum
klukkan 21:30. Í þáttunum
mun hann heimsækja falleg
og vel hönnuð íslensk heimili
og sýnir „fyrir og eftir“ breyt-
ingar.
Við heyrðum í Arnari
Gauta sem sagði okkur frá
uppáhalds verkefnum sínum.
Hann sagði okkur frá þremur
ólíkum framkvæmdum; fyrsti
veitingastaður sinnar tegund-
ar í Keflavík, verslun í hjarta
Kringlunnar og stórbreyting á
American Style í fyrsta sinn í
mörg ár. n
KROLL KRINGLUNNI
Arnar Gauti hefur þrifist innan
tískuheimsins síðastliðin 30 ár og
fylgt Kringlunni frá opnun. Hann
segir að staðsetning verslunar-
innar hafi ávallt heillað hann, þú
sérð hana um leið og þú kemur
niður rúllustigann hjá Kaffitári á
móti Hagkaupum.
„Ragga vinkona mín keypti þessa
búð sem var þarna, Kello, og hún
átti Kroll á Laugaveginum. Hún
fékk mig til að breyta Kello yfir
í Kroll. Mér fannst æðislegt að
vinna þetta verkefni því þetta
er húsnæði sem ég var búinn að
horfa á í mörg ár, verðmætasta
staðsetningin í Kringlunni að mínu
mati,“ segir Arnar Gauti.
„Mér fannst rosa gaman að fá
að taka verslunina í gegn og við
gerðum þetta á fimm dögum. Eins
og sést á myndunum þá hentum
við allri búðinni. Hún fór bara út á
plan og svo kom bara sendiferða-
bíll.“
KROLL FYRIR
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is