Fréttablaðið - 09.10.2020, Qupperneq 18
Við fengum Lindu Benedikts-dóttur uppskriftahöfund og fagurkera til að deila með
okkur uppskrift að dásemdar-
kökum fyrir helgarkaffið. Linda
Ben rekur uppskriftasíðuna
lindaben. is, ásamt því að taka
allar myndir fyrir síðuna. Einnig
heldur hún úti Instagramsíðunni
instagram.com/lindaben þar
sem hún deilir bæði uppskrift-
unum sínum og gefur innsýn inn í
heimilislíf sitt. Hún er í sambúð og
á tvö börn og veit ekkert betra en
að eiga ánægjulegar stundir með
fjölskyldunni í eldhúsinu.
Nú ert þú að fara gefa út þína
fyrstu uppskriftabók, segðu okkur
aðeins frá tilurð hennar og hvar þú
fékkst innblásturinn?
„Ég hef alltaf haft það á bak
við eyrað að einn daginn muni
ég gefa út bók og er því búin að
hugsa lengi hvernig hún eigi að
líta út, hvernig uppskriftir eiga
að vera í henni og svo framvegis.
Ég fæ mikið af mínum innblæstri
frá fjölskyldu minni. Ég elska að
endurgera og þróa gamlar upp-
skriftir og svo geri ég mikið af
því að kasta hugmyndum á milli
minna nánustu og þróa þann-
ig uppskriftir. Uppskriftirnar í
bókinni koma úr öllum áttum,
mest er af nýjum uppskriftum,
einhverjar eru gamlar sem ég er
búin að þróa áfram og gera enn þá
betri en sumar eru lesendum góð-
kunnar og að mínu mati ótrúlega
gott að hafa útprentaðar í bók.“
Ertu til í að ljóstra upp nafninu á
bókinni?
„Bókin fjallar um mína fyrstu
ást – Kökur – og það er einmitt
nafnið á bókinni, Kökur.“ Linda
hefur haft ástríðu fyrir matar-
gerð og bakstri í mörg ár eins
og hún segir sjálf frá. „Ég hef
mikla ástríðu fyrir því að skapa
góðan mat og kökur, bæði hollt
og óhollt þar sem ég tel að jafn-
vægi þar á milli sé hinn gullni
meðalvegur, að minnsta kosti
fyrir mig og mína fjölskyldu. Ég
legg afskaplega mikið upp úr
því að gera kökurnar og matinn
fallegan enda borðum við flest
öll fyrst með augunum, svo með
munninum. Það er líka gaman að
bera eitthvað fram á borðið sem
maður getur verið stoltur af. Þar
sem ég er tveggja barna móðir og
yfirleitt nóg að gera á heimilinu,
legg ég mikið upp úr einföldum
og fljótlegum uppskriftum sem
bragðast vel. Kökurnar sem ég
geri eru skreyttar með einföldum
hætti og ég reyni að hafa vel f lest
áreynslulaust. Fegurðin leynist
nefnilega oftar en ekki í einfald-
leikanum.“
Ertu til í að gefa okkur uppskrift
að skotheldum kökum fyrir helgar-
kaffið?
„Ég ætla að gefa ykkur uppskrift
að æðislegum stórum kanilsykurs-
bollakökum sem eru í miklu uppá-
haldi hjá okkur fjölskyldunni.
Það skemmtilega við bollaköku-
bakstur er að hann hentar vel í
þessu ástandi sem við lifum við,
Ljúffengar bollakökur með
kanil sem enginn stenst
Þegar fjölskyldan er heima í huggulegheitum um helgar er ekkert betra en að eiga ljúfa samveru-
stund við eldhúsborðið í kaffitímanum og snæða kökur sem bráðna í munni. Hér gefur Linda
Ben uppskrift að kanilsykursbollakökum sem eru í miklu uppáhaldi hjá fjölskyldu hennar.
Stórar kanilsyk-
ursbollakökur
að hætti Lindu
Ben.
Sjöfn
Þórðardóttir
Matarást
Sjafnar
þá á ég við að þegar allir hafa
borðað nægju sína af bollakökum
þá er einfalt og þægilegt að setja
afganginn í frysti þar til síðar.“
Krönsí toppur
30 g smjör
30 g hveiti
25 g sykur
¼ tsk. kanill
Bollakökur
120 g smjör
150 g sykur
100 g púðursykur
2 egg
1 tsk. vanilludropar
350 g hveiti
3 tsk. lyftiduft
½ tsk. salt
200 ml AB-mjólk
Kanilsykur
2 msk. sykur
1 tsk. kanill
Glassúr
100 g flórsykur
1 msk. vatn
Byrjið á því að útbúa krönsí
toppinn með því að bræða smjör
og bæta út í það hveiti, sykri og
kanil. Hræra saman og leyfa því
að stirðna á meðan kökurnar eru
útbúnar. Þeytið saman smjör,
sykur og púðursykur þar til létt og
ljóst, bætið þá út í eggjunum, eitt í
einu og þeytið vel á milli. Blandið
vanilludropunum saman við. Í
aðra skál skal blanda saman hveiti,
lyftidufti og salti, bætið því út í
eggjablönduna ásamt súrmjólk
og hrærið saman þar til samlagað.
Takið stór pappírs-muffinsform
og raðið í muffins-álbakka, fyllið
hvert form upp 2/3. Hrærið saman
sykur og kanil, setjið 1/2 tsk. af
kanilsykri ofan í miðjuna á hverri
köku. Myljið krönsí toppinn yfir
bollakökurnar og bakið inn í
miðjum ofni við 200°C í u.þ.b. 20
mínútur eða þar til þær eru bak-
aðar í gegn.
Blandið saman flórsykri og vatni
í skál, (þið gætuð þurft að setja
örlítið meira af vatni eða flórsykri
til þess að fá áferðina þykkfljót-
andi), dreifið yfir kökurnar.
Njótið hvers munnbita í huggu-
legheitum.
Linda Ben er ástríðufullur bakari.
Ég legg afskaplega
mikið upp úr því
að gera kökurnar og
matinn fallegan enda
borðum við flest öll
fyrst með augunum, svo
með munninum.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U R