Fréttablaðið - 24.10.2020, Síða 28
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Leikbreytir aðstoðar fyrirtæki við að bjóða viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjón-
ustuupplifun. Til þess nýtir Leik-
breytir alla þá tækni og þekkingu
sem er í boði og hámarkar þannig
skilvirkni þjónustu.
Yngvi Tómasson, framkvæmda-
stjóri Leikbreytis, segir að sam-
skipti fyrirtækja við viðskiptavin-
ina hafi breyst mikið undanfarin
ár og nú séu þau flest í gegnum
tölvupóst og netspjall.
„Hingað til hefur aðaláherslan
verið mælingar þjónustuvera yfir
fjölda símtala, hversu fljótt þeim
sé svarað, hver sé helsti álagstím-
inn og svo framvegis. Við erum að
selja fyrirtækjum þjónustulausnir
sem mæla netsamskiptin á sama
máta,“ útskýrir Yngvi.
„Þetta eru lausnir sem mæla
á hvaða tíma flestir tölvupóstar
berast fyrirtækjum, hversu fljótir
starfsmenn eru að svara og svo
framvegis. Þetta gerir fyrirtækjum
kleift að mæla þjónustustig í
netsamskiptum. Fyrirtæki geta
þá líka mælt hvort mikið sé um
endurteknar fyrirspurnir og hvort
tækifæri liggi í aukinni sjálfvirkni
til að fyrirbyggja endurteknar
fyrirspurnir.“
Snjallar vefverslanir
Leikbreytir smíðar einnig og
þjónustar netverslanir með
áherslu á aukna sjálfvirkni. „Við
erum að gera það sem kallast
snjallar vefverslanir, með snjall-
mennum og aukinni sjálfvirkni.
Við byggjum á þeirri hugmynda-
fræði að því hraðar sem fyrir-
spurnum er svarað, því meiri líkur
eru á að ná sölu og bæta þjónustu,“
segir Yngvi.
„Með snjallri vefverslun getur
notandinn átt samskipti við snjall-
menni og spurt um vörur eða skil
á vörum og fengið stöðu á pöntun-
um, svo dæmi séu nefnd. Við erum
mikið í því að innleiða netspjall og
snjallmenni, þannig hjálpum við
fyrirtækjum að taka fyrstu skrefin
í þessa átt. “
Yngvi segir að þessa dagana sé
Leikbreytir að fá mikið af fyrir-
tækjum í þjónustu sem vilja leggja
meiri áherslu á vefverslun vegna
COVID. Hann segir að fyrir COVID
hafi mörg fyrirtæki verið með vef-
verslun, sem var kannski aðallega
til að sýna vöruúrvalið. En núna
hafi orðið mikil aukning í verslun
gegnum þær.
„Við höfum tekið eftir því að
fyrirtæki eru í auknum mæli að
leita að þjónustuaðilum til að
halda utan um vefverslanirnar
fyrir sig. Við erum á þessu ári búin
að taka yfir fjölda vefverslana, sem
og smíða nýjar. Þetta eru mikið
verslanir sem voru til fyrir, en við
höfum tekið yfir reksturinn og
þjónustað þær frá a-ö. Það hefur
kannski orðið sprenging í notkun
þeirra og þá þarf að gera verslunina
sjálfvirkari og skilvirkari almennt.
Við höfum til dæmis gert það með
snjallmennum, með því að tengja
bókhaldskerfið við vefverslunina
svo ekki þurfi að handfæra allt í
bókhaldið og beintengja þær við
Íslandspóst, eða þann sem sér um
að fara með sendingar. Í raun bara
allt sem fær verslunina til að verða
betri og skilvirkari,“ segir hann.
Yngvi segir að Leikbreytir sé
ekki eingöngu að þjónusta net-
verslanir þegar kemur að veflausn-
um. Ýmis önnur fyrirtæki eru með
alls kyns þjónustu sem er að færast
að miklu leyti yfir á netið. Hann
tekur sem dæmi lánafyrirtæki sem
er í viðskiptum hjá honum.
„Við gerðum umsóknarkerfi
fyrir fyrirtækið. Slík þjónusta og
umsóknir almennt eru að fara
mikið meira yfir á netið, í kjöl-
far þess að hægt er að fá rafrænar
undirskriftir frá viðskiptavinum,
sem er í raun algjör leikbreytir.“
útskýrir hann.
„Við sjáum að snjallmenni henta
ekki öllum fyrirtækjum því oft
er tækniumhverfi þeirra ein-
faldlega ekki klárt í að nýta þau.
Þúsaldarkynslóðin vill frekar eiga
samskipti í gegnum netspjall en
símtöl, og það á líka við um margt
eldra fólk núorðið. Þannig að við
hjálpum fyrirtækjum að innleiða
netspjall, greina tækifærin í að
bæta þjónustuna og fyrirbyggja
endurtekin verkefni. Það er rauði
þráðurinn í gegnum þetta allt.“
Byggir á langri reynslu
Yngvi hefur langa reynslu af vef-
síðugerð en hann segist hafa verið
um það bil 14 eða 15 ára þegar
hann seldi fyrstu vefsíðuna og 16
ára þegar hann var ráðinn sem
vefstjóri hjá Halló! Frjáls fjar-
skipti. „Ég hef unnið í þessum
geira í tæp 25 ár. Lengst af átti
ég og rak Davíð og Golíat ásamt
viðskiptafélaga, eða í tæp tíu ár,
DG sameinaðist síðan Premis
2017. Ég fór í MBA- nám í Háskól-
anum í Reykjavík um svipað leyti
og bauðst starf sem vörustjóri
fyrirtækjasviðs Nova. Ég var þar
í tæplega tvö ár samhliða MBA-
náminu, en það togaði í mig að
fara aftur í eigin rekstur og var
ákvörðunin einföld eftir loka-
kúrs sem ég tók í MBA-náminu í
frumkvöðlafræðum við Babson í
Bandaríkjunum. Þá var eiginlega
ekki aftur snúið. Ég er núna búinn
að vera með Leikbreyti í tæp tvö
ár,“ segir hann.
Hann segir að þó fyrirtækið sé
ungt byggi það á langri reynslu
starfsfólksins. Gildi Leikbreytis
eru áhersla á gegnsæi í verðlagn-
ingu og góð þjónusta.
„Við gerum bindandi tilboð
í alla vinnu sem við tökum að
okkur. Við erum því ekki að koma
með bakreikninga. Það er liður
í góðri þjónustu. Við tökum líka
ábyrgð á okkar verkefnum og
rukkum fyrirtæki ekki fyrir við-
gerð á einhverju sem við smíð-
uðum fyrir nokkrum mánuðum
síðan,“ segir Yngvi.
„Við seljum viðskiptavinum
ekki eitthvað sem þeir þurfa ekki
á að halda. Við förum ekki inn í
fyrirtæki með margra milljóna
króna lausn ef hún er óþörf. Við
tökum þetta skref fyrir skref,
mælum og metum hvað hægt er að
gera sjálfvirkt og hvað mun skila
árangri. Við bjóðum viðskipta-
miðaðar lausnir, við seljum ekki
tæknilausnir, heldur hjálpum við
fyrirtækjum að bæta sinn rekstur
og þjónustu. Ég vil meina að við
bjóðum fyrirtækjum stafræna
vegferð án varalitar, sem endur-
speglast í verðlagningunni á okkar
lausnum.“
Leikbreytir byggir á áratugareynslu starfsfólksins en Yngvi hefur unnið í geiranum í tæp 25 ár. Gildi Leikbreytis eru áhersla á gegnsæi í verðlagningu og góð þjónusta. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Yngvi segir Leikbreyti vera eitt fyrsta fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í snjallmennum og sjálfvirkni í svörun.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R