Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.10.2020, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 09.10.2020, Qupperneq 4
FÉLAGSMÁL Silja Dögg Gunnarsdótt- ir, þingmaður Framsóknarflokksins, fer fyrir hópi þingmanna sem vilja að opinberar stofnanir hafi rýmri heimildir til að miðla upplýsingum um heimilisofbeldi sín á milli. Hefur hún lagt fram þingsályktunartillögu í annað skiptið um málið en tilkynn- ingum um heimilisof beldi hefur fjölgað mikið frá því að málið kom fyrst inn í þingið. Þegar hefur verið gert mikið til að tryggja samstarf lögreglunnar við önnur stjórnvöld. En samtalið þurfi að geta átt sér stað í hina áttina því að oft sitji starfsfólk til dæmis heilsu- gæslustöðva og skóla með upplýs- ingar um ofbeldi sem það geti ekki komið í réttan farveg. Silja horfir ekki síst til lands- byggðarinnar hvað þetta varðar. „Það er meiri nálægð í minni sam- félögum. Þeir aðilar sem koma að heimilisofbeldismálum eru því oft tengdir þolandanum eða gerand- anum á einn eða annan hátt,“ segir hún. „Það verður því oft f lóknara fyrir þolandann að stíga fram þegar persónuleg nálægð fólks er mjög mikil.“ Í tillögunni er dómsmálaráðherra falið að skipa starfshóp til að móta verklag í heimilisof beldismálum milli kerfa, rýmka lagaheimildir og koma á fót samstarfsvettvangi stjórnvalda. Gert er ráð fyrir að stofnanir geti gripið inn í að eigin frumkvæði. Silja segir að aldrei verði þó gengið gegn vilja þolandans eða gripið fram fyrir hendurnar á honum. „Þetta er hugsað til þess að fjarlægja þoland- ann frá þeirri ábyrgð sem hvílir á honum í dag um að bera málið innan kerfisins. „Þetta yrði ekki þannig að upplýsingar flæði milli stofnana án þess að þolandinn viti af því eða vilji það ekki.“ Sjö aðrir þingmenn Framsóknar- flokks, Samfylkingar, Pírata, Sjálf- stæðisflokks, Viðreisnar og Flokks fólksins eru meðflutningsmenn. Silja á því von á því að samstaða verði um málið og það gangi í gegn á þessum þingvetri. Málið sé komið snemma fram, þær athugasemdir sem skilað hafi verið séu jákvæðar og aukin umræða er um heimilisofbeldismál í kjölfar COVID-19 faraldursins. Hún segir einnig að innan kerfisins, frá lögreglu og fleirum, hafi verið kallað eftir þessum breytingum. Meðal þeirra sem brugðust við voru Barna- verndarstofa, Kvennaathvarfið og Persónuvernd. „Ég veit ekki hvort heimilisofbeldi sé vaxandi en það eru að minnsta kosti fleiri tilkynningar sem berast. Kannski er umræðan orðin opnari,“ segir Silja. „Við erum einnig farin að átta okkur á því að gerendur þurfa líka aðstoð. Þetta er ekki aðeins for- dæming á annan veginn heldur þarf að bregðast við og brjóta upp þetta mynstur. Til þess þurfum við að hafa fleiri tæki og tól.“ kristinnhaukur@frettabladid.is Fæðingarorlof ætti að skilgreina sem rétt barns til umönnunar á fyrstu mán- uðum lífsins. Ungt fólk tjáir sig mikið um kvíða á samfélagsmiðl- um og sumir segjast vera nær óvinnufærir af kvíða. Heimila þurfi aukna miðlun upplýsinga um heimilisofbeldi Átta þingmenn lögðu fram þingsályktunartillögu um að auðvelda samtal innan kerfisins um heimilisof- beldi sem upp kemur. Skólar, heilsugæslustöðvar eða aðrar stofnanir búi yfir upplýsingum sem ekki sé hægt að koma í réttan farveg. Sérstaklega þurfi að horfa til landsbyggðarinnar þar sem nálægð sé mikil. Tilkynningum um heimilisofbeldi hefur fjölgað í COVID-19 faraldrinum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Það verður því oft flóknara fyrir þolandann að stíga fram þegar persónuleg nálægð fólks er mjög mikil. Silja Dögg Gunn- arsdóttir þing- maður Fram- sóknarflokkins STJÓRNMÁL Embætti landlæknis telur mikilvægt að lög um fæðingar- og foreldraorlof endurspegli skiln- ing á ólíkum aðstæðum fjölskyldna og bjóði meiri sveigjanleika í til- högun en gert er ráð fyrir í núver- andi frumvarpi. Þetta kemur fram í umsögn embættisins um breytingar á lögum um fæðingarorlof. 253 umsagnir bárust í samráðs- gátt um breytingar á lögunum. Lögum um fæðingarorlof var breytt í fyrra, og fær nú hvort foreldri fjóra mánuði í orlof auk tveggja mánaða sameiginlega. Verði lögunum ekki breytt verða sameiginlegu mánuð- irnir fjórir, alls 12 mánuðir. Með þessum lögum fær hvort foreldri sex mánuði, en heimilt verður að færa einn mánuð á milli foreldra. Í umsögn landlæknis segir að fæðingarorlof ætti að skilgreina sem „rétt barns til umönnunar á fyrstu mánuðum lífsins fremur en einungis sem rétt fullorðinna á vinnumarkaði“. Um sé að ræða geðheilbrigðismál sem „varðar rétt barna til heilbrigðs upphafs í lífinu“. Umsagnir bárust einnig frá ein- staklingum sem virðast f lestar samhljóma um að foreldrar ættu að geta skipt f leiri en einum mánuði á milli sín. Árdís Ethel Hrafnsdóttir segir í umsögn að þessar hömlur geti valdið streitu. „Það er frábært að verið sé að lengja fæðingarorlof. Hins vegar er það streituvaldandi fyrir foreldra að búið sé að setja þeim þessar hömlur m.t.t. fjármála heimila, brjóstagjafar og tengsla- myndunar.“ Harpa Björnsdóttir læknir segir í umsögn: „Það að hafa aðeins einn mánuð framseljanlegan hjá hvoru foreldri gerir það að verkum að margir geta ekki fullnýtt orlofið.“ – bdj Fjöldi umsagna um frumvarp EITTHVAÐ ALVEG SÉRSTAKT Skáldsaga um ást og geðveiki og huggun eftir Elísabetu Jökulsdóttur LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is | Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–16 COVID-19 Aðsókn í sálfræði- þjónustu fyrir fullorðna hjá heilsu- gæslum á höfuðborgarsvæðinu fer sívaxandi. Una Hildardóttir, for- maður Landssambands ungmenna- félaga, segir margt benda til þess að kórónaveirufaraldurinn sé kvíða- valdur, þá sérstaklega fyrir ungt heimavinnandi fólk. Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis- ins, tekur undir með Unu og bætir við að aðstæður geti verið breyti- legar og fólk viðkvæmt á mismun- andi sviðum vegna faraldursins, til dæmis vegna efnahagslegra áhyggna, atvinnumissis eða heilsu. Ungt fólk tjáir sig mikið um kvíða á samfélagsmiðlum vegna þriðju bylgjunnar og hafa sum lýst því yfir að þau séu nánast óvinnu- fær vegna kvíða. Fjölmargir starfa heima vegna nýrra samkomutak- markana en Óskar segir faraldurinn geta verið meðvirkandi þátt í að fólk verði óvinnufært vegna kvíða. „Breytt verklag og vinnufyrirkomu- lag hefur áhrif á líðan þessa fólks sem á við erfiðleika að stríða,“ segir hann. Vegna takmarkana er búið að fresta allri hópameðferð í hug- rænni atferlismeðferð, eða HAM. „Það er auðvitað ekki hægt annað við núverandi aðstæður nema með gerbreyttu sniði,“ útskýrir Óskar. Sálfræðingar fyrir fullorðna eru á öllum stöðvum Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu nema í Mos- fellsbæ. Aðspurður segir Óskar að mikilvægt sé að allir borgarar geti nálgast nauðsynlega þjónustu. „Það er mjög æskilegt að hægt sé að nálgast sálfræðiþjónustu á heilsugæslu í sínu hverfi. Nú eru sálfræðingar fullorðinna á öllum stöðvum nema í Mosfellsbæ en hann hefur verið ráðinn frá 1. nóv- ember og getur hugsanlega byrjað fyrr.“ – ilk Margt bendi til að kórónaveirufaraldurinn sé mikill kvíðavaldur Una Hildardóttir 9 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.