Fréttablaðið - 09.10.2020, Page 12
Í Fréttablaðinu hinn 22. septem-ber sl. birtist leiðari undir heit-inu „Til fortíðar“ sem fjallaði
um bandarísk stjórnmál og þá
stöðu sem upp er komin eftir and-
lát hæstaréttardómarans Ruth B.
Ginsburg. Í Bandaríkjunum er m.a.
tekist á um hvort Donald Trump
eigi að fá að skipa nýjan dómara í
stað Ginsburg eða hvort bíða ætti
með tilnefningu þar til nýkjörinn
forseti tekur við í janúar á næsta ári.
Í leiðaranum birtist útbreiddur
misskilningur. Misskilningurinn
gengur út á að frjálslyndir dóm-
arar, þ. á m. Ginsburg heitin, telji
að konur eigi stjórnarskrárvarinn
rétt á því að fara í þungunarrof
en íhaldssamir dómarar telji að
þungunarrofið sé í andstöðu við
stjórnarskrána. Þeir síðarnefndu
vilji því afnema „lögin sem kennd
eru við Roe v. Wade”, eins og segir
í leiðaranum.
Þetta er ekki rétt. Íhaldssömu
dómararnir, sem repúblikanar
skipa jafnan, telja ekki að þung-
unarrof brjóti í bága við stjórnar-
skrána og vilja ekki afnema löggjöf
sem heimilar slíkar aðgerðir. Þeir
telja einfaldlega að stjórnarskráin
sé þögul um þungunarrof og af þeim
sökum sé hverju og einu ríki Banda-
ríkjanna frjálst að setja sér lög sem
hvort sem er heimili eða takmarki
aðgang að þungunarrofsaðgerðum.
Það eru því ekki íhaldssömu dómar-
arnir sem vilja afnema eða ógilda
lög. Það eru frjálslyndu dómararnir
sem telja rétt að ógilda lög sem ein-
stök ríki Bandaríkjanna setja til
höfuðs þungunarrofsaðgerðum,
líkt og gert var í dómi hæstaréttar
Bandaríkjanna í máli Roe v. Wade. Í
huga íhaldssömu dómaranna snýst
málið sem sagt um valdheimildir
dómstólsins sem æðsta dómstóls
sambandsríkis gagnvart lýðræðis-
lega kjörnum löggjafarþingum
í Bandaríkjunum. Málið snýst
strangt tiltekið ekki um persónu-
lega afstöðu dómaranna sjálfra til
þungunarrofs.
Það er vissulega rétt að tilnefn-
ing íhaldssams dómara í hæstarétt
Bandaríkjanna eykur líkurnar á
því að í einhverjum ríkjum Banda-
ríkjanna verði vegið að rétti kvenna
til þungunarrofs. Fari svo verður sá
réttur skertur af löggjafarþingum
viðkomandi ríkja Bandaríkjanna,
ekki hæstaréttardómurum sem í
reynd geta ógilt lög í nafni stjórnar-
skrárinnar. Þetta þarf fólk að skilja
til þess að átta sig á átakalínunum í
deilum um skipun dómara í hæsta-
rétt Bandaríkjanna og afleiðingum
slíkrar skipunar. Rétt er að taka
fram að í þessari ábendingu felst
engin afstaða til þeirra átaka.
Það er vissulega rétt að til-
nefning íhaldssams dómara
í hæstarétt Bandaríkjanna
eykur líkurnar á því að í
einhverjum ríkjum Banda-
ríkjanna verði vegið að rétti
kvenna til þungunarrofs.
Ég hef djúpa sannfæringu
fyrir því að með markvissu
samstarfi fagfólks úr ferða-
þjónustu og skólastarfi sé
hægt að skapa menntandi
upplifun og reynslu sem
eflir börn og ungt fólk.
Ábending um átakalínur
í Bandaríkjunum
Hafsteinn Þór
Hauksson
dósent við laga-
deild Háskóla
Íslands
Í kreppu gefast oft tækifæri til að nálgast veruleikann með nýjum hætti. Hvernig hljómar það að
styðja ferðaþjónustuna og um leið
efla menntun barna og ungmenna?
Hugmyndin er þessi: Aðilar sem
standa að frístunda- og skólastarfi
fái í vetur sérstaka ferðaávísun til
þess að geta gefið börnum á Íslandi
tækifæri á skemmtilegri og mennt-
andi reynslu innanlands. Kerfið til
að halda utan um þetta er þegar til
staðar og hefur reynst ljómandi vel
í sumar.
Fjölmargar rannsóknir styðja það
að útimenntun ef li tengsl og skiln-
ing okkar á náttúru og samfélagi,
hún ef lir félagsleg tengsl, sjálfs-
traust og er kjörin leið til að auka
skilning á ólíkum námsgreinum og
stuðla að margþættum þroska.
Innan ferðaþjónustunnar er mikil
þekking og reynsla sem er kjörið
að virkja og nýta til þess að gefa
börnum kost á læra og þroskast. Ég
sé fyrir mér fjölbreytt ferðalög um
náttúru Íslands, heimsóknir á söfn
og dvöl í þjóðgörðum. Það má læra
á skíði, sigla, fara í hvalaskoðun,
upplifa jöklagöngu, klettaklifur,
kynnast skógarnytjum af eigin
raun eða fara sögugöngur þar sem
f léttað er saman frásögn og leik.
Tækifærin eru nær óþrjótandi.
Ég hef djúpa sannfæringu fyrir því
að með markvissu samstarfi fag-
fólks úr ferðaþjónustu og skóla-
starfi sé hægt að skapa menntandi
upplifun og reynslu sem ef lir börn
og ungt fólk. Fyrir utan það hvað
slík reynsla er hrikalega skemmti-
leg!
Að margra mati er kostnaður ein
meginhindrun ferðalaga í frí-
stunda- og skólastarf i. Önnur
hindrun er sú að oft er ekki til
staðar þekking, hæfni og búnaður
í skólum og frístundastarfi til að
bjóða upp á spennandi menntandi
tækifæri með náttúruskoðun, úti-
námi og útivist.
Í þessari hugmynd felst að við still-
um saman strengi ólíkra fagstétta
með samstarfi ferðaþjónustunnar
og frístunda- og skólastarfs. Ferða-
ávísun til barna og ungmenna er
menntandi fjárfesting í framtíð-
inni – ávísun á betri framtíð … og
skemmtilegan vetur.
Ávísun á betri framtíð
Jakob Frímann
Þorsteinsson
háskólakennari
og doktorsnemi
Í eina tíð, þegar stéttaskipting í Evrópu þótti afgerandi, bauðst ríkum mönnum að kaupa sér
syndakvittun. Siðspilltur páfadóm-
ur bauð mönnum að kaupa sig frá
refsivendi guðs og manna, með því
að leggja fé í hirslur kirkjunnar. Hin
fagra ímynd trúarinnar var saurguð
af græðgi. Græðgin sú arna bjó í
breyskleika mannanna sem nutu
friðhelgi og afskiptaleysis yfirvalda.
Svo fór, að ágætur Þjóðverji mót-
mælti spillingunni. Hann hengdi
merkilegan texta á kirkjuhurð.
Þetta gerðist fyrir rúmum 500 árum.
Bréfsnifsi þetta varð síðan að grunni
nýrrar deildar innar kristninnar.
Mótmælendum óx svo fiskur um
hrygg. Græðgin í reykmettuðum
bakherbergjum Vatíkansins þótti
skyndilega svo yfirgengileg og þótti
lýsa svo gengdarlausri heimsku,
að eðlilegast þótti að láta af áður-
nefndri innheimtu. Þeir ríku gátu
ekki lengur keyptu sér leið framhjá
gapastokki, höggstokki og öðrum
stokkum.
Mótmælin skiluðu tilætluðum
árangri.
Aflandsbréf koma til sögunnar
Nú á dögum eru Íslendingar búnir
að finna upp nýja trú. Nú er það
trúin á kvótakerfið sem þykir við
hæfi. Menn eignast mikið fé, kaupa
sér fjölmiðla og kaupa sér leið fram-
hjá gapastokkum gagnrýninnar
hugsunar. Þeir kaupa sér aflandsbréf
sem gefur þeim leið framhjá högg-
stokki skattinnheimtunnar. Þeir
kaupa sér vini og geta í gegnum þá
keypt sér skjól. Stéttaskiptingin
blasir við. Í efstu stéttinni er fólk
sem kaupir þingmenn. Á Alþingi
sitja þessir þingmenn og eiga að
gæta hagsmuna þjóðarinnar. En
flestir eru þeir á mála hjá þeim sem
eiga peningana sem koma inn fyrir
allan fiskinn sem peningamennirnir
láta veiða.
Trúin á kvótakerfið eru þannig sett
fram, að búinn er til grunnur. En á
þeim grunni er síðan öll blekkingin
byggð. Grunnurinn er sá, að til sé
fólk sem kann betur en annað fólk
að stjórna fiskveiðum. Þessi elíta
kann reyndar að stunda rányrkju og
fær fyrir vikið allan þann fiskveiði-
kvóta sem hægt er að fá. Í grunni
þessum kemur einnig fram að æski-
legast sé að menn greiði sem minnst
til samfélagsins. Í stað þess að leyfa
þjóðinni; hinum fátæku, hinum
fötluðu, hinum öldnu, barnafólk-
inu, námsmönnunum og bara allri
alþýðu manna, að njóta arðsins af
auðlindinni, þá fara kvótaþegarnir
þá leið að koma undan sem mestu
af því fjármagni sem þeim er ætlað
að ávaxta. Þeir koma peningunum
í skjól.
Rétt einsog fyrir 500 árum síðan,
kaupa menn sér lausn frá syndum.
En í dag fer allt fram með þeim hætti
að menn stofna svokölluð aflandsfé-
lög. Þessi félög ráða yfir peningum
sem annars kæmu til Íslands. Svikin
eru hagur fyrir örfáa en tap fyrir
þjóðarbúið.
Nákvæmlega einsog fyrir 500 árum
síðan eru það hinir ríku sem ráða
svindlinu. Nú eru það aflandsbréf
sem koma í stað aflátsbréfa. Í dag
eru það menn innan stjórnsýslunn-
ar sem taka virkan og beinan þátt í
aflandsbréfabraski. Á Íslandi taka
útvaldir þingmenn og ráðherrar
beinan þátt í hagsmunagæslunni.
Við getum mótmælt
Núna, einsog fyrir 500 árum, verð-
um við að gerast mótmælendur.
Við verðum að mótmæla yfirgangi
stjórnvalda sem vernda spillinguna.
Núna er það undirskriftasöfnun
Stjórnarskrárfélagsins sem er leiðin
sem við getum farið. Skrifum undir!
Núna þarf nefnilega að hengja nýja
stjórnarskrá upp með þeim hætti að
hún geti ekki farið framhjá nokkr-
um manni.
Við getum komið í veg fyrir stóran
hluta spillingarinnar ef við fáum 50.
gr. nýrrar stjórnarskrár samþykkta.
En þar er þetta að finna: „Alþingis-
manni er óheimilt að taka þátt í
meðferð þingmáls sem varðar sér-
staka og verulega hagsmuni hans
eða honum nákominna. Um hæfi
þingmanna skal mælt fyrir í lögum.
Vanhæfi þingmanns hefur ekki
áhrif á gildi settra laga.
Í lögum skal kveðið á um skyldu
alþingismanna til að veita upp-
lýsingar um fjárhagslega hagsmuni
sína.“
Nýja stjórnarskráin leggur einnig
grunn að því að uppræta svindlið
með fiskinn í sjónum, veðsetningu
auðlindarinnar, fjármagnsstreymi
á fárra hendur í gegnum kvóta-
kerfi og aflandsbréfakaup manna
sem vilja helst hafa allan kvótann
innan fámennrar klíku. Þetta gerir
nýja stjórnarskráin í 34. gr. með
skýrum hætti. En þar segir: „Auð-
lindir í náttúru Íslands, sem ekki
eru í einkaeigu, eru sameiginleg og
ævarandi eign þjóðarinnar. Eng-
inn getur fengið auðlindirnar, eða
réttindi tengd þeim, til eignar eða
varanlegra afnota og aldrei má selja
þær eða veðsetja. (...) Stjórnvöld geta
á grundvelli laga veitt leyfi til afnota
eða hagnýtingar auðlinda eða ann-
arra takmarkaðra almannagæða,
gegn fullu gjaldi og til tiltekins hóf-
legs tíma í senn. Slík leyfi skal veita
á jafnræðisgrundvelli og þau leiða
aldrei til eignarréttar eða óafturkall-
anlegs forræðis yfir auðlindunum.“
Nýja stjórnarskráin hefur ekki verið
samþykkt af stjórnvöldum. Ástæðan
er einfaldlega sú að stjórnvöld taka
virkan þátt í spillingu. Í skjóli stjórn-
valda neita einstaklingar að svara
til saka. Í skjóli stjórnvalda stunda
menn brottkast og rányrkju. Í skjóli
stjórnvalda njóta menn friðhelgi
og afskiptaleysis þegar þeir f lytja
peninga á milli landa.
Ég leyfi mér að negla svohljóðandi
tilkynningu á útihurð Alþingis:
„Hér Alþingi eitt setur landsmönnum
lög,
með lögum hjá dómstólum eyðast
skal vafinn
og stjórnvaldið framkvæmdum
finna skal drög
en fólkið – já, þjóðin er stjórnar-
skrárgjafinn.“
Stjórnarskrá
og aflandsbréf
Kristján
Hreinsson
skáld
Fylgiseðlar eru nytsamlegir og upplýsa meðal annars um mögulegar aukaverkanir
lyfja. Samkvæmt ESB reglum skulu
lyfjapakkningar innihalda fylgi-
seðil á tungumáli þess lands þar
sem lyfið er selt. Fyrirkomulagið
felur í sér ýmsa annmarka eins
og fyrir lítið málsvæði sem Ísland
er, því þau verða oft útundan við
markaðssetningu lyfja þar sem
hlutfallslega dýrara er að prenta
fylgiseðla í litlu upplagi og koma
þeim fyrir í pakkningunni. Benda
má á að meðan Ísland er með
innan við 4000 skráð vörunúmer
hér á landi þá eru Norðurlöndin
með um og yfir 10.000 vörunúmer.
Rafrænir fylgiseðlar geta þann-
ig rutt aðgengishindrunum úr
vegi á minni málsvæðum. Þannig
myndu rafrænir fylgiseðlar auka
möguleika Íslands til að taka þátt
í sameiginlegum lyfjainnkaupum
með öðrum þjóðum, draga úr
mögulegum lyfjaskorti og lækka
lyfjaverð.
Rafrænir fylgiseðlar auka öryggi
sjúklinga. Með innleiðingu raf-
rænna fylgiseðla gætu íbúar á
Íslandi, sem skilja ekki íslensku,
fengið seðilinn á því tungumáli
sem hentar. Þá verður seðillinn
auðveldari af lestrar því letur má
stækka í rafrænum seðli. Rafrænir
fylgiseðlar minnka sóun því þá má
auðveldlega uppfæra til að komast
hjá því að farga lyfjum sem inni-
halda úrelta fylgiseðla.
Alþingi samþykkti árið 2017
lyfjastefnu til ársins 2022 sem segir
að stefnt skuli að því að fylgiseðlar
með lyfjum verði rafrænir. Næsta
vor fer af stað tilraunaverkefni um
innleiðingu rafrænna fylgiseðla
fyrir H-merkt lyf sem notuð eru á
sjúkrahúsum. Í stað pappírsfylgi-
seðils sækir starfsfólkið fylgiseðil-
inn rafrænt á serlyfjaskra.is. Heil-
brigðisráðherra hafði forgöngu um
að norrænir heilbrigðisráðherrar
sendu erindi til ESB í júlí árið 2019
þar sem hvatt var til að lönd, sem
vilja og hafa tæknigetu til, verði
heimilt að styðjast við rafræna
fylgiseðla í stað pappírsfylgiseðla.
Þingmenn í Norðurlandaráði og
Norræna stjórnsýsluhindrana-
ráðið hafa líka beitt sér í málinu.
Rafrænir fylgiseðlar ættu því að
þokast nær.
Rafrænir fylgiseðlar auka
öryggi og lækka lyfjaverð
Silja Dögg
Gunnarsdóttir
forseti Norður-
landaráðs
Oddný Harðar-
dóttir
varaforseti
Norðurlanda-
ráðs
Næsta vor fer af stað til-
raunaverkefni um inn-
leiðingu rafrænna fylgiseðla
fyrir H-merkt lyf sem notuð
eru á sjúkrahúsum. Í stað
pappírsfylgiseðils sækir
starfsfólkið fylgiseðilinn raf-
rænt á serlyfjaskra.is.
9 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R12 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð