Fréttablaðið - 09.10.2020, Side 62
ÞETTA ER STÓR DAGUR
EN AUÐVITAÐ ER
NÁTTÚRLEGA EKKI HÆGT AÐ
FARA Í VIÐEY NÚNA EN MÉR
FINNST STUNDUM EINS OG VIÐ
KUNNUM EKKI AÐ META ÞAÐ
ALVEG NÓGU MIKIÐ HVAÐ ER
FRÁBÆRT AÐ YOKO SKYLDI
SETJA NIÐUR FRIÐARSÚLUNA
HÉR.
Andrea 2020
HANN HAFÐI ÆVIN-
LEGA ÁKVEÐNAR
SKOÐANIR Á ÖLLUM MÁLUM OG
STERKUR PERSÓNULEIKI HANS
ÆPIR Á MANN Í LÖGUM HANS OG
TEXTUM HVORT SEM HANN
FJALLAR UM ÓBLÍÐAN UPPVÖXT
Í VERKALÝÐSSTÉTT EÐA ÁST
SÍNA TIL YOKO.
Andrea 1980
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.
geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Tryggðu þér áskrift á dv.is eða nældu þér í
eintak í næstu verslun eða fáðu heimsent
á heimkaup.is MYND/STEFÁN
9. októbe
r 2020 |
40. tbl.
| 111. á
rg. | Ve
rð 995 kr
.
Upp á
líf
eða dau
ða
Claudia
Ashanie
Wilson
hefur ás
tríðu fyr
ir málefn
um
hælislei
tenda og
flóttafó
lks.
Hún er f
yrsti inn
flytjandi
nn frá
landi uta
n Evrópu
til að öð
last
lögmann
sréttind
i á Íslan
di og
varð í su
mar með
eigandi
að
lögmann
sstofunn
i Rétti.
– sjá síð
u 10
Heitir og
hæfileikar
íkir á laus
u
20
Sænska le
iðin í geg
num COV
ID
16
EKKI MISSA AF NÝJASTA DV
Manni finnst það nú ekkert endi-l e g a g a m a l t núorðið. Mér finnst fólk byrja kannski að vera
gamalt þegar það er rúmlega átt-
rætt og ég hugsa nú að hann hefði
bara verið sprækur,“ segir útvarps-
konan og plötusnúðurinn Andrea
Jónsdóttir um bítilinn John Lennon
sem fæddist 9. október 1940 og væri
því að fagna 80 ára afmæli sínu í dag
hefði hann lifað en hann féll fyrir
hendi morðingja í desember 1980,
rétt rúmlega fertugur.
„Þetta er stór dagur en auðvitað er
náttúrlega ekki hægt að fara í Viðey
núna en mér finnst stundum eins og
við kunnum ekki að meta það alveg
nógu mikið hvað er frábært að Yoko
skyldi setja niður Friðarsúluna
hér,“ segir Andrea sem hefur stöðu
sinnar vegna eðlilega verið viðstödd
nokkrum sinnum þegar Friðarsúla
Yoko Ono hefur verið tendruð í
Viðey á fæðingardegi Lennons.
„Ég hef verið þar nokkrum
sinnum og hef hitt Yoko og Sean og
svona. Það er náttúrlega út af minni
vinnu en ekki að þau hafi leitað mig
uppi.“
Frábær meðal jafningja
Andrea var þrettán ára þegar fyrsta
smáskífa The Beatles kom út. „Ég er
það ung að þetta er mín unglinga-
hljómsveit. Ég lifði það eins og
maður ætti að segja,“ heldur Andr-
ea áfram og dregur hvergi úr því að
hún hafi verið rosalegur bítlaaðdá-
andi sem hafi lítið verið að gera upp
á milli fjórmenninganna.
„Mér fannst þeir bara frábærir
sem hljómsveit. Ég reyndar er bara
hissa á því hvað þeir spjöruðu sig vel
hver í sínu lagi eftir að þeir hættu í
Bítlunum. Mér finnst það eiginlega
bara mjög aðdáunarvert og sýnir
líka kannski hvað þeir voru bara
skemmtilegir og miklir karakterar,
týpur, hver og einn,“ segir Andrea
sem hafði þó meðal annars þetta að
segja um Lennon í minningargrein
sem birtist í Þjóðviljanum daginn
eftir að Lennon var myrtur fyrir
utan heimili sitt, Dakota-bygging-
una, í New York þann 8. desember
1980.
„Bítlarnir hafa allir gefið út eigin
plötur eftir að þeir slitu samstarfinu
og þeirra hefur jafnan verið beðið
með forvitni. Þegar litið er um öxl
á þann stóra plötubunka þeirra
fyrrum félaga verður hlutur Johns
Lennon óneitanlega áhrifaríkastur.
Hann hafði ævinlega ákveðnar
skoðanir á öllum málum og sterkur
persónuleiki hans æpir á mann í
lögum hans og textum hvort sem
hann fjallar um óblíðan uppvöxt í
verkalýðsstétt eða ást sína til Yoko.“
In memoriam
„Þetta var náttúrlega mjög skyndi-
legt og maður verður kannski svo-
lítið dramatískur á þannig stundum
þannig að það er nú langt síðan ég
hef lesið þetta. Ég var prófarka-
lesari á Þjóðviljanum heitnum.
Rúmlega þrítug bara,“ segir Andrea
um minningargreinina og hverfur
aftur til dagsins þegar Mark David
Chapman myrti Lennon með því að
skjóta hann fjórum sinnum í bakið
af stuttu færi.
„Og ég var bara vakin sko og við
Álfheiður Ingadóttir, sem var blaða-
maður á Þjóðviljanum, skrifuðum
minningaropnu í Þjóðviljann.
Þetta var bara sjokk fyrir alla.
Mamma mín hringdi í mig en hún
var fædd 1919 og þannig 30 árum
eldri en ég. Hún fór að tala um Bítl-
ana og auðvitað Lennon líka af því
að hann skapaði sér svona sterkara
nafn sem einstaklingur eftir að þeir
hættu saman þótt hann væri auð-
vitað alltaf mikill karakter.“
Aktívisti frelsis og friðar
Andrea segir að móður hennar hafi
þótt mikið koma til samfélagsbreyt-
inga sem meðal annars megi þakka
Bítlunum. „Henni fannst þjóðfélagið
bara breytast svo mikið til hins
betra, sérstaklega þarna um miðjan
sjöunda áratuginn.“
Andreu eru sérstaklega minni-
stæð orð móður hennar um að
þarna hafi fólk byrjað að efast um
yfirvaldið og að það hefði einhvern
veginn alltaf rétt fyrir sér. „Ég er ekki
að segja að þeir hafi gert það einir.
En í gegnum músíkina þá einhvern
veginn urðu Bítlarnir bara svo stór-
ir og það kom eitthvað frelsi með
þeim. Einhvers konar andlegt frelsi
sem maður kannski leit ekki endi-
lega á sem pólitík til að byrja með.
En svo náttúrlega heldur hann
áfram og með þessar aðferðir, sem
flestum fundust skrýtnar, til þess að
boða frið í heiminum. Það er náttúr-
lega í tísku hjá mörgum að tala illa
um Yoko en þegar þau hittust þá
bara tengdust þau svo vel. Þau ein-
hvern veginn bara bættu hvort
annað upp sem er svo magnað og ég
tek það fram að ég er ekki að draga
neitt úr honum, hann var náttúr-
lega alveg bara brilljant og hefur
enn áhrif,“ segir Andrea og bendir á
að Yoko hafi tekið að sér það mikil-
væga hlutverk að halda minningu
Lennons á lofti. „Sem er frábært og
heimurinn þarf á því að halda og
aldrei meira en nú.“
toti@frettabladid.is
Minningin um
Lennon aldrei
mikilvægari
Andrea Jónsdóttir segir minninguna um
John Lennon aldrei hafa verið heimsbyggð-
inni jafn mikilvæga og núna. Bítillinn hefði
orðið áttatíu ára í dag hefði hann lifað.
John Lennon mætir í hljóðver í ágúst 1980 þar sem hann vann að síðustu breiðskífu sinni, Double Fantasy. Þremur
mánuðum síðar var hann allur eftir að Mark David Chapman fékk hann til þess að árita eintak af plötunni síðdegis
8. desember og þakkaði fyrir sig síðar um kvöldið með því að skjóta Bítilinn í bakið. MYND/GETTY
Andrea ætlar að sjálfsögðu að setja Lennon á fóninn í dag. „Maður spilar
alltaf Lennon og svo er ég reyndar með þátt á sunnudaginn eftir hádegi á
Rás 2. Það verður ábyggilega mikill Lennon þá.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÓRSTEINN
9 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð