Fréttablaðið - 24.10.2020, Page 6
Alls er kosið um 35 sæti
innan öldungadeildarinnar í
kosningunum í ár, en af
þeim eru nú 23 sæti í hönd-
um Repúblikana á móti tólf
sætum Demókrata.
Tryggðu þér skemmtilegri vetur á stod2.is
n Nánast öruggt (R) n Líklegt (R) n Hallast að (R) n Jafnar líkur n Hallast að (D) n Líklegt (D) n Nánast öruggt (D)
✿ Spálíkan fyrir kosningarnar í öldungadeildinni
BANDARÍKIN Aðeins tíu dagar eru í
að kjördagur renni upp í Bandaríkj
unum, en líkt og kunnugt er kjósa
Bandaríkjamenn þar um næsta
forseta sinn og er þar valið á milli
Donalds Trump og Joes Biden.
Það er þó ekki aðeins kosið um
næsta forseta 3. nóvember. Á sama
tíma fara þingkosningarnar fram,
þar sem kosið er um öll sætin innan
fulltrúadeildar Bandaríkjaþings og
33 sæti innan öldungadeildarinnar.
Þá fara sérstakar kosningar fram í
Arizona og Georgíu til að fylla í sæti
öldungadeildarþingmanna sem
hafa sagt af sér.
Demókratar eru nú með meiri
hluta innan fulltrúadeildarinnar
og benda kannanir til að þeir muni
halda þeim meirihluta. Aðra sögu
er að segja um öldungadeildina, þar
sem Repúblikanar eru í meirihluta,
en af þeim sætum sem kosið er um
þar eru 23 í höndum Repúblikana.
Demókratar þurfa að vinna
þrjú til fjögur sæti til að tryggja
sér meirihluta, en ef Biden vinnur
kosningarnar þurfa Demókratar
aðeins þrjú sæti, þar sem varafor
seti Bandaríkjanna er með atkvæð
isrétt ef til jafnteflis kemur.
Samkvæmt spálíkani heimasíð
unnar FiveThirtyEight eru 20 sæti
talin örugg í kosningunum í ár, en
líkanið er unnið út frá meðaltali
kannana í hverju ríki fyrir sig.
Alls eru 10 sæti talin örugg fyrir
Demókrata og 10 sæti fyrir Repú
blikana. Líklegt er að Repúblikanar
missi tvo þingmenn, Cory Gardner
frá Colorado og Martha McSally frá
Arizona, og að Demókratar missi
einn þingmann, Doug Jones frá
Alabama.
Önnur ríki eru á reiki en þó að
það sé ekki öruggt er líklegt að
Repúblikanar haldi þingmönnum
sínum í SuðurKarólínu, Alaska,
Texas og Mississippi. Líklegt er
að Demókratar haldi þingmanni
sínum frá Michigan.
Eftir standa sjö þingmenn frá
sex ríkjum, svokölluðum baráttu
ríkjum, en þau ríki eru Iowa,
Georgía, NorðurKarólína, Maine,
Montana og Kansas. Í Iowa og í sér
stöku kosningunum í Georgíu, eru
jafnar líkur á að Demókratar eða
Repúblikanar vinni.
Kannanir í Georgíu, Montana og
Kansas hallast að því að Repúbl
ikanar haldi þingmönnum sínum
Barist um meirihluta öldungadeildar
Bandaríkjamenn ganga til kosninga eftir tíu daga en samhliða forsetakosningunum fara þingkosningar fram. Kannanir benda til
að Demókratar muni áfram vera í meirihluta í fulltrúadeildinni og er möguleiki á að þeir nái einnig meirihluta í öldungadeildinni.
þar, en í NorðurKarólínu og Maine
hallast kannanir að því að Demó
kratar taki sætin af Repúblikönum.
Ef gert er ráð fyrir að úrslit kosn
inganna verði í samræmi við spá
líkanið, munu Demókratar bæta
við sig þremur sætum og jafna þar
með þingmannafjölda Repúbl
ikana. Kosningarnar í Iowa og
sérstöku kosningarnar í Georgíu,
myndu síðan ráða úrslitum.
Þó er vert að taka fram að aðeins
er um að ræða spálíkan sem er
unnið út frá könnunum og er ekki
öruggt að niðurstöður kosninga
verði í samræmi við líkanið.
Ítarlegri umfjöllun um þing
kosningarnar í Bandaríkjunum
verður birt á frettabladid.is á
sunnudagsmorgun.
Bandaríkjaþing
n Öldungadeildin
Alls sitja 100 þingmenn í
öldungadeildinni þar sem
tveir þingmenn koma frá
hverju ríki óháð stærð
ríkjanna. Kjörtímabil hvers
þingmanns er sex ár en kosið
er um þriðjung sætanna á
tveggja ára fresti. Nýkjörnir
þingmenn í ár taka síðan við
embætti í janúar.
n Fulltrúadeildin
Alls sitja nú 435 þingmenn í
fulltrúadeildinni og er kjör-
tímabil þingmanna tvö ár en
kosið er um öll sætin í einu.
Fjöldi þingmanna í hverju ríki
fyrir sig er ákveðinn út frá
manntali í Bandaríkjunum
sem fer fram á tíu ára fresti.
Manntalið fer fram í ár og því
gæti fjöldi þingmanna verið
annar í næstu kosningum.
Nýkjörið þing kemur saman 6. janúar 2021. Alls verða þingmennirnir 535 talsins næstu tvö ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Meira á frettabladid.is
Fanndís Birna
Logadóttir
fanndis@frettabladid.is
2 4 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð