Fréttablaðið - 09.10.2020, Page 26
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
Ég fór að sjálfsögðu
inn á netið á
aðfangadagskvöld og sló
kóðann inn. Þá birtust
þrjár jólagjafir sem hægt
var að velja um.
8 KYNNINGARBLAÐ 9 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RFYRIRTÆKJAGJAFIR
Jólagjöfin frá vinnustaðnum hitti beint í mark. „Allir voru rosalega ánægðir með að geta valið það sem þeim
hentaði best,“ segir Svansí, sem vinnur hjá Sýn en þar hafa verið gefnar óvenjulegar gjafir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Svanhildur Ólöf, betur þekkt sem Svansí, var önnum kafin við að undirbúa afmæliskaffi
þegar blaðamaður hafði samband
en hún átti afmæli í gær. Svansí er
deildarstjóri viðskiptastýringar
hjá Sýn en undanfarin ár hefur
fyrirtækið gefið starfsfólki sínu
óvæntar og spennandi jólagjafir.
„Ein jólin fengu allir Ora-
baunadós að gjöf, sem búið var
að sérmerkja og setja í jólalegan
búning. Á dósinni var sérstakur
gjafakóði sem hægt var að slá inn
í tölvunni klukkan sex á aðfanga-
dag. Ég fór að sjálfsögðu inn á
netið á aðfangadagskvöld og sló
kóðann inn. Þá birtust á skjánum
þrjár mismunandi jólagjafir sem
hægt var að velja um. Þetta voru
Bose-heyrnartól, ferðataska og
gjafabréf í útivistarverslun,“ segir
Svansí, sem valdi sér heyrnartólin
þau jólin.
„Þetta hitti alveg í mark. Allir
voru rosalega ánægðir með að
geta valið það sem þeim hentaði
best. Það sem mér finnst sniðug-
ast við þetta er að hjá Sýn starfar
stór hópur fólks, sem hefur mis-
munandi áhugamál og með þessu
móti fá allir eitthvað sem þeir geta
örugglega notað,“ segir Svansí.
Hún segir að sumir vinnufé-
laganna hafi þó ekki áttað sig á
því að kóðinn var utan á Ora-dós-
inni. „Einn misskildi þetta aðeins
og hélt að gjöfin væri falin ofan
í dósinni og opnaði hana en þá
blöstu auðvitað bara við grænar
baunir,“ segir hún og skellihlær.
Kertin og spilin leyndu á sér
Á síðasta ári var haft sama
fyrirkomulag og í það skiptið fékk
starfsfólk kerti og spil og á spil-
inum var gjafakóði. „Þá stóð valið
á milli þess að fá Le Cruset-grill-
pönnu, útivistarbakpoka og þráð-
lausan hátalara,“ segir Svansí, sem
reiknar með að jólagjafir Sýnar
verði á svipuðum nótum í ár.
„Það er svo gaman að hafa smá
sprell í þessu og nota hugmynda-
f lugið til að koma fólki á óvart.
Hægt er að útfæra alls konar
óvæntar gjafir með því að leggja
höfuðið í bleyti,“ segir Svansí,
en þetta eru eftirminnilegustu
fyrirtækjagjafir sem hún hefur
fengið. „Á mínum gamla vinnu-
stað var vaninn að starfsfólk
fengi gjafabréf í jólagjöf. Auðvitað
kom það sér alltaf vel en það er
líka skemmtilegt að fá eitthvað
óvænt.“
Undirbýr jólin snemma
Svansí er mikið jólabarn og kemst
í jólastuð strax í september,
við mismiklar vinsældir fjöl-
skyldunnar. „Ég er farin að spá í
jólin strax í september. Þá sendi
ég börnunum mínum, foreldrum
og systrum tölvupóst og segi þeim
að nú líði senn að jólum og það
sé kominn tími til að fá sendan
jólaóskalista. Ég vil helst byrja
að kaupa jólagjafir snemma,
kaupa eina og eina og vera búin
með jólagjafainnkaupin fyrir 1.
desember. Það er svo gott að geta
bara slakað á í desember og notið
aðventunnar,“ segir Svansí.
Hún fær þó ekki að byrja að
skreyta fyrr en í lok nóvember.
„Heimilisfólkið bannar það! En
ég tíni eitt og eitt skraut upp og
set ljós í gluggana eitthvað fyrr,“
segir hún brosandi og bætir við
að það sé þegar farið að huga að
jólunum á vinnustaðnum. „Það
er búið að ákveða jóladagskrána
á Stöð 2, sem er í eigu Sýnar. Ingó
Veðurguð verður með Jólagigg,
sem verður sýnt á annan í jólum,
og Áramótagigg á nýársdag. Eva
Laufey verður með jólaboð og svo
verða jólaþættir með BBQ kóng-
inum,“ greinir hún frá.
Svansí mælir almennt með
að hefja undirbúning jólanna
snemma og styrkja íslenskt
atvinnulíf með því að versla hér
heima. „Við lifum á skrýtnum
tímum og það hefur aldrei verið
mikilvægara að vera í sambandi
við annað fólk, þótt það sé bara
í gegnum símann eða skjáinn,
láta gott af sér leiða, styrkja góð
málefni og gera eitthvað fyrir
náungann. Núna er rétti tíminn
til að hafa jólandann svífandi og
hlýða Víði,“ segir Svansí að lokum.
Jólagjöfin
kom í Ora-dós
Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir hefur fengið skemmtilegar,
hagnýtar og óvæntar jólagjafir frá fyrirtækinu sem hún starf-
ar hjá. Hún er þegar farin að hlakka til að fá jólagjöfina í ár.